Öll gögn komin frá Namibíu

Rannsókn hér­aðs­sak­sókn­ara á hátt­semi starfs­manna Samherja í Namibíu stendur enn yfir. Gögn sem óskað hafði verið eftir með rétt­ar­beiðni frá Namibíu hafa verið form­lega afhent. Beðið er tæki­færis til að taka skýrslur af fólki sem statt er þar syðra.

Öll gögn komin frá Namibíu

Öll gögn í rann­sókn hér­aðs­sak­sókn­ara á hátt­semi Samherja í Namibíu eru komin til lands­ins. Þetta stað­festir Ólafur Þór Hauksson hér­aðs­sak­sókn­ari. Nú er aðeins beðið eftir tæki­færi til að taka skýrslur, eða yfir­heyra, ein­stak­linga sem halda til í Namibíu vegna rann­sókn­ar­innar. Enn er óljóst hvenær þær skýrslu­tökur geta mögu­lega farið fram. Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar eru það ekki aðeins þeir ein­stak­lingar sem sitja í varð­haldi namibískra yfir­valda heldur fleiri. 

Margra ára rannsókn

Rannsókn hér­aðs­sak­sókn­ara á greiðslum frá Sam­herja­tengdum félögum til áhrifa­fólks í Namibíu í skiptum fyrir aðgang að fisk­veiði­heim­ildum hófst í nóv­em­ber árið 2019. Rann­sóknin hefur staðið síðan og hafa níu Íslend­ingar fengið rétt­ar­stöðu sak­born­ings við rann­sókn­ina; þar á meðal Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja.

Tíu eru hins vegar undir ákæru í Namibíu fyrir að taka við pen­ingum frá Samherja og tryggja þeim í stað­inn kvóta til að veiða. Það eru meðal ann­ars tveir fyrr­ver­andi ráð­herrar …

Kjósa
62
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MGÁ
    Marteinn Gísli Árnason skrifaði
    Olafur hysjaðu upp um buxurnar þinar og taktu a malum sem skipta einhverju mali
    hvað hafa mörg mal fyrnst i þinni tið uppa hundruði millj.........
    Svo eyðið þið tima i smamal meðan storu malin fyrnast.
    þu serð nu bara hvað er i gangi hja gömlu Kaupþings klikunni eg nenni ekki að
    fara telja upp allt svineriið sem her viðgengts þeir sem vilja sja sja .. aðrir vilja ekki sja
    og eru blindir þvi miður.
    0
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Sennilega er seinagangurinn, skipun að ofan kominn.😱
    1
  • BK
    Breki Karlsson skrifaði
    Ég var ánægður með það sem var skrifað. En mér fannst eins og greininni væri ekki lokið þegar textinn hætti.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár