Sigríður Margrét nýr framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins

Sigríður Margrét Odds­dóttir, for­stjóri Lyfju, tekur við starfi fram­kvæmda­stjóra Samtaka atvinnu­lífs­ins í haust.

Sigríður Margrét nýr framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
Nýr fram­kvæmda­stjóri Sigríður Margrét Odds­dóttir tekur við kefl­inu í sept­em­ber.

Sigríður Margrét Odds­dóttir hefur verið ráðin fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins (SA). Hún stað­festir þetta í sam­tali við Heim­ild­ina. Sigríður er for­stjóri Lyfju en mun láta af störfum þar þegar hún hefur störf hjá SA í sept­em­ber. 

Tilkynnt var um það í lok mars síð­ast­liðnum að Halldór Benjamín Þor­bergs­son ætl­aði að hætta sem fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins til að taka við stöðu for­stjóra hjá fast­eigna­fé­lag­inu Reginn. Í kjöl­farið hófst það ferli að finna eft­ir­mann hans. 

Átta manna fram­kvæmda­stjórn SA sá um ráðn­ing­una en hún er skipuð for­manni og vara­for­manni ásamt sex full­trúum sem stjórnin kaus úr eigin 21 manns hópi. 

Ferlið hófst með nokkra tugi nafna í hatt­inum en í síð­ustu viku hafði þeim verið fækkað um meira en helm­ing. 

Við­mæl­endur Heim­ild­ar­innar gagn­rýndu í síð­ustu viku ráðn­ing­ar­ferlið sem þeir sögðu ómark­visst, upp­lýs­inga­gjöf vill­andi og að það hafi dreg­ist úr hófi.

Telur hægt að vinna verkefnið í sameiningu

Sigríður tekur við kefl­inu þegar stutt verður í kjara­við­ræður, sem lík­legt má þykja að verði strembnar. Skamm­tíma­samn­ingar voru und­ir­rit­aðir nú síð­ast eftir brös­ug­legar við­ræður en verð­bólga og vaxta­stigið í land­inu fóru á flug í fyrra. Spurð hvernig hún sjái haustið fyrir sér segir Sigríður Margrét:

„Númer eitt tvö og þrjú þá held ég að allir sem koma að kjara­við­ræðum hafi það að augna­miði að ná árangri bæði fyrir fólk og fyr­ir­tæki. Þá er ég að hugsa bæði til skemmri og lengri tíma. Ég mun auð­vitað takast á við þessi verk­efni í hópi góðs fólks og trúi því að við getum áfram í sam­ein­ingu unnið að því að lífs­kjör hér á landi verði með því besta sem þekk­ist.“

Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri SA, mun sinna hlut­verki fram­kvæmda­stjóra þar til Sigríður Margrét tekur við.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár