Efast um að Íslandsbankaskýrslan hefði birst fyrir hrun

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra telur að skýrsla á við þá sem Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands gaf út í gær hefði ekki litið dags­ins ljós fyrir efna­hags­hrunið árið 2008.

Mér er það til efs að hún hefði litið dags­ins ljós á árunum fyrir hrun,“ segir Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra um skýrslu sem Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands birti í gær vegna lög­brota Íslands­banka við sölu á 22,5 pró­senta hlut rík­is­ins í bank­anum. 

Katrín bendir á að reglu­verkið á fjár­mála­mörk­uðum sé gjör­breytt frá því sem var fyrir hrun. 

„Ég tel að að ein­hverju leyti sýni þessi fer­ill að við höfum staðið okkur vel, margar rík­is­stjórnir frá hruni, í að byggja upp þetta reglu­verk,“ segir Katrín sem við­ur­kennir þó að það séu mikil von­brigði að sjá regl­urnar brotnar. 

Hún segir skýrsl­una mik­il­vægan þátt í upp­gjör­inu vegna söl­unnar. Ríkið á enn um 40% í bank­anum og sagði fjár­mála­ráð­herra í sam­tali við Heim­ild­ina fyrr í dag að mik­il­vægt væri að hætta ekki við áform um að losa um þann eign­ar­hlut rík­is­ins. 

Katrín segir Vinstri græn sam­mála því að selja megi frek­ari hlut í bank­anum. 

„En það verður þá með breyttu fyr­ir­komu­lagi og þetta má ekki end­ur­taka sig,“ segir Katrín. 

Spyr að leikslokum í fylgismálum

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir mæld­ust sam­an­lagt með 34,2 pró­sent fylgi í könnun Maskínu sem birt var í morgun: Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stærstur með 18,5 pró­sent, Fram­sókn­ar­flokkur með 8,8 pró­sent og Vinstri græn slétt 7 pró­sent.

Katrín telur að þrá­lát verð­bólga og vaxta­hækk­anir hafi sitt að segja um lágt fylgi.

„En ég er líka mjög sann­færð um það að mín hreyf­ing er að skila þeim verkum sem við ætl­uðum okkur að gera þannig að eins og allir stjórn­mála­menn segja: Við spyrjum að leikslokum í þessu eins og öðru.“

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Katrín er hálfvolg í þessu sem fleiru. Eftir því er tekið, að Vg styður ekki, að Íslandsbakamálið verði rannsakað ofan í kjölinn.
    1
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Skýrslan hefði birst og Katrín veit það. En núna er eftirlitið ekki sjálfstætt, skattrannsoknir dauðar og Katrín styður villta vestrið. Þetta var einfaldlega of gróft brot til að hunsa.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár