Samfylkingin langstærst í nýrri könnun

Sam­fylk­ingin nálg­ast 30 pró­senta fylgi, sam­kvæmt nýrri könnun, á meðan rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir halda áfram að missa stuðn­ing. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir nið­ur­stöðu síns flokks óásætt­an­lega.

Samfylkingin langstærst í nýrri könnun
Rífur upp fylgið Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar hefur batnað veru­lega eftir að Kristrún Frosta­dóttir tók við sem for­maður flokks­ins. Mynd: Baldur Kristjánsson

Sam­fylk­ingin mælist langstærst í nýrri könnun Maskínu með 27,2 pró­senta fylgi. Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir mæl­ast sam­an­lagt með 34,2 pró­sent fylgi; Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stærstur með 18,5 pró­sent, Fram­sókn­ar­flokkur með 8,8 pró­sent og Vinstri græn slétt 7 pró­sent. Vísir greindi frá nið­ur­stöð­unum í morgun.

„Við höfum legið mjög lágt í könn­unum að und­an­förnu,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna, um nið­ur­stöður könn­unnar í beinni útsend­ingu í Pall­borð­inu á Vísi, þar sem greint var frá könn­un­inni. Bætti hún við að þetta kæmi sér ekki á óvart.

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði könn­un­ina ekki sýna mikla breyt­ingu, væri innan vik­marka við aðrar nýlegar kann­anir, en var engu að síður von­svik­inn. „Þetta er óásætt­an­leg mæl­ing fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn,“ sagði Bjarni í þætt­inum. „En meira að segja nið­ur­staða kosn­inga er ekki í sam­ræmi við okkar til­finn­ingu um sam­hljóm með stefnu­málum Sjálf­stæð­is­flokks­ins.“

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, virt­ist rólegur yfir nið­ur­stöð­unni og benti á að á svip­uðum tíma á síð­asta kjör­tíma­bili hafi flokk­ur­inn mælst með fimm pró­senta stuðn­ing. „Það er aldrei gaman að fá lélegar mæl­ingar. Við erum búin að vera sex ár í rík­is­stjórn og það eru áskor­anir í efna­hags­málum semr eru dálítið sér­stakar,“ sagði hann.

Í könn­un­inni mæl­ast Píratar með 11,3 pró­senta fylgi, Viðreisn 9,7 pró­sent, Flokkur fólks­ins 6,6 pró­sent, Mið­flokk­ur­inn 6,3 pró­sent og Sós­í­alista­flokk­ur­inn 4,7 pró­senta fylgi.

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Auður Styrkársdóttir skrifaði
    Samfylkingin 27,2 prósent; Píratar 11,3%; Viðreisn 9,7%.
    Samkvæmt nýrri Maskínukönnun samtals = 48,2%.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár