Ölgerðin skoðar að sækja skaðabætur - „Reiðarslag fyrir íslenska neytendur“

For­stjóri Ölgerð­ar­innar skoðar að sækja skaða­bætur vegna ólög­mæts sam­ráðs Samskipa og Eimskips, og kallar sam­ráðið svik við íslenska neyt­endur. Samskip voru á dög­unum sektað um 4,2 millj­arða vegna þess. Skýrsla Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins hafi afhjúpað við­skipta­hætti sem séu Ölgerð­inni óskilj­an­legir.

Ölgerðin skoðar að sækja skaðabætur - „Reiðarslag fyrir íslenska neytendur“

„Þær upp­lýs­ingar sem fram komu í rann­sókn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins eru reið­ar­slag fyrir íslenska neyt­endur, svik við okkur sem einn stærsta við­skipta­vin Eimskipa á þessum tíma, svik við við­skipta­vini okkar og afhjúpar við­skipta­hætti sem eru okkur algjör­lega óskilj­an­legir,“ segir Andri Þór Guð­munds­son, for­stjóri Ölgerð­ar­innar, í til­kynn­ingu frá félag­inu. 

Sam­keppn­is­eft­ir­litið lagði á dög­unum 4,2 millj­arða króna sekt á Eimskip vegna sam­ráðs­ins. Fyrir tveimur árum gekkst Eimskip undir sátt þar sem við­ur­kennt var að hafa brotið gegn sam­keppn­is­lögum og greiddi sekt upp á 1,5 millj­arð. 

Í til­kynn­ingu frá Ölgerð­inni er bent á að gögnum Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins komi meðal ann­ars fram að þegar Ölgerðin gerði athuga­semdir við verð­hækk­anir Eimskipa vegna flutn­ings­þjón­ustu fyrir fyr­ir­tækið árið 2009 og fór í fram­hald­inu í útboð um flutn­ing­ana, hafi fyr­ir­tækin tvö ekki aðeins haft sam­ráð um málið, heldur hafi verið lagt fram sýnd­ar­til­boð og verðið síðan hækkað enn frekar.

Stórfellt fjárhagslegt tjón

„Það er deg­inum ljós­ara að sam­ráð skipa­fé­lag­anna hefur valdið okkur og neyt­endum veru­legum skaða og stór­felldu fjár­hags­legu tjóni og við erum að skoða þann mögu­leika að sækja skaða­bætur í ljósi nið­ur­stöðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins,“ segir þar. 

Áratugur er lið­inn síðan eft­ir­litið hóf að rann­saka brot fyr­ir­tækj­anna tveggja á sam­keppn­is­lögum. En atburða­rásin hófst á hru­nár­inu 2008. Sam­keppn­is­eft­ir­litið gaf út nákvæma lýs­ingu á atburðum, brotum og afleið­ingum þeirra í 15 bindum í gær. Um er að ræða þús­undir blað­síðna af efni.

Samskip gagnrýnir niðurstöðuna

Samskip hafa gagn­rýnt harð­lega nið­ur­stöðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og sendu frá sér yfir­lýs­ingu í kjöl­far hennar um að það hafi tekið þau þrettán ár að „teikna upp full­kom­lega ranga mynd af rekstri Samskipa og ætl­uðu sam­ráði við Eimskip“. Þar var því einnig hafnað að for­stjórum fyr­ir­tækj­anna væri vel til vina en í skýrsl­unni sagði til að mynda að þeir hefðu til­heyrt sama vina­hópi og farið saman í golf og utan­lands­ferðir.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samráð skipafélaga

FréttirSamráð skipafélaga

Sam­fé­lags­legt tjón af sam­ráði skipa­fé­lag­anna metið á 62 millj­arða

Kostn­aður íslensks sam­fé­lags vegna ólög­legs sam­ráðs Eimskips og Samskipa er met­inn 62 millj­arðar króna í nýrri grein­ingu Analytica. Stærstur hlut­inn er sagður hafa lent á neyt­endum vegna hærri kostn­aðar á inn­fluttum vörum og þeim sem skulda verð­tryggð lán. „Dýrkeypt og hrika­leg aðför að neyt­endum,“ segir for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna.
FréttirSamráð skipafélaga

Mútur og sam­ráð í skipa­flutn­ingi með dag­blaða­pappír

Samskip er sagt hafa greitt kanadískum miðl­ara mútur gegn því að dag­blaða­pappír fyrir íslensk fyr­ir­tæki væri fluttur með Sam­skipum. Þetta kemur fram í skýrslu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um sam­ráð skipa­fé­lag­anna þar sem rakið er hvernig greiðsl­unum var haldið leyndum fyrir inn­flytj­endum hér á landi. Samskip og miðl­ar­inn neita.

9 mín. lestur

FréttirSamráð skipafélaga

Lyk­il­maður í sam­ráði víkur ekki úr stjórn líf­eyr­is­sjóðs

Fyrr­ver­andi for­stjóri Samskipa, Pálmar Óli Magn­ús­son, sem lýst er sem arki­tekt og lyk­il­manni í sam­ráðs­brotum fyr­ir­tæk­is­ins í úrskurði Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, ætlar ekki að víkja úr stjórn­ar­for­manns­stóli eins stærsta líf­eyr­is­sjóðs lands­ins. Hann var skip­aður í stjórn nokkrum dögum áður en hann var yfir­heyrður vegna gruns um lög­brotin. SA með skipan hans til skoð­unar.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár