Rithöfundur fékk 11 krónur fyrir streymi á Storytel

Breyttar neyslu­venjur les­enda hafa áhrif á við­kvæmt vist­kerfi bóka­út­gáfu á Íslandi. Innkoma Storytel á mark­að­inn fyrir fimm árum hefur haft sitt að segja en margir rit­höf­undar gagn­rýna tekju­módel fyr­ir­tæk­is­ins og segja það hlunn­fara höf­unda. Á sama tíma hafa end­ur­greiðslur til útgef­anda haft áhrif og for­maður RSÍ telur að hún mætti gagn­ast höf­undum betur.

Rithöfundur fékk 11 krónur fyrir streymi á Storytel
Bóka­út­gáfa stendur á kross­götum eftir tækni­fram­farir síð­ustu ára. Hljóð­bæk­urnar hafa gjör­bylt neyslu­venjum les­enda en margir telja þó að hin hefð­bundna bók eigi sér áfram fram­tíð. Mynd: Pexels/Polina Zimmerman

Á dög­unum boð­aði menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neytið til mál­þings um fram­tíð bóka­út­gáfu í sam­vinnu við Rit­höf­unda­sam­band Íslands (RSÍ) og Félag íslenskra bóka­út­gef­enda. Bóka­brans­inn stendur nú frammi fyrir áskor­unum, enda er margt að breyt­ast bæði hér­lendis og á hinum alþjóð­lega bóka­mark­aði. 

Tvennt virð­ist vefj­ast mest fyrir fólki. Annars vegar fyr­ir­komu­lag end­ur­greiðslna hins opin­bera og áhrif þeirra á höf­unda. Og hins vegar starf­semi Storytel hér á landi, en Storytel kom eins og storm­sveipur inn á íslenskan bóka­markað árið 2018 og hafði þá áður rutt sér til rúms á Norð­ur­lönd­unum og víðar. Þessar tvær breytur virð­ast sam­an­lagt hafa haft stór­tæk áhrif á við­kvæmt vist­kerfi útgáf­unnar og ekki síður afkomu höf­unda. 

Það var ekki úr vegi að spyrja nokkra sem héldu erindi á þing­inu um þetta tvennt. 

Enginn séð fyrir þessa þróun

Sigríður Hagalín Björns­dóttir, rit­höf­undur og stjórn­ar­maður í RSÍ, segir að mikið umrót hafi verið í …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár