Mun aldrei láta fjölskyldutengsl hafa áhrif

Helsta áskor­unin sem verð­andi fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins stendur frammi fyrir er að ná tökum á verð­bólgu og háu vaxta­stigi að eigin sögn. Sigríður Margrét Odds­dóttir er fyrsta konan sem gegnir starfi fram­kvæmda­stjóra SA.

Mun aldrei láta fjölskyldutengsl hafa áhrif
Fram­kvæmda­stjóri Sigríður Margrét Odds­dóttir tekur við sem fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins í sept­em­ber og fer beint inn í kjara­við­ræður. Mynd: Aðsend

„Þetta er enn eitt gler­þakið sem verið er að brjóta,“ segir Sigríður Margrét Odds­dóttir, for­stjóri Lyfju, sem hefur störf sem fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins í haust. Ráðning Sigríðar er sögu­leg þar sem hún verður fyrsta konan sem mun gegna stöðu fram­kvæmda­stjóra sam­tak­anna. 

Ráðning Sigríðar Mar­grétar var til­kynnt í vik­unni en tæpir þrír mán­uðir eru síðan til­kynnt var um það að Halldór Benjamín Þor­bergs­son ætl­aði að hætta sem fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins til að taka við stöðu for­stjóra hjá fast­eigna­fé­lag­inu Reginn. Átta manna fram­kvæmda­stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins sá um ráðn­ing­ar­ferlið og telur Eyjólfur Árni Rafnsson, for­maður SA, að ferlið hafi ekki verið óeðli­lega langt. 

Kröfuharður stjórnandi og kröfuhörð á sjálfa sig

Tvær konur munu leiða Samtök atvinnu­lífs­ins frá og með næsta hausti en Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir er aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri SA. Hún er einnig mág­kona Sigríðar Mar­grétar og segir hún að fram­kvæmda­stjórnin hafi verið upp­lýst um það í ráðn­ing­ar­ferl­inu. Tengsl þeirra munu ekki hafa áhrif á starf hennar sem fram­kvæmda­stjóri að eigin sögn. „Alls ekki. Þeir sem að þekkja mig og mín vinnu­brögð vita að ég er bæði kröfu­harður stjórn­andi og kröfu­hörð á sjálfa mig og ég hef hingað til og mun hér eftir aldrei láta fjöl­skyldu­tengsl hafa áhrif á ákvarð­ana­töku hjá mér.“

„Þeir sem að þekkja mig og mín vinnu­brögð vita að ég er bæði kröfu­harður stjórn­andi og kröfu­hörð á sjálfa mig.“

Sigríður Margrét hefur starfað sem fram­kvæmda­stjóri og for­stjóri íslenskra fyr­ir­tækja í tæp tutt­ugu ár, meðal ann­ars hjá upp­lýs­inga­fyr­ir­tæk­inu Já hf. og nú hjá Lyfju, en söðlar nú aðeins um þar sem henni finnst verk­efnið sem blasir við atvinnu­líf­inu og sam­fé­lag­inu öllu vera mik­il­vægt.

Hún mun hefja störf í sept­em­ber og fer þá beint inn í kjara­við­ræður. Í þeim segir hún að lang­tíma­hugsun muni skipta máli þegar kemur að því að ná niður verð­bólgu. „Ég tel að við stöndum frammi fyrir mik­illi áskorun, sú áskorun bein­ist bæði að atvinnu­líf­inu en eins að sam­fé­lag­inu í heild sinni. Ég held að við hljótum að geta verið öll sam­mála um það að stóru verk­efnin inn í haustið eru að ná tökum á verð­bólg­unni og þar með vaxta­stig­inu.“

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Allt af létta

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár