Fjárkúgunarmál á hendur Vítalíu fellt niður

Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur fellt niður rann­sókn sem hófst með kæru Ara Edwald, Hregg­viðs Jóns­sonar og Þórðar Más Jóhann­es­sonar á hendur Vítalíu Lazarevu. Kærðu þre­menn­ing­arnir hana, ásamt Arnari Grant, fyrir til­raun til fjár­kúg­unar, hót­anir og fyrir brot á frið­helgi einka­lífs.

Fjárkúgunarmál á hendur Vítalíu fellt niður
Segir reynt að þagga niður í sér Vítalía segir að hún hafi verið beitt ofbeldi og kæra þre­menn­ing­anna hafi verið áfram­hald­andi ofbeldi. Mynd: Anton Brink

Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur fellt niður rann­sókn máls á hendur Vítalíu Lazarevu varð­andi meinta fjár­kúgun hennar á hendur þremur mönnum; þeim Ara Edwald, Hregg­viði Jónssyni og Þórði Má Jóhann­essyni. Nið­ur­staða emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara var að rann­sókn­ar­gögn máls­ins bæru ekki með sér að málið væri lík­legt til sak­fell­ingar.

Arnar Grant var einnig til rann­sóknar í sama máli en Heim­ildin hefur ekki fengið stað­fest að mál á hendur honum hafi verið fellt niður líka.

Þre­menn­ing­arnir kærðu Vítalíu og Arnar til hér­aðs­sak­sókn­ara í júní í fyrra fyrir til­raun til fjár­kúg­unar, fyrir hót­anir og fyrir brot gegn frið­helgi einka­lífs­ins. Málið allt á sér langa for­sögu en hófst með því að í októ­ber 2021 birti Vítalía frá­sögn á Instagram af því að hún hefði orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi af hendi þriggja manna í heitum potti og í sum­ar­bú­stað á Vest­ur­landi árið 2020. Nafn­greindi Vítalía menn­ina þrjá í frá­sögn­inni. Þá greindi Vítalía einnig frá því að Arnar hefði fengið hana til að koma í umræddan sum­ar­bú­stað, en þau áttu þá í ást­ar­sam­bandi.

Sagði að gengið hefði verið yfir öll mörk

Vítalía steig síðar fram í hlað­varps­þætt­inum Eigin konur, í jan­úar 2022, og lýsti þar upp­lifun sinni frekar. Hún nafn­greindi hins vegar menn­ina ekki í því við­tali. Í við­tal­inu lýsti hún hvernig þeir hafi allir farið yfir hennar mörk. „Fólk er held ég ekki að átta sig á því hversu stórt þetta var. Margir til dæmis halda að þetta hafi „bara“ verið eitt­hvert þukl. Þetta fór alveg yfir öll mörk,“ sagði hún. 

Vítalía kærði menn­ina þrjá fyrir kyn­ferð­is­brot gegn sér á síð­asta ári. Embætti hér­aðs­sak­sókn­ara hætti hins vegar rann­sókn þess máls í apríl síð­ast­liðnum. Kolbrún Garð­ars­dóttir, lög­maður Vítalíu, stað­festi við Heim­ild­ina að ákvörðun hér­aðs­sak­sókn­ara þar um hefði verið kærð til rík­is­sak­sókn­ara.

Stundin greindi frá því í apríl á síð­asta ári að við­ræður hefðu staðið milli lög­manns Vítalíu og lög­manns á vegum þre­menn­ing­anna um að ljúka mál­inu milli þeirra með svoköll­uðum þögg­un­ar­samn­ingi. Var það til umræðu áður en Vítalía opn­aði sig opin­ber­lega um málið. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar var rætt um að Vítalía fengi mán­að­ar­legar greiðslur frá mönn­unum og sam­kvæmt sömu heim­ildum var ein talan sem nefnd var 25 millj­ónir króna yfir fimm ára tíma­bil.

Í umfjöllun Stund­ar­innar kom ekki fram hver hefði haft frum­kvæði að við­ræðum um slíkan samn­ing. Þau Vítalía og Ari vildu ekki tjá sig um málið við Stundina og ekki náð­ist í Þórð Má eða Hreggvið.

Ekki nóg fram komið til að ákæra

Það sem næst gerð­ist í mál­inu var hins vegar að þeir Ari, Hregg­viður og Þórður Már kærðu Vítalíu og Arnar fyrir til­raun til fjár­kúg­unar, hót­anir og brot gegn frið­helgi einka­lífs­ins, sem fyrr segir. Um er að ræða kæru í mál­inu sem nú hefur verið fellt niður. Í kærunni voru til­greind atriði í 35 tölu­liðum sem þeir þre­menn­ingar töldu að væru refsi­verð.

Við rann­sókn máls­ins voru meðal ann­ars teknar skýrslur þeim Ara, Hregg­viði, Þórði Má, Vítalíu sjálfri og vitnum. Í nið­ur­fell­ing­ar­bréfi hér­aðs­sak­sókn­ara segir að með hlið­sjón af rann­sókn­ar­gögnum máls­ins „verður ekki talið að það sem fram er komið sé nægi­legt eða lík­legt til sak­fellis og er málið hér með fellt niður“.

Í yfir­lýs­ingu sem lög­maður Vítalíu sendi Heim­ild­inni segir hún að rétt­lætið hafi sigrað í þessu til­viki. „Ég tel að rétt­lætið hafi raun­veru­lega sigrað hvað varðar þetta mál,“ hefur lög­fræð­ing­ur­inn þar eftir Vítalíu. 

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár