Bjarni Benediktsson: Væri heppilegra að hleypa öllum að útboðinu næst

Fjár­mála­ráð­herra telur frek­ari sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka skyn­sam­lega þó hún sé ekki á áætlun strax. Almennt útboð þar sem öll geta tekið þátt væri að mati ráð­herr­ans heppi­legri leið en sú sem var farin síð­ast.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra segir það ekki hans hlut­verk að krefj­ast þess að stjórn­endur Íslands­banka segi af sér vegna þeirra lög­brota sem framin voru í bank­anum við sölu á 22,5 pró­senta hlut rík­is­ins í honum. Aftur á móti sé ekki óeðli­legt að nú sé rætt um hvort manna­breyt­ingar þurfi að eiga sér stað innan bank­ans. 

Skýrsla Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands (FME) um brot bank­ans málar upp dökka mynd af því hvernig staðið var að söl­unni á hlut rík­is­ins. Íslands­banki hefur geng­ist við því að hafa brotið lög í ferl­inu. 

Sátt FME og bank­ans, sem mun greiða sögu­lega háa sekt vegna máls­ins, var rædd á fundi rík­is­stjórnar og ráð­herra­nefndar um efna­hags­mál í morgun.

Andstaðan syngi alltaf sama sönginn

Stjórn­ar­and­staðan kall­aði eftir afsögn Bjarna eftir að skýrslan var gefin út, en ekki er tekið á hlut­verki hans við und­ir­bún­ing söl­unnar í skýrsl­unni. Í henni er fjallað um hlut Íslands­banka í mál­inu. Stjórn­ar­and­staðan segir samt sem áður að ábyrgðin liggi hjá Bjarna sem fjár­mála­ráð­herra.

Hann seg­ist sakna þess að heyra eitt­hvað frum­legt eða mál­efna­legt frá stjórn­ar­and­stöð­unni. 

„Stjórn­ar­and­staðan syngur alltaf sama söng­inn,“ segir hann. 

Umrædd stjórn­ar­and­staða hefur einnig kraf­ist þess að sér­stök rann­sókn­ar­nefnd verði skipuð vegna söl­unnar. Það hefur rík­is­stjórnin ekki tekið vel í. 

„Ég spyr þá sem kalla eftir sér­stakri rann­sókn­ar­nefnd: Hvar höfum við séð vís­bend­ingar um að Rík­is­end­ur­skoðun eða núna eftir atvikum fjár­mála­eft­ir­litið skorti ein­hverjar vald­heim­ildir til að varpa ljósi á málið? Ég sé engin merki um það. Þvert á móti sé ég ekki annað en að allt það sem máli skiptir hafi fengið skoðun, öllu hafi verið velt upp og það hafi verið tekið á því í sam­hengi við til­efnið.“

En FME hefur ekki heim­ild til þess að rann­saka þitt hlut­verk? 

„Mitt hlut­verk hefur verið rann­sakað sér­stak­lega af rík­is­end­ur­skoð­anda. Það er hans hlut­verk að hafa eft­ir­lit með fram­kvæmda­vald­inu og hann hefur til þess mjög víð­tækar heim­ildir. Reyndar er umboðs­maður Alþingis líka með víð­tækar heim­ildir.“

Jákvæður frumjöfnuður stoppi í gatið

Ríkið á enn rúm 40 pró­sent í Íslands­banka og gerði rík­is­stjórnin ráð fyrir því að losa um þann hlut á þessu ári til þess að hjálpa til við að fjár­magna rík­is­sjóð. Nú er ekki útlit fyrir að slík sala fari í gegn á þessu ári. Spurður um gatið sem mynd­ast í fjár­lögum segir Bjarni að for­sendur hafi breyst og að afkoma rík­is­sjóðs sé mun betri í ár en gert var ráð fyrir í fjár­mála­frum­varp­inu. 

„Það birt­ist okkur í frum­jöfn­uð­inum sem stefnir í að fara 90 millj­arða fram úr því sem við áður áætl­uðum. Það vinnur upp fjár­mögn­un­ar­þörf­ina sem mynd­ast við það að við seljum ekki bank­ann og gott betur en það,“ segir Bjarni og vísar þá í að nýleg þjóð­hags­spá Seðla­banka Íslands gerir ráð fyrir að frum­jöfn­uður rík­is­sjóðs, þ.e. afkoma að frá­töldum vaxta­gjöldum, verði jákvæður um nærri 44 millj­arða króna í ár. Er það 90 millj­örðum betri afkoma en útlit var fyrir þegar fjár­lögin voru sam­þykkt í des­em­ber síð­ast­liðnum. 

100 milljarðar á borðinu

En Bjarni telur samt væn­legt að selja hlut rík­is­ins í bank­anum í fram­tíð­inni. 

„Ég bendi á það að það að selja hlut eins og þann sem ríkið á núna í Íslands­banka myndi mögu­lega útvega rík­is­sjóði svona 100 millj­arða sem við þá þyrftum ekki að taka, en ef við þyrftum að taka þá pen­inga að láni þá erum við að gera það núna á til­tölu­lega slæmum kjörum borið saman við und­an­farin ár þannig að það eru mjög miklir hags­munir í því að við hættum ekki við áform um að losa um eign­ar­hlut­inn í Íslands­banka.“

Þú sérð fyrir þér að það verði gert, bara ekki alveg strax? 

„Við þurfum bara að skapa aðstæður til þess eins og við getum gert og svo þurfa auð­vitað ytri aðstæður að vera hag­felldar þannig að það sé hag­fellt fyrir rík­is­sjóð að losa um eign­ar­hlut­inn miðað við mark­aðs­að­stæður,“ segir Bjarni. 

Hvernig munið þið gera þetta öðru­vísi næst? 

„Ég held að við séum í grófum dráttum sam­mála um það að almennt útboð þar sem allir ættu kost á að taka þátt væri heppi­legri leið. Það er ekki leið sem gefur kost á að selja jafn stóran hlut á jafn skömmum tíma eins og var gert með þessu fyr­ir­komu­lagi sem var síð­ast en það er leið sem á margan annan hátt er heppi­legri,“ segir Bjarni. 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Grétar Reynisson skrifaði
    Gjaldþrotasmiðir fyrirhrunsáranna sem ekkert hafa lært í 15 ár eiga ekki að leiða umræðuna um sölu á eignarhlutum ríkisins í fjármálastofnunum.
    0
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    "Mitt hlutverk hefur verið rannsakað sérstaklega af ríkisendurskoðanda...." Lygi. Aðeins að takmörkuðu leiti.
    0
  • Björg Sverrisdóttir skrifaði
    Bjarni syngur alltaf sama lygasönginn
    0
  • MB
    Magnús Bjarnason skrifaði
    „Væri heppilegra að hleypa öllum að útboðinu næst“ spyr Bjarni. Svarið er Já.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár