Samþykktum hælisumsóknum fækkar verulega

Sam­þykktar hæl­is­um­sóknir voru 43% færri í fyrra en árið þar á undan og 74% færri ef Úkra­ínu­menn eru teknir út fyrir sviga. Sam­þykktar umsóknir ann­arra en Úkra­ínu­manna voru 412 tals­ins í fyrra.

Samþykktum hælisumsóknum fækkar verulega
Neitun Af heim­ili fjöl­skyldu frá Kólumbíu sem fékk synjun í fyrra. Mynd: Golli

Fjöldi sam­þykktra hæl­is­um­sókna fór úr 3.455 árið 2022 í 1.972 í fyrra. Bæði árin voru Úkra­ínu­menn lang­flestir þeirra sem hlutu vernd, svo­kallað mann­úð­ar­leyfi vegna fjölda­flótta, eða um 70% – 3.881 af 5.427. Úkra­ínu­menn fá almennt sam­þykkt mann­úð­ar­leyfi fljót­lega eftir að þeir koma hingað til lands vegna stríðs­á­stands í heima­landi þeirra.

Þetta sést svart á hvítu, reyndar stundum svart á grænu, ef nýbirt töl­fræði vernd­ar­sviðs Útlend­inga­stofn­unar frá því í fyrra er borin saman við árið á undan. 

Fólk sem fékk hér sam­þykkta vernd – við­bót­ar­vernd, alþjóð­lega vernd eða mann­úð­ar­leyfi – og er ekki úkra­ínskt var því ein­ungis 30% af þeim fjölda sem fékk sam­þykkta hæl­is­um­sókn hér á landi á tíma­bil­inu. Þetta voru 1.134 árið 2022 og ekki nema 412 í fyrra. Þannig dróst hlut­fall sam­þykktra umsókna fyrir þetta fólk saman um 74% á einu ári. 

„Kannski 500“ segir Guðrún

Í Dagmálum Morg­un­blaðs­ins í dag sagði Guðrún Haf­steins­dóttir dóms­mála­ráð­herra að brjóst­vit hennar segði henni að Ísland muni ekki geta tekið á móti „nema kannski 500“ árlega. Hvort hún hafi átt við hæl­is­leit­endur eða flótta­fólk er óljóst og hefur ekki feng­ist stað­fest.

Guðrún tók sér­stak­lega fram að þetta mat hennar væri ekki byggt á gögnum, fremur til­finn­ingu.

Helsta ástæðan sem má nefna fyrir mik­illi fækkun sam­þykktra umsókna á milli ára er breyt­ing á við­horfi yfir­valda til Venes­ú­ela­búa sem hingað sækja. Frá árinu 2019 til 2022 veittu íslensk stjórn­völd nán­ast öllum sem hingað flúðu frá Venes­ú­ela hæli vegna óða­verð­bólgu og slæms almenns ástands í heima­land­inu. Stefnu­breyt­ing var tekin í þessum málum í lok árs 2022 og hún kom til fram­kvæmda í fyrra með þeim afleið­ingum að miklum meiri­hluta umsókna venes­ú­el­skra rík­is­borg­ara um vernd var hafnað. Að mati Útlend­inga­stofn­unar hafði ástandið í Venes­ú­ela batnað. Því mót­mæltu venes­ú­elskir hæl­is­leit­endur.

Umsóknum fækkar áfram

Á sama tíma og sam­þykkt­ar­hlut­fallið dróst veru­lega saman fækk­aði umsóknum lít­il­lega, úr 4520 í 4155, og þeim virð­ist áfram vera að fækka, miðað við töl­fræði rík­is­lög­reglu­stjóra. Þar kemur fram að alls hafi 343 sótt um vernd hér á landi það sem af er ári, áfram lang­flestir frá Úkraínu eða 197. Í jan­úar sóttu alls 170 um hæli hér á landi – 73% færri en í sama mán­uði í fyrra. Það sem af er febr­úar hafa 173 sótt hér um en þeir voru 470 í fyrra. Orðræða um áfram­hald­andi fjölgun hæl­is­um­sókna virð­ist því ekki eiga sér stoð í töl­fræð­inni, í það minnsta ekki sem stendur. 

Fréttin hefur verið upp­færð. Áður sagði að dóms­mála­ráð­herra hefði sagt 500 æski­legan fjölda flótta­manna árlega. Við nán­ari skoðun reynd­ist óljóst hvort hún ætti við flótta­menn eða hæl­is­leit­endur. Það hefur ekki feng­ist stað­fest hjá aðstoð­ar­mönnum Guðrúnar. 

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár