Ingó veðurguð sendir annarri konu kröfu

Ingólfur Þór­ar­ins­son, betur þekktur sem tón­list­ar­mað­ur­inn Ingó veð­urguð, sendi á dög­unum kröfu­bréf til konu sem lét niðr­andi ummæli um hann falla á net­inu árið 2022. Sú sem fékk kröf­una segir að hún hafi viljað sýna stuðn­ing við þolendur með ummæl­unum. Lögmaður hans úti­lokar ekki að fleiri slík bréf verði send í fram­tíð­inni.

Ingó veðurguð sendir annarri konu kröfu
Kröfu­bréf Ingólfur Þór­ar­ins­son, eða Ingó veð­urguð, hefur verið dug­legur að senda fólki kröfu­bréf fyrir að halda því fram að hann sé ofbeld­is­maður.

Ingólfur Þór­ar­ins­son, betur þekktur sem tón­list­ar­mað­ur­inn Ingó veð­urguð, sendi á dög­unum kröfu­bréf til konu sem lét ummæli um hann falla á net­inu árið 2022. Þetta stað­festir Auður Björg Jóns­dóttir, lög­maður Ingólfs, í sam­tali við Heim­ild­ina. Hún segir ekki loku fyrir það skotið að fleiri kröfur verði sendar á hendur fólki fyrir að hafa tjáð sig um Ingólf á sam­fé­lags­miðlum með meið­andi hætti.

„Hann ætlar ekki að sitja undir því að vera sak­aður um að nauðga konum og beita ofbeldi,“ segir hún. Í kröfu­bréf­inu var farið fram á að ummælin væru leið­rétt eða aft­ur­kölluð og beðist afsök­unar á þeim. Ingólfur krefur kon­una um greiðslu 250 þús­und króna í miska­bætur og til við­bótar 150 þús­und króna í lög­manns­kostnað, ellegar áskilji hann sér rétt til að fara fram á „fullar miska­bætur honum til handa sem og máls­kostnað“.

Auður tekur fram að þetta sé ekki her­för gegn neinum og seg­ist vona að hægt verði að ná sam­komu­lagi við þá stefndu svo málið endi ekki fyrir dómi. „Það er nátt­úru­lega það sem við vildum helst vilja.“ Ekki er ljóst hvað myndi fel­ast í slíku sam­komu­lagi, en ef marka má kröf­ur­béf er það að við­kom­andi biðji Ingólf afsök­unar, dragi ummæli til baka og greiði miska­bætur.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SA
    Sigurgeir Arnarson skrifaði
    Í mínum huga er Ingólfur ekkert annað en siðlaust kvenfyrirlitningargrey
    2
  • SJ
    Svala Jónsdóttir skrifaði
    Ætlar hann að hafa þetta að féþúfu, að hafa fé út úr konum sem ætluðu ekki að gera annað en að standa með þolendum ofbeldis?
    2
  • Árni Guðnýar skrifaði
    Lítil menni,bara pínu pínu pínu lítill kall
    1
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Best er að fara í gjaldþrot í svona málum. Láta Góa sitja uppi með kostnaðinn.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár