Vara við vaxandi líkum á eldgosi „með mjög skömmum fyrirvara“

Nýtt hættu­mat Veð­ur­stof­unnar gerir nú ráð fyrir hættu á hraun­flæði inni í Grinda­vík. Landris hefur náð sömu hæð og fyrir síð­asta eld­gos. „Líkurnar aukast með hverjum deg­inum sem líður.“

Vara við vaxandi líkum á eldgosi „með mjög skömmum fyrirvara“
Grinda­vík Gossprungan teygir sig eftir Sund­hnúks­gíga­röð­inni í átt að Grinda­vík til suð­vest­urs. Kviku­gangur náði lengra í átt að bænum en sprungan sýnir. Mynd: VIKEN KANTARCIAFP

„Auknar líkur á eld­gosi,“ segir í nýju hættu­mati Veð­ur­stofu Íslands í kjöl­far sam­ráðs­fundar með vís­inda­mönnum í morgun. Þar sem fram kemur að land­ris sé nú orðið jafn­mikið í Svarts­engi eins og var þegar eld­gosið hófst 18. des­em­ber síð­ast­lið­inn í Sund­hnúks­gíga­röð­inni. „Það er mik­il­vægt að árétta að síð­asta gos hófst með mjög skömmum fyr­ir­vara,“ segir þar. 

Ekki eru þó sömu aðstæður og voru 18. des­em­ber. Í því til­felli hafði hægt á land­ris­inu áður en kvika braust upp í gegnum jarð­skorpuna. „Hraði land­riss­ins síðan 18. des­em­ber hefur hald­ist nokkuð stöð­ugur sem er frá­brugðið stöð­unni fyrir síð­asta gos, en þá hægð­ist á land­risi vik­urnar fyrir gosið. Erfitt er þó að full­yrða um að land­ris hægi á sér í aðdrag­anda næsta goss, en það hefur þó verið til­fellið í gosum sem hafa orðið á Reykja­nesskaga síð­ustu ár og var einnig notað til við­mið­unar í Kröflu­eldum. Óvissa er hins vegar um hversu mik­ill kviku­þrýst­ingur þarf að byggj­ast upp áður en kvika fer að leita upp á yfir­borðið.“

Í nýju hættu­mat­skorti Veð­ur­stof­unnar, sem var upp­fært eftir „sam­túlkun gagna á sam­ráðs­fundi vís­inda­fólks“ í morgun, hefur það breyst að nú er gert ráð fyrir hugs­an­legu hraun­flæði og gasmengun í Grinda­vík. „Ástæða breyt­ing­anna eru auknar líkur á eld­gosi norðan Grinda­víkur.“

Nýtt hættu­mat­skortSamkvæmt nýju hættu­mat­skorti Veð­ur­stof­unnar fyrir Sund­hnúks­gíga­röð­ina og nágrenni er enn metin hætta á hraun­flæði í Grinda­vík. „Fyr­ir­vari á nýjum gosopn­unum getur verið mjög stuttur,“ segir þar.

Veð­ur­stofan varar við skömmum fyr­ir­vara ef til goss kemur og er sól­ar­hrings­vöktun yfir­stand­andi. Íbúum í Grinda­vík er á sama tíma í sjálfs­vald sett hvort þeir dvelji í bænum eða ekki.

„Á meðan að kviku­söfnun heldur áfram undir Svarts­engi eru líkur á öðru kviku­hlaupi og að það leiði til eld­goss. Líkurnar aukast með hverjum deg­inum sem líður. Lík­leg­ast er að það gjósi aftur á Sund­hnúks­gíga­röð­inni, á milli Stóra-Skóg­fells og Haga­fells. Mik­il­vægt er að rifja upp að kviku­hlaup enda ekki alltaf í eld­gosi, eins og dæmi eru um í tengslum við virkn­ina við Fagra­dals­fjall og eins í Kröflu­eldum.“

Tölvu­teiknuð mynd af varn­ar­garði við Grinda­víkRík­is­stjórnin tók til umræðu í morgun að reistir verði varn­ar­garðar norðan við Grinda­vík. Vinna við þá hefst 2. jan­úar síð­ast­lið­inn, ef áformin ganga eftir. Áætlaður kostn­aður við fyrsta áfanga við vinn­una, varn­ar­garða í hálfri hæð, er hálfur millj­arður króna. Heild­ar­kostn­aður verður þó meiri og er gert ráð fyrir mun umfangs­meiri varn­ar­görðum þar en við Bláa lónið.
Varn­ar­garður við Bláa lóniðJarð­varma­virkj­unin í Svarts­engi og bað­stað­ur­inn Bláa lónið eru varin með varn­ar­garði. Garð­ur­inn er nú full­bú­inn.
Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár