Rannsókn á kæru Vítalíu á hendur Hreggviði, Ara og Þórði hætt

Eftir að skýrslu­taka dróst á síð­asta ári í máli Vítalíu Laz­areva gegn þremur áhrifa­miklum mönnum í sam­fé­lag­inu, þeim Þórði Má Jóhann­essyni, Ara Edwald og Hregg­viði Jónssyni, hefur emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara nú hætt rann­sókn. Hregg­viður sendi frá sér yfir­lýs­ingu í dag vegna máls­ins.

Rannsókn á kæru Vítalíu á hendur Hreggviði, Ara og Þórði hætt
Þórður Már Jóhann­es­son, Hregg­viður Jónsson og Ari Edwald.

Embætti hér­aðs­sak­sókn­ara hefur hætt rann­sókn vegna kæru fyrir kyn­ferð­is­brot sem Vítalía Lazareva lagði fram á hendur þeim Hregg­viði Jónssyni, Ara Edwald og Þórði Má Jóhann­essyni.

RÚV greinir frá og hefur þetta eftir Kolbrúnu Garð­ars­dóttur, rétt­ar­gæslu­manni Vítalíu. Hún segir þar að ákvörð­unin verði kærð til rík­is­sak­sókn­ara.

Lögmaður Hregg­viðs sendi svo yfir­lýs­ingu fyrir hans hönd síð­degis í dag þar sem Hregg­viður stað­festir að emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara hafi tekið ákvörðun um að hætta rann­sókn vegna kærunnar. „Sú nið­ur­staða kemur mér ekki á óvart enda hef ég frá upp­hafi sagt að ég hafi ekki gerst brot­legur við lög. Ég mun ætíð sjá eftir því að hafa ekki stigið út úr umræddum aðstæðum en líkt og fram hefur komið þá var frum­kvæðið þeirra tveggja, Arnars Grants og Vitaliu.

Atburða­rás síð­ustu mán­aða hefur verið erfið og á köflum fjar­stæðu­kennd. Afleið­ing­arnar af þessu máli hafa verið miklar, ekki síður fyrir þau sjálf, en einnig marga aðra. Þetta mál hefur tekið mikið á mig og fjöl­skyldu mína og það er því léttir að því sé lokið.“

Málið á sér tölu­verðan aðdrag­anda en Kjarn­inn fjall­aði meðal ann­ars um það í byrjun jan­úar á síð­asta ári en Vítalía steig fram og greindi frá meintu ofbeldi í við­tali hjá Eddu Falak í Eigin konum.

Opnaði sig á Instagram

Seint í októ­ber 2021 birti Vítalía frá­­­­­sögn á sam­­­fé­lags­mið­l­inum Instagram. Frá­­­­­sögnin var af kyn­­­ferð­is­of­beldi sem hún sagði sig hafa orðið fyrir af hendi þriggja manna. Í frá­­­­­sögn­inni lýsti hún því ofbeldi sem hún sagði menn­ina hafa beitt sig í heitum potti og í sum­­­­­ar­­­bú­­­stað, aðdrag­anda þess að hún hefði endað með þeim þennan dag og í lok hennar nefndi hún þá alla þrjá með nafni, þá Ara Edwald, þáver­andi for­­stjóra Ísey Skyr, Hregg­við Jóns­­son, þáver­andi stjórn­­­ar­­for­­mann og aðal­­eig­anda Veritas, og Þórð Má Jóhann­es­­son, þáver­andi stjórn­­­ar­­for­­mann Festi.

Auk þess nefndi hún á nafn giftan mann, einka­­­þjálf­­­ar­ann Arnar Grant, sem hún átti í ást­­­ar­­­sam­­­bandi við og fékk hana til að koma á þann stað sem meint brot fóru fram.

Færslan var síðar tekin niður af Instagram en hluti hennar er enn aðgeng­i­­­legur á Twitt­er-­­­síðu Vítal­­­íu. Þar voru nöfn mann­anna hins vegar ekki birt. Þar segir meðal ann­­­ars að henni hafi verið ráðið frá „því að segja frá og leita lengra vegna þess að aðilar þessir eru valda­­­miklir í sam­­­fé­lag­inu og allir fjöl­­­skyld­u­­­menn“.

Vildu engu svara

Skjá­­­skot af frá­­­­­sögn Vítalíu fóru víða um íslenskt sam­­­fé­lag. Í stórum hópum var fátt annað rætt í margar vikur á eftir en hvar þetta mál stæði. Ekk­ert var hins vegar fjallað um málið í fjöl­mið­l­um, þrátt haft hafi verið sam­­­band við menn­ina fjóra, meðal ann­­­ars frá blaða­­­manni Kjarn­ans. Við­brögðin voru eng­in. Þeir svör­uðu ekki.

Málið tók á sig nýja mynd þegar Vítalía steig fram hjá Eddu og greindi frá meintu ofbeldi.

Allir þrír stigu til hliðar úr ábyrgð­­ar­­stöðum eftir að fjöl­miðlaum­­fjöllun um málið birt­ist. Eini sem hefur tjáð sig opin­ber­­lega er Hregg­viður Jóns­­son en hann sagði í yfir­­lýs­ingu sinni: „Ég harma að hafa ekki stigið út úr aðstæðum sem ung kona hefur skýrt frá og fjallað hefur verið um í sumum fjöl­mið­l­­­­um. Það er afar þung­­­­bært að heyra um hennar reynslu.“

Hregg­viður sagð­ist jafn­­framt líta þetta mál alvar­­­­legum augum og þrátt fyrir að hann hefði „ekki gerst brot­­­­legur við lög“ þá myndi hann stíga til hliðar úr stjórn Ver­­­itas og stjórnum tengdra fyr­ir­tækja „til að raska ekki þeirra mik­il­vægu starf­­­­sem­i“.

Hræðsla og óör­yggi ekki í boði

Vítalía fór síðan í byrjun júlí á síð­ast ári í skýrslu­töku hjá lög­regl­unni á Vest­ur­landi vegna kyn­ferð­is­brota­kæru á hendur þre­menn­ing­unum en hún hafði birt mynd á Twitt­er-­síðu sinni í mars þar sem sjá mátti beiðni um tíma hjá kæru­mót­töku lög­regl­unn­ar. Hún sagði í sam­tali við Kjarn­ann á sínum tíma að hún ætl­aði ekki skilja málin eftir í lausu lofti og þetta hefði verið stórt og mik­il­vægt skref í rétta átt fyrir hana. „Hræðsla og óör­yggi er ekki í boði fyrir mig og ég kem til með að standa upp­­rétt og ein­beita mér að rétt­læt­in­u.“

Hún skrif­aði jafn­­framt í opinni færslu á Instagram að það hefði tekið tíma „að safna sér saman í næstu skref“ en hún væri til­bú­in.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Er okkar dómskerfi treystandi?
    Fyrir skömmu var Jón Baldvin dæmdur vegna ætlaðrar rassstroku, vegna þess - að sagt er, að dómarinn hafði heyrt svo margar sögur af honum.
    Núna er að sjá augljóst mál, fellt niður – hvers vegna – vegna þess að brotaþoli hefur erlent nafn?
    Hér um árið var sýslumaður sem dæmdi mann fyrir nauðgun vegna þess að hann hafði tólin til þess.
    -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár