Halldór og hárið mun ekki sakna sviðsljóssins

Halldór Benjamín Þor­bergs­son hefur látið af störfum sem fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins eftir sjö ár í starfi. Hann fagn­aði breyt­ing­unum með því að kenna yngsta barn­inu sínu á skíði en er ekki viss hvort það sé kom­inn tími fyrir klipp­ingu.

Halldór og hárið mun ekki sakna sviðsljóssins
Stór­kost­legur tími Halldór Benjamín Þor­bergs­son segir tím­ann sem fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins hafa verið stór­kost­legan. Sjö séu hins vegar góður tími í starfi sem er ein­hvers konar brenni­punktur sam­fé­lags­ins. Nú taka nýjar áskor­anir við og hann mun ekki sakna sviðs­ljóss­ins. Mynd: Stundin / Davíð Þór

„Sjö ár eru afskap­lega góður tími í starfi sem er ein­hvers konar brenni­punktur sam­fé­lags­ins,“ segir Halldór Benjamín Þor­bergs­son, sem hætti nýverið sem fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins. Í sumar mun hann taka við starfi for­stjóra fast­eigna­fé­lags­ins Regins. 

Halldór fagn­aði þessum tíma­mótum í skíða­ferð með fjöl­skyld­unni á Akureyri þar sem mark­miðið var að kenna fjórða og yngsta barn­inu á skíði, en gaf sér örlít­inn tíma til að ræða við blaða­mann milli skíða­kennslu­stunda. „Þetta var stór­kost­legur tími, ég er ekki maður sem tekur oft djúpt í árinni, en þetta er tími sem ég mun aldrei gleyma,“ segir Halldór um þau sjö ár sem hann gegndi starfi fram­kvæmda­stjóra SA. Aðspurður hvers hann muni sakna nefnir hann sam­starfs­menn og við­semj­endur. „Af því að eng­inn dagur er öðrum líkur, gríð­ar­legt álag en á sama tíma skemmti­legt að kljást við hluti í raun­tíma fyrir allra augum, það reynir á mjög marga hæfi­leika.“

En þegar hann er spurður hvers hann muni ekki sakna er svarið svipað. „Að vera stans­laust í sviðs­ljós­inu, að geta ekki hreyft sig án þess að tekin sé af því ljós­mynd eða frétta­mynd og vera fasta­gestur á heim­ilum lands­manna, bæði í gegnum útvarp, prent­miðla, vef­miðla og sjón­varp. Ég er viss um að ég muni minnst sakna þess hluta.“ 

Mun leggja sig í framkróka um að rísa undir trausti og trúnaði

Hár­greiðsla Halldórs hefur ekki sloppið við sviðs­ljósið og fréttir líkt og „Hvernig fer Halldór að því að vera með svona frá­bært hár“ röt­uðu á lista yfir mest lesnu fréttir net­miðl­anna í miðjum kjara­við­ræðum. Halldór mun ekki sakna þess en sleppur þó ekki við spurn­ing­una, er kom­inn tími á klipp­ingu? „Konan mín stýrir því, það er lang­besta svarið.“

Hann mun ekki segja alveg skilið við sviðs­ljósið í nýja starf­inu sem for­stjóri í skráðu félagi í kaup­höll­inni en hann býst samt sem áður við auknu svig­rúmi. „Það verður öðru­vísi, það er ekki jafn mikið í sviðs­ljósi almenn­ings frá degi til dags. Auðvitað eru við­fangs­efnin allt önnur, af öðrum toga, og ég hlakka sann­ar­lega til að takast á við nýjar áskor­anir í líf­inu.“

Þetta er í fyrsta sinn sem Halldór mun stýra skráðu félagi. „Ég þarf að aðlag­ast því, ég er afar þakk­látur fyrir það tæki­færi og það traust og trúnað sem hlut­hafar og stjórn eru að sýna mér og ég mun auð­vitað leggja mig í fram­króka við að rísa undir því trausti og þeim trún­aði.“

Vandar sig mjög mikið og hefur alltaf gert 

Halldór er alvanur að svara fjöl­miðla­fólki og blaða­maður rifjar upp hennar fyrstu sam­skipti við fram­kvæmda­stjór­ann þegar kjara­við­ræður SA og Eflingar stóðu yfir vet­ur­inn 2019. Viðtalið var í gegnum síma og þegar blaða­maður bað hann vin­sam­leg­ast að end­ur­taka það sem hann var að lesa snöggreidd­ist hann og sagð­ist alls ekki vera að lesa upp af blaði, hann væri bara svona vel und­ir­bú­inn. Halldór hlær við þessa upp­rifjun. „Mér þykir bara mjög vænt um að heyra það, ég vanda mig mjög mikið og hef alltaf gert.“

Halldór mun sinna starfi fram­kvæmda­stjóra þar til gengið verður frá ráðn­ingu arf­taka hans. Hann seg­ist ekki hafa hug­mynd um hver það verður og að hann muni ekki koma að því ferli. 

En hefur hann skoðun á því? 

„Ég hef skoð­anir á öllu sem við kemur íslensku sam­fé­lagi en í þetta skiptið ætla ég að halda þeim fyrir sjálfan mig.“

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þórdís Ólafsdóttir skrifaði
    Hefi átt að vera farin fyrir löngu, þahefði náðst betri samningar við Eflingu. Frekjuhundar gola mest
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Allt af létta

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár