Búið að hringja í Jens og honum er teflt fram sem næsta framkvæmdastjóra SA

Stefnt er að því að ljúka við ráðn­ingu á næsta fram­kvæmda­stjóra Samtaka atvinnu­lífs­ins í næstu viku. Undir tugur er eftir í hatt­inum en þeirra á meðal er Jens Garðar Helgason, sem nýtur stuðn­ings sjáv­ar­út­veg­ar­ins. Eina nafnið innan úr Húsi atvinnu­lífs­ins sem liggur fyrir fyrir að sé á meðal umsækj­enda er Sigríður Mogensen frá Samtökum iðn­að­ar­ins.

Búið að hringja í Jens og honum er teflt fram sem næsta framkvæmdastjóra SA

Jens Garðar Helgason, aðstoð­ar­for­stjóri Fisk­eldis Aust­fjarða hf. og Laxa fisk­eldis hf., er á meðal þeirra sem kemur til greina sem næsti for­maður Samtaka atvinnu­lífs­ins (SA). Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar nýtur hann stuðn­ings ákveð­inna afla innan sam­tak­anna, sér­stak­lega þeirra sem eiga rík tengsl við sjáv­ar­út­veg. Jens Garðar starfar enda innan þess geira, var um ára­bil for­maður Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) og sat þá sem slíkur í fram­kvæmda­stjórn SA. Hann situr enn í stjórn SFS. Sjálfur vildi Jens Garðar ekk­ert láta hafa eftir sér um málið þegar Heim­ildin leit­aði stað­fest­ingar hans á því.

Jens Garðar hefur setið í stjórn og fram­kvæmda­stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins vegna stjórn­ar­starfa sinna fyrir SFS og var um tíma vara­for­maður stjórnar Samtaka atvinnu­lífs­ins.

Tilkynnt var um það í lok mars síð­ast­lið­inn að Halldór Benjamín Þor­bergs­son ætl­aði að hætta sem fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins til að taka við stöðu for­stjóra hjá fast­eigna­fé­lag­inu Reginn. Í kjöl­farið hófst …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár