Hádegi í bankanum sem seldi sig

Banka- og fjár­mála­stjóri Íslands­banka buðu blaða­mönnum til fundar á föstu­dag í til­efni af upp­gjöri síð­asta árs. Bankinn græddi 24 millj­arða króna í fyrra, ætlar að greiða helm­ing­inn í arð en auk þess stendur til að greiða hlut­höfum út fimm millj­arða til við­bótar, með kaupum bank­ans á bréfum í sjálfum sér. Við­skipti bank­ans við sjálfan sig, í sjálfum sér, eða öllu heldur þátt­taka starfs­manna bank­ans í einka­væð­ingu bank­ans, mun þó kosta bank­ann tals­vert.

Hádegi í bankanum sem seldi sig
Banka­stjór­inn Birna Ein­ars­dóttir hefur stýrt Íslands­banka frá því að bank­inn var end­ur­reistur á nýrri kenni­tölu eftir banka­hrunið. Mynd: Nasdaq Iceland

For­svars­menn Íslands­banka neita að gefa upp hversu háa fjár­hæð bank­inn hefur lagt til hliðar, vegna fyr­ir­sjá­an­legrar sektar sem fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands leggur á bank­ann vegna lög­brota í tengslum við einka­væð­ingu bank­ans.

„Við höfum ekki gefið það upp,“ sagði Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, á kynn­ing­ar­fundi vegna árs­upp­gjörs bank­ans í höf­uð­stöðvum hans í dag. Í árs­reikn­ingi Íslands­banka sem kynntur var í gær var greint frá því að bank­inn hefði lagt til hliðar ótil­greinda upp­hæð til að standa straum af fyr­ir­sjá­an­legri fjár­sekt. Ekki var gefið upp hversu háa upp­hæð bank­inn teldi sig þurfa að greiða.

Vilja ekki sýna á spilin

Jón Guðni Ómarsson, fjár­mála­stjóri bank­ans, var einnig til svara á fund­inum og skýrði leynd­ina þannig að í raun og veru vissi bank­inn ekki hversu há end­an­lega sekt yrði. „Við vitum ekki ennþá hvað mun koma frá þeim,“ sagði Jón Guðni. „Við höfum ekki ennþá hafið þær sam­ræður,“ bætti hann við en kvaðst þó aðspurður ekki líta svo á að upp­hæðin yrði eitt­hvað samn­ings­at­riði milli fjár­mála­eft­ir­lits­ins og bank­ans. 

„Við erum bara ennþá að klára að afhenda gögn og bregð­ast við áliti eft­ir­lits­ins, koma að and­mælum um alla þessa þætti,“ sagði Birna og lagði áherslu á að reglu­verk skráðra félaga eins og Íslands­banka gerði ráð fyrir því að upp­lýst væri um fyr­ir­sjá­an­leg fjár­út­lát bank­ans. 

„Við setjum inn upp­hæð sem er byggð á okkar mati en á móti viljum við heldur ekki vera að hafa áhrif á Seðla­bank­ann“
Jón Guðni Ómarsson
fram­kvæmda­stjóri fjár­mála Íslands­banka um leynd yfir því hversu mikla pen­inga bank­inn lagði til hliðar til að mæta boð­aðri sekt fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­bank­ans.

Fjár­mála­eft­ir­litið hefði ekki til­kynnt bank­anum um fjár­hæð sekt­ar­innar og upp­hæðin sem bank­inn setti til hliðar er því byggð á mati bank­ans sjálfs á mögu­legri sekt.

Spurð hvort ekki væri eðli­legt að það mat for­svars­manna bank­ans, væri gert opin­bert, var á fjár­mála­stjóra bank­ans að heyra að bank­inn vildi ekki láta líta svo út fyrir að hann væri að reyna að hafa áhrif á ákvörðun fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­bank­ans.

„Við setjum inn upp­hæð sem er byggð á okkar mati en á móti viljum við heldur ekki vera að hafa áhrif á Seðla­bank­ann,“ sagði Jón Guðni fjár­mála­stjóri. „Þegar við síðan hittum þau á fundi í næstu eða þarnæstu viku, þá geta þau auð­vitað sagt okkur að segja þeim upp­hæð­ina en okkur finnst það ekki vera okkar hlut­verk að segja þeim hvað þetta á að vera. Það er svona hluti af því af hverju við viljum ekki vera að segja þetta, er að við viljum ekki vera að stýra því.“

Hvað hefur breyst?

Íslands­banki til­kynnti um það hinn 9. jan­úar síð­ast­lið­inn að fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­bank­ans hefði kynnt bank­anum frum­mat á ætl­uðum brotum Íslands­banka þegar 22,5% hlutur rík­is­ins í bank­anum var seldur í lok­uðu útboði í mars í fyrra. Eins og Heim­ildin greindi frá í lok jan­úar, telur eft­ir­litið bank­ann hafa brugð­ist laga­skyldum sínum í tengslum við kaup starfs­manna bank­ans á bréfum í útboð­inu. Alls tóku 8 starfs­menn bank­ans þátt í útboð­inu.

„Það er ýmis­legt sem við hefðum geta gert betur“
Birna Ein­ars­dóttir
banka­stjóri Íslands­banka um fram­kvæmd bank­ans á sölu á fjórð­ungs­hlut í sjálfum sér.

Í máli banka­stjóra Íslands­banka á fund­inum í dag, kom fram að strax í kjöl­far gagn­rýni á sölu­ferlið í bank­anum hafi verið brugð­ist við og verk­lags­reglum bank­ans og reglur hertar. Til að mynda hafi verið þrengt enn frekar á heim­ildum starfs­manna bank­ans til hluta­bréfa­kaupa og rík­ari kröfur gerðar um rekj­an­leika, til að mynda með því auk­inni áherslu á hljóð­ritun allra sím­tala. Áður var það undir starfs­mönnum sjálfum komið að taka upp öll þau sím­töl sem gátu leitt til við­skipta. Nokkuð sem fyr­ir­fórst að gera í mörgum til­fellum. 

„Þessi gagn­rýni var tekin mjög alvar­lega strax í upp­hafi og brugð­ist við með þessum hætti,“ sagði Jón Guðni sem sagði að ef til að mynda hinar nýju reglur um kaup starfs­manna á bréfum í bank­anum, hefðu gilt á þeim tíma þegar útboðið fór fram, hefðu færri starfs­menn geta keypt, en keyptu þá.

Spurð hverju hún sæi mest eftir í fram­kvæmd bank­ans í einka­væð­ing­ar­ferl­inu, sagði Birna:

„Það er ýmis­legt sem við hefðum getað gert betur.“

-Eins og hvað þá?

„Við hefðum getað haft meiri tíma. Tíminn sem við höfðum var mjög knappur.“

Spurð að því hvort og þá til hvaða aðgerða hefði verið gripið eftir að Íslands­banka var kynnt frum­mat fjár­mála­eft­ir­lits­ins í des­em­ber síð­ast­liðnum, hvort gripið hefði verið til aðgerða til að mynda gagn­vart starfs­mönnum, sem báru ábyrgð á fram­kvæmd­inni eða tóku þátt í útboð­inu, menn færðir til eða jafn­vel sagt upp störfum, sagði Birna:

„Við erum nátt­úru­lega bara með allt í skoðun í því,“ sagði Birna sem vildi ekki svara því frekar og vís­aði til þess að málið væri enn í ferli og bank­inn enn að vinna í því að afhenda gögn og vinna í svari sínu til fjár­mála­eft­irlt­is­ins. „Við erum bara búin að skoða ýmis­legt í þeim efnum,“ sagði Birna Ein­ars­dóttir banka­stjóri Íslands­banka.

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Upplýsingar 0 og nix! í boði stjórnvalda.
    1
  • S
    stef5 skrifaði
    Þegar ég var að læra hagdfræði 101 var mér sagt að fleiri útibú af hverju sem er væri sama og meiri samkeppni ! Eru bankarnir undanþegnir þessari lógík? Ólína Þorvarðar var alveg með þetta i Silfrinu, = allur hagnaður sem verður af sameiningu fer beint í þeirra eigin vasa. Þeir eru ekki og hafa aldrei borið hag almennings fyrir brjósti í einu eða neinu. Þannig að plís....reynið ekki bankafjandar að ljúga um annað.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár