Starfsmaður fjàrmálaráðuneytisins víkur sæti við meðferð Íslandsbankamálsins

Guðrún Þor­leifs­dóttir, skristofu­stjóri í fjár­mála­ráðu­neyt­inu, hefur vikið í sæti við umfjöllun fjár­mála­eft­ir­lits­nefndar á Íslands­banka­mál­inu. Fjár­mála­ráðu­neytið segir að að þetta sé vegna aðkomu ráðu­neyt­is­ins að mál­inu. Fjár­mála­eft­ir­lits­nefndin stýrir því hvernig Íslands­banka­mál­inu lýkur hjá Seðla­banka Íslands.

Starfsmaður fjàrmálaráðuneytisins víkur sæti við meðferð Íslandsbankamálsins

Starfs­maður fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins sem situr í fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd Seðla­banka Íslands sem póli­tískt skip­aður nefnd­ar­maður hefur vikið sæti við með­ferð nefnd­ar­innar á Íslands­banka­mál­inu svo­kall­aða. Þetta kemur fram í tölvu­pósti frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu til Heim­ild­ar­innar.

Tölvu­póst­ur­inn frá ráðu­neyt­inu er við­bragð við umfjöllun blaðs­ins um átök um stjórn­skipu­lag Seðla­banka Íslands sem nú eiga sér stað innan stjórn­kerf­is­ins og í stjórn­málum á Íslandi sem birt var fyrir helgi. Einn helsti ásteyt­ing­ar­steinn­inn í þeirri umræðu er fjár­mála­eft­ir­lits­nefndin og hvort seðla­banka­stjóri eigi að sitja í henni sem for­maður og eins hvort halda eigi því fyr­ir­komu­lagi að skipa ytri nefnd­ar­menn í hana. 

End­ur­skoðun á stjórn­kerfi Seðla­banka Íslands End­ur­skoðun fer nú fram á hluta af stjórn­kerfi Seðla­banka Íslands, meðal ann­ars fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd­inni. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra vill að Ásgeir Jónsson verði líka for­maður þess­arar nefndar.

Eina fastanefndin sem er pólitískt skipuð að meirihluta

Starfs­mað­ur­inn heitir Guðrún Þor­leifs­dóttir og er skrif­stofu­stjóri fjár­mála­mark­aða í ráðu­neyt­inu. Hún var skipuð í fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd af Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra en ráðu­neyti hans ber ábyrgð á hluta­bréfum íslenska rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum, sem og á sölu­með­ferð þeirra.

Sérstaða fjár­mála­eft­ir­lits­efndar meðal hinna þriggja fasta­nefnda Seðla­banka Íslands er að fjár­mála­ráð­herra skipar meiri­hluti nefnd­ar­manna. 

Í tölvu­póst­inum frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu kemur fram að Guðrún hafi getað verið skipuð í fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd þar sem hún hafi ekki beina aðkomu að eign­ar­haldi og sölu­með­ferð hluta­bréfa íslenska rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Enn fremur segir að talið hafi verið æski­legt að starfs­maður fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins sæti í nefnd­inni. „Ráðu­neytið vill af því til­efni árétta að við skipan í fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd er gætt að ákvæðum um að nefnd­ar­menn megi ekki sinna störfum utan bank­ans sem geta verið til þess fallin að draga óhlut­drægni þeirra í efa. Í ljósi þess að ráð­herra er með lögum falin ábyrgð á mála­flokknum sem hér um ræðir hefur verið talið æski­legt að starfs­maður ráðu­neyt­is­ins sitji í nefnd­inni. Það er á þeim grund­velli sem Guðrún Þor­leifs­dóttir var skipuð, en hún hefur í starfi sínu ekki aðkomu að með­ferð eign­ar­halds rík­is­ins á fjár­mála­fyr­ir­tækjum eða sölu­með­ferð fjár­mála­fyr­ir­tækja,“ segir fjár­mála­ráðu­neytið. 

Nefndin metur Íslandsbankamálið án Guðrúnar

Fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd er æðsta stjórn­vald fjár­mála­eft­ir­lits á Íslandi. Nefndin  hefur nú til með­ferðar nið­ur­stöð­urnar úr rann­sókn fjár­mála­eftilits Seðla­banka Íslands á Íslands­banka vegna útboðs bank­ans á tæp­lega fjórð­ungs hlutar íslenska rík­is­ins í bank­anum. Fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd mun lík­lega leggja sekt á Íslands­banka vegna aðkomu hans að söl­unni á hluta­bréfum rík­is­ins í bank­anum og eins ákveða hversu mikið verður greint frá mála­vöxtum rann­sókn­ar­innar opin­ber­lega. Bankinn hefur hingað til ekki viljað gefa upp­hæð sekt­ar­innar upp. „Við höfum ekki gefið það upp. [...] Við erum bara ennþá að klára að afhenda gögn og bregð­ast við áliti eft­ir­lits­ins, koma að and­mælum um alla þessa þætti,“ sagði Birna Ein­ars­dóttir, for­stjóri Íslands­banka, á fundi um árs­upp­gjör bank­ans með blaða­mönnum á föstu­dag­inn. 

„Að hennar sögn mat hún aðstæður þannig að hæfi hennar yrði ekki hafið yfir vafa m.t.t. aðkomu ráðu­neyt­is­ins að mál­inu, en málið hefði mikla sér­stöðu.“
Fjár­mála­ráðu­neytið,
um Guðrúnu Þor­leifs­dóttur og van­hæfi hennar til að fjalla um Íslands­banka­málið í fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd

Það sem til rann­sóknar er í Íslands­banka­mál­inu er meðal ann­ars skil­grein­ing bank­ans á fag­fjár­festum í útboð­inu á hluta­bréfum rík­is­ins sem við­skipti starfs­manna hans sjálfs með bréfin, líkt og Heim­ildin greindi frá fyrir skömmu. 

Samkvæmt tölvu­pósti fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins þá hafa umræð­urnar í fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd um Íslands­banka­málið hins vegar farið fram án þátt­töku þessa starfs­manns ráðu­neyt­is­ins. „Við þetta er að bæta að nefnd­ar­menn meta hæfi sitt í hverju máli. Guðrún hefur upp­lýst ráðu­neytið um að hún hafi ekki talið sig hæfa til að taka þátt í ákvörð­unum í málum vegna sölu­með­ferðar á Íslands­banka og því vikið sæti við með­ferð nefnd­ar­innar á málum tengdum sölu­með­ferð­inni. Af því leiðir að hún hefur ekki getað haft áhrif á ákvarð­anir nefnd­ar­innar í þeim málum.“ 

Þegar ráðu­neytið er spurt nánar að því hvað það er nákvæm­lega sem gerir það að verkum að Guðrún telji sig vera van­hæfa í Íslands­banka­mál­inu segir í svari þess: „Að hennar sögn mat hún aðstæður þannig að hæfi hennar yrði ekki hafið yfir vafa m.t.t. aðkomu ráðu­neyt­is­ins að mál­inu, en málið hefði mikla sér­stöðu.“

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabanki Íslands og Ásgeir Jónsson

Mælt með að frumvarp um Seðlabankann verði samþykkt en að valdreifing verði tryggð
FréttirSeðlabanki Íslands og Ásgeir Jónsson

Mælt með að frum­varp um Seðla­bank­ann verði sam­þykkt en að valdreif­ing verði tryggð

Efnahags- og við­skipta­nefnd Alþingis leggur til að frum­varp um Seðla­banka Íslands, sem meðal ann­ars felur það í sér að seðla­banka­stjóri verði for­maður fjár­mála­eft­ir­lits­nefndar, verði sam­þykkt. Nefndin bendir hins vegar á að horft verði til gagn­rýni á stjórn­ar­hætti og verk­lag í Seðla­banka Íslands sem snýst um að tryggja betri vald­dreif­ingu frá seðla­banka­stjóra.
Þingmaður gagnrýnir að Bjarni skipi meirihluta fjármálaeftirlitsnefndar: „Galið fyrirkomulag“
FréttirSeðlabanki Íslands og Ásgeir Jónsson

Þing­maður gagn­rýnir að Bjarni skipi meiri­hluta fjár­mála­eft­ir­lits­nefndar: „Galið fyr­ir­komu­lag“

Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, þing­maður Við­reisnar, segir enga arms­lengd á milli stjórn­mála og fjár­mála­eft­ir­lits ef fjár­mála­ráð­herra skipar meiri­hlut­ann í fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd. Hún spurði Bjarna Bene­dikts­son út í málið í nóv­em­ber en hefur enn ekki fengið svör. Spurn­ingar Þor­bjargar tengj­ast þeirri umræðu sem nú fer fram innan stjórn­mála og stjórn­kerfis um Seðla­banka Íslands og fjár­mála­eft­ir­litið.
Forsætisráðherra vill áfram skipa pólitískt í æðsta stjórnvald fjármálaeftirlits
FréttirSeðlabanki Íslands og Ásgeir Jónsson

For­sæt­is­ráð­herra vill áfram skipa póli­tískt í æðsta stjórn­vald fjár­mála­eft­ir­lits

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að gagn­rýni á fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar á stjórn­skipu­lagi Seðla­banka Íslands sem hún hefur lagt fram séu ekki and­stæðar þeim hug­myndum sem koma fram í skýrslu þriggja sér­fræð­inga um bank­ann. Hún er ekki sam­mála því að hætta eigi að skipa ytri nefnd­ar­menn í fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd.
Átökin um völd Ásgeirs
ÚttektSeðlabanki Íslands og Ásgeir Jónsson

Átökin um völd Ásgeirs

Á bak við tjöldin eiga sér nú stað átök í stjórn­sýslu og stjórn­málum á Íslandi sem hverf­ast um emb­ætti og per­sónu seðla­banka­stjóra. Gagn­rýnendur Ásgeirs Jóns­sonar telja að völd hans séu orðin of mikil innan bank­ans á meðan aðrir telja að seðla­banka­stjóri þurfi þessi sömu völd, til að standa vörð um sjálf­stæði Seðla­bank­ans í bar­átt­unni við sér­hags­muna­öfl. Inn í þessi átök bland­ast svo for­sæt­is­ráð­herra, Katrín Jak­obs­dóttir og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár