Hin sögulega hefnd 1: Nemmersdorf

Hvenær og hvort rétt­læta hermdar- og hryll­ings­verk að svarað sé í sömu mynt?

Hin sögulega hefnd 1: Nemmersdorf
Þjóð­verjar gerðu svo mikið sem þeir gátu úr skelf­ing­unum í Nemmers­dorf þó þeir könn­uð­ust ekki við nein ill­virki sinna manna. Mynd: Wikipedia

Maja­kovskoje heitir þús­und manna sveita­þorp í Kal­inín­grad-hér­aði í Rúss­landi. Það stendur við hljóða bugðu á ánni Angrapa, í kring er marflatt land, skóg­ar­lundir hér og hvar á jöðrum túna og akra, húsin í þorp­inu eru lágreist flest og standa dreift. Þarna er skóli og félags­heim­ili en ann­ars lítið um þjón­ustu því ekki eru nema 7 kíló­metrar til hér­aðs­höf­uð­borg­ar­innar Gusev í norð­austri.

Það er fátt fólk á ferli venju­lega og aðkomu­fólki fyr­ir­gefst þótt það hugsi: Mikið er þetta syfju­legt þorp, hér hefur áreið­an­lega aldrei neitt gerst.

En það aðkomu­fólk hefði rangt fyrir sér. Í októ­ber árið 1944 varð Maja­kovskoje vissu­lega vett­vangur sögu­legra atburða – en íbú­arnir, sem þá voru, vildu að hefðu ekki gerst.

Þýskir riddarar nema land

Í þá daga hét Maja­kovskoje Nemmers­dorf. Þorpið tók að byggj­ast í byrjun 16. aldar og fyrstu íbú­arnir voru þýskir bændur sem flutt­ust þangað austur þegar tevtónskir ridd­arar frá Þýska­landi tóku stór land­flæmi að léni frá Pól­verjum og Litáum. Þjóð­verjar styrktu svo smátt og smátt yfir­ráð sín uns þarna hét hið þýska Prúss­land og varð hluti sam­ein­aðs Þýska­lands á 19. öld.

Október 1944Útlín­urnar eru þó nútíma­landa­mæri. Þýska borgin Kön­ings­berg er nú rúss­neska borgin Kal­inín­grad.

Íbúar í Nemmers­dorf rækt­uðu aðal­lega hesta og naut­gripi þessar ald­irnar. Þegar síð­ari heims­styrj­öldin hófst fóru margir ungu mann­anna í stríðið en í stað­inn fengu þorps­búar nokkra tugi stríðs­fanga frá Frakk­landi og Belgíu til að vinna störfin. Heima­fólk í Nemmers­dorf gladd­ist yfir vel­gengni þýsku herj­anna í stríð­inu fyrstu árin en ann­ars fer ekki sögum af því að það hafi verið sér­lega harðsvíraðir nas­istar.

Skriðdrekahetjan Maria Oktyabrskaya

En haustið 1944 var heldur betur farið að halla undan fæti. Hin mikla inn­rás Hitlers í Sov­ét­ríkin hafði mis­heppn­ast og sov­éski her­inn var nú kom­inn að landa­mærum hins gamla Prúss­lands. Þann 21. októ­ber braust 25. skrið­dreka­fylki 2. stór­deildar Rauða hers­ins nokkuð óvænt fram yfir brú yfir Angrapa við Nemmers­dorf og hugð­ist sækja þaðan að Rominta-fljóti við Gusev sem þá hét Gumbinnen.

Þessi skrið­dreka­sveit hafði fyrst látið að sér kveða í orr­ust­unni við Stalín­grad og síðan tekið þátt í flest­öllum grimmi­leg­ustu skrið­dreka­orr­ustum á aust­ur­víg­stöðv­unum. Frægasti skrið­dreka­for­ingi sveit­ar­innar var hin úkra­ínska Maria Oktya­brskaya, ein af sára­fáum konum sem stýrðu skrið­drekum gegn her­sveitum Hitlers, en hún særð­ist til ólífis þegar Rauði her­inn sótti að Vitebsk í Belarús snemma á árinu.

Nú var skrið­dreka­sveitin hennar Mariu heit­innar einna fyrst her­sveita Rauða hers­ins til að athafna sig á þýsku land­svæði.

Föðurlandið í hættu!

Þjóð­verjar brugð­ust við af gíf­ur­legri hörku. Þetta mátti ekki láta líð­ast. Föð­ur­landið sjálft í hættu! Svo flug­her­inn Luftwaffe tók á því sem hann átti með loft­árásum á rauðu her­sveit­irnar, allir skrið­drekar í nágrenn­inu voru sendir af stað til að ná aftur brúnni yfir Angrapa og reka Sov­ét­menn burt frá Nemmers­dorf og fáeinum öðrum smá­þorpum sem þeir höfðu náð í árás 2. stór­deild­ar­innar.

Daginn eftir skip­aði Alexei Búdeinei, hinn úkra­ínski hers­höfð­ingi stór­deild­ar­innar, 25. fylk­inu að hopa aftur yfir Angrapa. Síðan komst kyrrð á uns ný sov­ésk stór­sókn hófst eftir ára­mót.

Nú hefði mátt ætla að bar­dag­inn um Nemmers­dorf hefði endað sem stutt neð­an­máls­grein í sögu stríðs­rekstr­ar­ins. Þetta var jú einn af síð­ustu sigrum þýska hers­ins á þeim Rauða á aust­ur­víg­stöðv­unum, þótt ekki væri hann stór. En Goebbels, áróð­urs­mála­ráð­herra nas­ista, sá sér nú leik á borði.

Goebbels skipar alþjóðlega rannsóknarnefnd

Svo var mál með vexti að þótt her­menn Rauða hers­ins hefðu ekki haft langa við­dvöl í Nemmers­dorf hafði þeim þó unn­ist tími til að vinna þar hin voða­leg­ustu ill­virki. Goebbels lét þegar í stað kalla saman „óháða alþjóð­lega rann­sókn­ar­nefnd“ sem eist­neski stjórn­mála­mað­ur­inn Hjalmar Mäe stýrði en með honum sátu í nefnd­inni Spán­verji, Svíi og Sviss­lend­ingur. Nefnd­ar­menn fóru til Nemmers­dorf þar sem lík fórn­ar­lamba Rauða hers­ins lágu sem hrá­viði og skil­uðu svo skýrslu sem vissu­lega var hroll­vekj­andi.

Á innan við tveimur sól­ar­hringum hefðu sov­ésku dát­arnir myrt með ísköldu blóði að minnsta kosti 74 vopn- og varn­ar­lausa óbreytta borg­ara, sagði í skýrsl­unni, þar á meðal ung börn og gam­al­menni. Tugum kvenna, raunar öllum konum í þorp­inu, hafði verið nauðgað. Þær voru á aldr­inum 8 ára til rúm­lega átt­ræðs. Nokkrar kvenn­anna höfðu verið „kross­festar“ með því að negla þær lif­andi á hlöðu­dyr.

Stríðsfangar drepnir

Ekki var nóg með þetta heldur höfðu Rauðu her­menn­irnir einnig drepið um það bil 50 franska og belgíska stríðs­fanga. Þeir höfðu talið að Rauði her­inn væri kom­inn til að frelsa þá úr prís­und þeirra en það fór sem sé á annan veg. Til­gang­ur­inn með þessum drápum virt­ist hafa verið að ná af föng­unum hringum sem þeir báru. Fingur höfðu verið slitnir eða skornir af föng­unum flestum.

Goebbels gerði mikið úr nið­ur­stöðum nefnd­ar­innar í byrjun jan­úar 1945. Skelfi­legar myndir frá Nemmers­dorf voru sýndar í þýskum kvik­mynda­húsum. Nákvæmar lýs­ingar á hryll­ings­verk­unum glumdu úr útvarp­inu.

„Svona mun fara fyrir allri þýsku þjóð­inni ef hún verst ekki villi­mönn­unum úr austri!“ grenj­uðu útvarps­þul­irnir. „Sýnið stað­festu og dug, þýska þjóð!“

Rannsókn á rannsókninni

Nú er frá því að greina að sov­éska her­stjórnin hafði lítt eða ekki fyrir því að svara ásök­unum um myrkra­verk her­manna Rauða hers­ins. Öllu slíku var ein­fald­lega hafnað en látið þar við sitja. Svo var og um nið­ur­stöðu nefndar Hjalmars Mäe. Eftir að Sov­ét­menn sett­ust yfir ráð Þjóð­verja í austri í kalda stríð­inu sá Austur-Þýska­land sér ekki hag í því að halda á lofti grimmd­ar­verkum Rauða hers­ins.

Eftir hrun komm­ún­ism­ans bæði í Austur-Þýska­landi og hinum föllnu Sov­ét­ríkjum voru atburðir í Nemmers­dorf (sem þá hafði fengið nafnið Maja­kovskoje) rann­sak­aðir upp á nýtt. Nið­ur­staðan var sú að vissu­lega hefði áróð­urs­mála­ráðu­neyti Goebbels ýkt að ein­hverju leyti grimmdaræðið í Nemmers­dorf. Mynd­irnar af kon­unum kross­festu hefðu til dæmis ekki verið teknar þar. Sumum myndum af líkum hafði greini­lega verið hag­rætt.

En þrátt fyrir það væri þó deg­inum ljós­ara að í Nemmers­dorf hefðu her­menn Rauða hers­ins vissu­lega framið villi­mann­leg ódæði síðla í októ­ber 1944.

„Ég kem frá brenndu þorpi“

Og svo er líka frá því að greina að skelf­ing­ar­verk Rauðu her­mann­anna voru ekki unnin í tóma­rúmi. Um leið og þýski her­inn réð­ist inn í Sov­ét­ríkin í júní 1941 hófst hann handa um svo hrotta­leg ill­virki, fjöldamorð og -nauðg­anir, að þess eru fá ef nokkur dæmi í ver­ald­ar­sög­unni. Þar voru vel að merkja ekki aðeins á ferð SS-menn eða með­limir hinna við­ur­styggi­legu Einsatzgruppen. Sum af ógn­ar­leg­ustu ill­verk­unum voru framin af venju­legum þýskum her­mönnum, skrif­stofu­mönnum, bænda­sonum, iðn­að­ar­mönnum, stúd­entum og þeir voru alveg ótil­neyddir.

Ef ykkur langar til að sofa ekki fyrir við­bjóðs­hrolli ein­hverja nótt­ina skuluð þið lesa bók­ina Ég kem frá brenndu þorpi eftir Ales Adamovich, læri­meist­ara Svetlönu Alexievich. Þar segja vitni frá fram­gangi þýskra her­manna í nokkrum þeirra 628 þorpa í Belarús sem voru upp­rætt í seinni heims­styrj­öld­inni og nær allir íbú­arnir drepnir. Hvert og eitt þorp álíka glæpur eða meiri en Nemmers­dorf. Og 337.000 Hví­trússar voru fluttir í þrælk­un­ar­vinnu í Þýska­landi. Fæstir þeirra sneru aftur.

Bók Adamovich, þó ekki allra hroða­leg­ustu kafl­arnir, var grunn­ur­inn að hinni lítt bæri­legu kvik­mynd Elems heit­ins Klimovs, Komdu og sjáðu.

Réttlát hefnd?

Vita­skuld megum við aldrei líta svo á að skelf­ing­arnar í Nemmers­dorf hafi verið ein­hvers konar rétt­lát hefnd fyrir glæpi þýskra her­manna í Belarús og víðar. Einhvern tíma verður mann­skepnan að læra að rjúfa víta­hring blóð­hefnda. En spurn­ingin er líka hvort notkun slíkra voða­verka í áróð­urs­skyni skili til­ætl­uðum árangri.

Goetz Oertel var 10 ára sonur for­stjóra í stórri hveitifram­leiðslu í bænum Stuhm í Prúss­landi, rúma 200 kíló­metra í vest­ur­átt frá Nemmers­dorf. Hann minnt­ist þess síðar að jólin 1944 hefðu verið ynd­is­leg. Fjöl­skyldan vissi að Sov­ét­menn höfðu sótt fram að landa­mærum Prúss­lands haustið áður en ekki hvarfl­aði annað að þeim en marg­boðuð leyni­vopn þýska hers­ins og stað­festa for­ingj­ans kæmu í veg fyrir að ráð­ist yrði inn í þýskt land.

„Nemmersdorf breytti öllu“

„Rúss­arnir voru ekki víðs fjarri en við vissum varla af því. Þaðan af síður vissum við hve varnir okkar voru orðnar veikar og myndu ekki stand­ast næstu alvöru­sókn. [...] Þetta voru frið­sæl og fal­leg jól. Við töldum alveg öruggt að Þýska­land myndi vinna stríðið. Ef Rúss­arnir næðu að leggja undir sig spönn af þýsku landi yrðu þeir fljótt hraktir til baka.“

„Þetta voru frið­sæl og fal­leg jól. Við töldum alveg öruggt að Þýska­land myndi vinna stríðið.“

En aðeins rétt eftir ára­mótin tók Goebbels að hamra á hryll­ingnum í Nemmers­dorf.

„Nas­ist­arnir not­uðu þetta til að byggja upp bar­áttu­þrek fólks, eða svo héldu þeir. Þeir gerðu mikið úr þessu í bæði blöðum og útvarpi. En í stað­inn fyrir að efla bar­áttu­and­ann sögðu þessar fréttir hverjum Þjóð­verja að þeim væri holl­ast að koma sér á burt áður en Rúss­arnir kæmu. Í einu vet­fangi varð það mik­il­væg­asta verk­efni hvers Þjóð­verja í austr­inu, að kom­ast burt. Nemmers­dorf réði úrslitum, það breytti hug­ar­á­standi allra,“ sagði Oertel.

Og það sem gerð­ist í Nemmers­dorf átti eftir að end­ur­óma í öðru þýsku þorpi þar sem hefndin og hefndarótt­inn lentu af fullum krafti í maí 1945:

Demmin.

Skoðum það eftir viku.

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jack Fransis skrifaði
    The German Foreign Ministry admitted that the Nemmersdorf fake was prepared by Lieutenant Pfeiffer from the secret military police of Wehrmacht. Please be careful with facts.
    1
  • Einar Strand skrifaði
    Það er ekkert til sem réttlætir ofbeldi þess vegna þoli ég ekki íslenskt fjölmiðlafólk sem virðist geta skipt morðum í "góð" morð og "vond" morð eftir hver fyrir verður. Illugi ég veit að þú veist hvað ég er að tala um, lengi vel var framganga Sovétríkjanna í Úkraínu lögð í þagnargildi í fjölmiðlum á Íslandi líka hefur lítið farið fyrir umfjöllun um hvað Úkraínumenn voru hallir undir Þjóðverja í síðari heimsstyrjöldinni einnig hefur lítið farið fyrir umfjöllun um hvað gerðist í Úkraínu eftir 2011. Sama má segja um átökin fyrir botni Miðjarðarhafs sem eru svo flókin og full af svikum í allar áttir, hvað þá að fjallað sé um þátt okkar Íslendinga í þeirri sorgarsögu.
    Kannski er stóra málið að sagnfræði snýst allt of sjaldan um sannleikann heldur þann sannleika sem sá sem pennanum stýrir í það og það skiptið vill sýna.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár