Mælt með að frumvarp um Seðlabankann verði samþykkt en að valdreifing verði tryggð

Efnahags- og við­skipta­nefnd Alþingis leggur til að frum­varp um Seðla­banka Íslands, sem meðal ann­ars felur það í sér að seðla­banka­stjóri verði for­maður fjár­mála­eft­ir­lits­nefndar, verði sam­þykkt. Nefndin bendir hins vegar á að horft verði til gagn­rýni á stjórn­ar­hætti og verk­lag í Seðla­banka Íslands sem snýst um að tryggja betri vald­dreif­ingu frá seðla­banka­stjóra.

Mælt með að frumvarp um Seðlabankann verði samþykkt en að valdreifing verði tryggð
Verður for­maður fjár­mála­eft­ir­lits­nefndar Seðla­banka­stjóri, sem í dag er Ásgeir Jónsson, verður for­maður fjár­mála­eft­ir­lits­nefndar ef nýtt frum­varp um Seðla­banka Íslands verður að lögum, líkt og efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis verður sam­þykkt. Mynd: Bára Huld Beck

Efnhags- og við­skipta­nefnd Alþingis segir að frum­varp um breyt­ingar á lögum um Seðla­banka Íslands eigi að vera sam­þykkt á Alþingi. Frum­varpið felur í sér breyt­ingar á skipu­lagi og verk­efnum svo­kall­aðrar fjár­mála­eft­ir­lits­nefndar, meðal ann­ars að seðla­banka­stjóri verði for­maður nefnd­ar­innar. Nefndin er æðsta stjórn­vald fjár­mála­eft­ir­lits á Íslandi og tekur meðal ann­ars ákvarð­anir um í hvaða far­veg mál sem fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands hefur rann­sakað fara. Hún ákveður til dæmis end­an­lega upp­hæðir sekta vegna brota á lögum sem ríkja á fjár­mála­mark­aði og eins hvort vísa eigi málum til rann­sóknar hjá lög­reglu. Nefndin hefur því tals­verðar vald­heim­ildir og mögu­leika til að taka stórar ákvarð­anir um rann­sóknir á meintu mis­ferli á fjár­mála­mark­aði. 

Í nefnd­ar­á­liti sem efna­hags- og við­skipta­nefnd birti nýlega um frum­varpið á vef Alþingis segir meðal ann­ars: „Að fram­an­greindu virtu leggur nefndin til að frum­varpið verði sam­þykkt óbreytt.“ Um er að ræða frum­varp sem Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra lagði fram. 

„Engu að síður telur nefndin mik­il­vægt að fram­an­greindar athuga­semdir ytra mats nefnd­ar­innar verði teknar til skoð­unar í náinni fram­tíð“
Úr nefnd­ar­á­liti efna­hags- og við­skipta­nefndar

Frumvarpið sagt ýta undir samþjöppun valds

Þrátt fyrir þetta þá bendir efna­hags- og við­skipta­nefnd líka á það að Seðla­banki Íslands þurfi að taka mark á ábend­ingum um aukna sam­þjöppun valda í bank­anum hjá seðla­banka­stjóra. Þessar ábend­ingar komu fram í skýrslu þriggja erlendra sér­fræð­inga sem unnin var um frum­varpið.

Heim­ildin fjall­aði um þessa skýrslu í febr­úar en tals­verð umræða var skýrsl­una og laga­frum­varpið í íslenskra stjórn­kerf­inu og hjá stjórn­mála­mönnum. 

Með laga­frum­varp­inu verður seðla­banka­stjóri, sem í dag er Ásgeir Jónsson, for­maður allra þriggja fasta­nefnda Seðla­banka Íslands. Seðla­banka­stjóri hefur verið for­maður pen­inga­stefnu- og fjár­mála­stöð­ug­leika­nefndar og verður nú einnig for­maður fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd­ar­innar. Fjár­mála­eft­ir­lits­nefndin kom í stað stjórnar Fjár­mála­eft­ir­lits­ins (FME) þegar stofn­an­irnar sam­ein­uð­ust. Hingað til hefur for­maður fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd­ar­innar verðið póli­tískt skip­aður af fjár­mála­ráð­herra, sem í dag er Bjarni Bene­dikts­son, en verður nú seðla­banka­stjóri sem er æðsti starfs­maður bank­ans. Munurinn verður því líka sá að í stað þess að for­maður nefnd­ar­innar sé utan­að­kom­andi aðili þá verður for­mað­ur­inn nú Seðla­banka­stjóri. 

Í skýrsl­unni um laga­frum­varpið gagn­rýndu höf­und­arnir þetta og sögðu meðal ann­ars að vald­dreif­ingin innan bank­ans hafi ekki verið nægi­lega tryggð fyrir þessa breyt­ingu. Þeir sögðu að valda­sam­þjöpp­unin yrði þá enn meiri ef af þess­ari breyt­ingu yrði. „Jafnvel þó að upp­bygg­ing nefnd­anna hafi hingað til verið nokkuð skil­virk, þá hefur hún með fremur tak­mörk­uðum hætti dreift vald­inu innan bank­ans til ann­arra en seðla­banka­stjóra. Þetta er kannski ekki aug­ljóst þegar horft er til þess hvernig kosið er í nefnd­unum eða út frá laga­legu hlut­verki þeirra en þetta virð­ist vera alveg ljóst í okkar huga þegar horft er heild­rænt á starf þeirra. Og þetta verður enn þá frekar svona ef fyr­ir­liggj­andi breyt­ingar á umboði og stjórnun fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd­ar­innar verður að veru­leika, og geri seðla­banka­stjór­ann þá einnig að for­manni þeirrar nefndar.“  

Nefndin: Gagnrýnin tekin til skoðunar

Efnahags- og við­skipta­nefnd telur að þrátt fyrir að hún telji að Alþingi eigi að sam­þykkja frum­varpið óbreytt þá þurfi að fara að ráð­legg­ingum skýrslu­höf­unda varð­andi það að vald­dreif­ing innan Seðla­banka Íslands verði tryggð: „Í sam­hengi við frum­varpið bendir ytra mats nefndin á að aukin sam­þjöppun valds kalli á mót­vægi í stjórn­ar­háttum. [...] Engu að síður telur nefndin mik­il­vægt að fram­an­greindar athuga­semdir ytra mats nefnd­ar­innar verði teknar til skoð­unar í náinni fram­tíð,“ segir í nefnd­ar­á­lit­inu. 

Í álit­inu er hins vegar ekki fjallað um hvernig Seðla­banki Íslands á að gera þetta eða hvaða leiðir séu til ráða innan bank­ans til að tryggja dreif­ingu valds frekar. 

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Efna­hags- og við­skipta­nefnd Al­þing­is legg­ur til að frum­varp um Seðla­banka Ís­lands, sem með­al ann­ars fel­ur það í sér að seðla­banka­stjóri verði formað­ur fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd­ar, verði sam­þykkt.

    Ja sei sei... láta alkann sjá um vínbirgðirnar, þann stelsjúka sjá um þjófnaðarvarnir.... osf.

    Hef ekki enn séð Seðló taka á peningarþvættinu sínu... þó svo það sjáist langar leiðir hvað gerðist og hvernig.

    Og það gerðist ! Alveg jafn augljóst og að Kýpur rak ræðismanninn sinn.... og íslensku bankarnir sjá um peningarmálin sem Den Norske Bank fleygði út.... osf osf.

    Okkur er ekki við bjargandi.
    0
  • Stefán Ólafsson skrifaði
    Nefndin segist vilja draga úr samþjöppun valds í höndum seðlabankastjóra en leggur þó til aukna miðstýringu með enn meira valdi seðlabankastjóra! Þetta fólk virðist ekki ráða sér sjálft - nema rökhugsun þess sé svona ábótavant...
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabanki Íslands og Ásgeir Jónsson

Þingmaður gagnrýnir að Bjarni skipi meirihluta fjármálaeftirlitsnefndar: „Galið fyrirkomulag“
FréttirSeðlabanki Íslands og Ásgeir Jónsson

Þing­maður gagn­rýnir að Bjarni skipi meiri­hluta fjár­mála­eft­ir­lits­nefndar: „Galið fyr­ir­komu­lag“

Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, þing­maður Við­reisnar, segir enga arms­lengd á milli stjórn­mála og fjár­mála­eft­ir­lits ef fjár­mála­ráð­herra skipar meiri­hlut­ann í fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd. Hún spurði Bjarna Bene­dikts­son út í málið í nóv­em­ber en hefur enn ekki fengið svör. Spurn­ingar Þor­bjargar tengj­ast þeirri umræðu sem nú fer fram innan stjórn­mála og stjórn­kerfis um Seðla­banka Íslands og fjár­mála­eft­ir­litið.
Starfsmaður fjàrmálaráðuneytisins víkur sæti við meðferð Íslandsbankamálsins
FréttirSeðlabanki Íslands og Ásgeir Jónsson

Starfs­maður fjàr­mála­ráðu­neyt­is­ins víkur sæti við með­ferð Íslands­banka­máls­ins

Guðrún Þor­leifs­dóttir, skristofu­stjóri í fjár­mála­ráðu­neyt­inu, hefur vikið í sæti við umfjöllun fjár­mála­eft­ir­lits­nefndar á Íslands­banka­mál­inu. Fjár­mála­ráðu­neytið segir að að þetta sé vegna aðkomu ráðu­neyt­is­ins að mál­inu. Fjár­mála­eft­ir­lits­nefndin stýrir því hvernig Íslands­banka­mál­inu lýkur hjá Seðla­banka Íslands.
Forsætisráðherra vill áfram skipa pólitískt í æðsta stjórnvald fjármálaeftirlits
FréttirSeðlabanki Íslands og Ásgeir Jónsson

For­sæt­is­ráð­herra vill áfram skipa póli­tískt í æðsta stjórn­vald fjár­mála­eft­ir­lits

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að gagn­rýni á fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar á stjórn­skipu­lagi Seðla­banka Íslands sem hún hefur lagt fram séu ekki and­stæðar þeim hug­myndum sem koma fram í skýrslu þriggja sér­fræð­inga um bank­ann. Hún er ekki sam­mála því að hætta eigi að skipa ytri nefnd­ar­menn í fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd.
Átökin um völd Ásgeirs
ÚttektSeðlabanki Íslands og Ásgeir Jónsson

Átökin um völd Ásgeirs

Á bak við tjöldin eiga sér nú stað átök í stjórn­sýslu og stjórn­málum á Íslandi sem hverf­ast um emb­ætti og per­sónu seðla­banka­stjóra. Gagn­rýnendur Ásgeirs Jóns­sonar telja að völd hans séu orðin of mikil innan bank­ans á meðan aðrir telja að seðla­banka­stjóri þurfi þessi sömu völd, til að standa vörð um sjálf­stæði Seðla­bank­ans í bar­átt­unni við sér­hags­muna­öfl. Inn í þessi átök bland­ast svo for­sæt­is­ráð­herra, Katrín Jak­obs­dóttir og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár