Spurningaþraut Illuga 22. september 2023

Spurningaþraut Illuga 22. september 2023
Fyrri mynd Í hvaða geysi­vin­sælu banda­rísku sjón­varps­s­eríu lék hán aðal kven­rull­una fyrr á árinu?

1.  Hver er vin­sælasta kvik­myndin á alþjóða­vett­vangi það sem af er ári?

2.  Hver leikur aðal­kven­hlut­verkið í þeirri mynd?

3.  Hvað selur fyr­ir­tækið Smith & Norland hér á landi?

4.  En hvað fram­leiðir fyr­ir­tækið Smith & Wesson?

5.  Hver er stærsta eyjan við Ísland?

6.  Banda­rísk yfir­völd aug­lýstu á dög­unum eftir hlut sem hvarf um helg­ina. Athygli vakti að hlut­ur­inn kostar alla jafna um 13 millj­arða íslenskra króna. Hvað var þetta?

7.  Glódís Perla Vigg­ós­dóttir var um dag­inn gerð að fyr­ir­liða með því virta fót­boltaliði sem hún spilar með. Hvaða lið er það?

8.  En með hvaða fót­boltaliði spilar Lionel Messi?

9.  Í hvaða landi heitir höf­uð­borgin Prag?

10.  Vömb, keppur, laki og ... hvað?

11.  Hvaða ár voru Nóbels­verð­launin fyrst veitt? Var það 1891 – 1901 – 1911 – 1921?

12.  Í hvaða húsi við Tjörnina í Reykja­vík er nú haldið úti leik­sýn­ingum?

13.  Frédéric Auguste Bart­holdi var franskur mynd­höggv­ari. Svona list­rænt séð þótti hann ekki endi­lega í fremstu röð en ein högg­mynd hans hefur þó í 150 ár verið ein sú fræg­asta í heimi. Hver er sú?

14.  Hvað heitir stór­fljótið sem fellur um Kyiv í Úkraínu?

15.  En hvað heitir áin sem fellur um Moskvu­borg?

Seinni myndÍ hvaða borg er þessi ljós­mynd tekin?

Svör við mynda­spurn­ingum:

Á fyrri mynd­inni er Bella Ramsey sem leikur í ser­í­unni The Last of Us. Seinni myndin er tekin í Sívalaturni í Kaup­manna­höfn.

Svör við almennum spurn­ingum:

1.  Barbie. – 2.  Margot Robbie. – 3.  Heim­il­is­tæki, raf­magns­vörur. – 4.  Byssur.  – 5.  Heimaey.  – 6.  Herþota. Flugvél dugar ekki.  – 7.  Bayern München.  – 8.  Inter Miami.  – 9.  Tékk­landi. – 10.  Vinstur.  Þetta eru maga­hólf jórt­ur­dýra.  – 11.  1901.  – 12.  Tjarn­ar­bíói.  – 13.  Frels­is­styttan. – 14.  Dníepr.  – 15.  Moskva. 

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár