Lítið eða ekkert kalt vatn við flugvallarsvæðið

Vegna leka á stofn­lögn gæti orðið vart við „lítið eða ekk­ert kalt vatn“ á Ásbrú, Háa­leit­is­hlaði og víðar við flug­vall­ar­svæðið fram eftir morgni.

Lítið eða ekkert kalt vatn við flugvallarsvæðið
Kalt Lítið eða ekk­ert vatn er á Ásbrú í Reykja­nesbæ.

Leki komst seint í gær­kvöldi að stofn­lögn kalds vatns á vest­an­verðum Reykja­nesskaga sem hefur þau áhrif að „lítið eða ekk­ert kalt vatn“ er á Ásbrú, Háa­leit­is­hlaði og við flug­vall­ar­svæðið fram eftir morgni.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef HS Veitna. Heita­vatns­laust er í öllum byggð­ar­lögum á Reykja­nesi í kjöl­far þess að hraun úr eld­gos­inu sem hófst í gær­morgun rann yfir lögn frá Svarts­engi og hún fór í sundur.

Hins vegar segja HS Veitur í til­kynn­ingu sinni að lek­inn í kalda­vatns­lögn­inni teng­ist ekki eld­gos­inu. Um mið­nættið stóðu vonir til þess að hægt yrði að gera við lögn­ina fyrir klukkan 6 í morgun. Það tókst ekki. „Erf­ið­lega gengur með við­gerð,“ segir í upp­færðri til­kynn­ingu á vef HS Veitna um málið.

Vonir standa til að heitu vatni verði komið á vara­leiðslu sem einnig laskað­ist í eld­gos­inu í gær. Óvíst er hversu langan tíma sú vinna mun taka.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.
Í Grindavík er enn 10. nóvember
VettvangurJarðhræringar við Grindavík

Í Grinda­vík er enn 10. nóv­em­ber

Það er nógu leið­in­legt að flytja, þegar maður velur sér það sjálfur, hvað þá þegar maður neyð­ist til þess. Og hvernig velur maður hvað eigi að taka með sér og hvað ekki, þegar maður yfir­gefur stórt ein­býl­is­hús með tvö­földum bíl­skúr fyrir litla íbúð með lít­illi geymslu? Fjöl­skyldan á Blómst­ur­völlum 10 í Grinda­vík stóð frammi fyrir þeirri spurn­ingu síð­ast­lið­inn sunnu­dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár