Vetrarfærð á höfuðborgasvæðinu

Snjó­hrúga á Suð­ur­lands­braut­inni gerði bíl­stjórum erfitt fyrir að kom­ast sinnar leiðar í morgun. Gul við­vörun er á höfðu­borg­ar­svæð­inu, Suð­ur­landi og í Faxaflóa. Veðrinu á að lægja í hádeg­inu í dag.

Vetrarfærð á höfuðborgasvæðinu

Umferðin var þétt í borg­inni í morgun og gekk öku­mönnum mis­vel að kom­ast sinnar leiðar. Fram til hádegis er gul við­vörun á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Suð­ur­landi og Faxaflóa. Vegir eru hálir og nú þegar hafa nokkur umferð­ar­ó­höpp verið til­kynnt til lög­reglu. 

Bílarnir mjökuður hægt áfram

„Ég mætti 20 mín­útum seinna í dag en vana­lega,“ segir íbúi í Reykja­vík, um umferð­ina upp úr níu í morgun. Hann var á leið frá mið­borg Reykja­víkur til vinnu í Skeif­unni. „Venju­lega er ég 10 mín­útur á leið­inni í vinn­una en ég var hálf­tíma í dag. Bílarnir mjök­uð­ust hægt áfram, sér­stak­lega á Sæbraut­inni. Hef aldrei lent í öðru eins.“

Sagði hann að erf­ið­lega hefði gengið að kom­ast áfram á Suð­ur­lands­braut­inni, því þar hefði snjó­hrúga verið á veg­inum. „Verktaki sem mok­aði bíla­stæðin hafði sett snjó­hrúg­una þannig að hún fór inn á Suð­ur­lands­braut­ina í aust­urátt, sem gerði það að verkum að fólk þurfti að sveigja frá skafl­inum.“

Snjómokstur

„Við brýnum fyrir okkar fólki að setja ekki snjó á ákveðna staði sem geta hindrað útsýni, tekið upp óþarfa bíla­stæði og ég tala ekki um yfir á stíga,“ segir Hjalti Jóhannes Guð­munds­son, skrif­stofu­stjóri rekst­urs og umhirðu borg­ar­lands­ins hjá Reykja­vík­ur­borg. 

Hjól­reiða­fólki gekk einnig mis­vel að kom­ast sinnar leiðar, þar sem ekki var nægi­lega vel mokað. „Það er sami for­gangur á öllu hjóla- og göngu­leiða­kerf­inu og hjá bílum,“ sagði Hjalti. „Við byrjum klukkan fjögur í nótt á báðum þessum verk­efnum og gengur bara ágæt­lega. Þetta er mjög stíft prógram sem við vinnum eftir, hvort sem það er á götum eða göngu- og hjóla­leiðum.“

Í Reykja­vík mæld­ist 7 sentí­metra snjó­dýpt, en 20 sentí­metrar á Kefla­vík­ur­flug­velli, sam­kvæmt sam­an­tekt Einars Svein­björns­sonar veð­ur­fræð­ings hjá Bliku. Framundan er mikið frost í dag og á morgun, en á laug­ar­dag mild­ast það og eru horfur á stilltu veðri. „Heim­skauta­loftið vinnur ein­fald­lega þennan slag og verður ríkj­andi hér til morg­uns. Á laug­ar­dag verður gerð alvöru atlaga að því með stærri lægð sem kemur úr suð­vestri. Léttu lausa­mjöll­ina víða um land getur þá hæg­lega tekið að skafa,“ segir í grein­ingu Einars.


Hvernig er færðin hjá þér? Lesendur geta sent myndir og veð­ur­fars­lýs­ingar á ritstjorn@heimildin.is. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár