Mágkonur munu stýra Samtökum atvinnulífsins í haust

Tvær konur, mág­konur, munu í fyrsta sinn leiða Samtök atvinnu­lífs­ins þegar Sigríður Margrét Odds­dóttir tekur við starfi fram­kvæmda­stjóra í haust.

Mágkonur munu stýra Samtökum atvinnulífsins í haust
Mágkonur Sigríður Margrét og Anna Hrefna munu stýra sam­tök­unum í haust. Er þetta í fyrsta sinn sem kona er ráðin fram­kvæmda­stjóri sam­tak­anna.

Ráðning Sigríðar Mar­grétar Odds­dóttur til Samtaka atvinnu­lífs­ins (SA) er sögu­leg. Ekki bara vegna þess að nú mun kona í fyrsta sinn sitja á stóli fram­kvæmda­stjóra heldur einnig vegna þess að aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri sam­tak­anna er mág­kona Sigríðar. 

Tvær konur, mág­konur, munu leiða sam­tökin þegar Sigríður Margrét, sem nú er for­stjóri Lyfju, tekur við starfi fram­kvæmda­stjóra í haust. 

Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóra sam­tak­anna, er gift bróður Sigríðar Mar­grétar. Anna Hrefna tók við starf­inu í fyrra og er ekki á förum svo vitað sé. Eyjólfur Árni Rafnsson, for­maður sam­tak­anna, segir að mikil ánægja hafi ríkt með störf hennar.

Telur ekki að tengslin verði til vandræða

Átta manna fram­kvæmda­stjórn SA var með­vituð um tengslin við ráðn­ingu Sigríðar, að sögn Eyjólfs. Hann segir að þau hafi ekki verið tekin til sér­stakrar skoð­unar í ferl­inu. 

„Ég get ómögu­lega komið auga á að slík tengsl verði eitt­hvað vanda­mál,“ segir Eyjólfur. „Fyrir mitt leyti velti ég því aldrei fyrir mér og ég veit ekki til þess að nokkur ein­asti aðili í fram­kvæmda­stjórn hafi gert það þó ég geti ekki svarað fyrir alla.“

Halldór Benjamín Þor­bergs­son, frá­far­andi for­maður SA, sagði starfi sínu lausu í mars­mán­uði. Ráðning Sigríðar Mar­grétar var til­kynnt í gær. Aðspurður telur Eyjólfur ekki að ferlið hafi verið óeðli­lega langt. 

„Fyrst og fremst var þetta vandað ferli sem tók sinn tíma,“ segir hann. „Þetta var sam­eig­in­leg nið­ur­staða fram­kvæmda­stjórnar eftir við­töl. Það var úr öfl­ugum hópi að velja.“

Kjara­við­ræður eru fram undan í haust og hefur Eyjólfur engar áhyggjur af því að nýr fram­kvæmda­stjóri komi inn á sama tíma.

„Hún er afar öfl­ugur ein­stak­lingur og setur sig hratt inn í hlut­ina. Við megum bara ekki gleyma því að það er gríð­ar­lega öfl­ugur hópur þegar í starfi hjá Samtökum atvinnu­lífs­ins. Fram­kvæmda­stjór­inn er aldrei einn í þessum hlutum.“

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár