Alls 1.291 íbúð í eigu einstaklinga sem eiga fimm íbúðir eða fleiri

Rúmlega fimmt­ungur allra íbúða í land­inu er í eigu lög­að­ila og rúm­lega fjórð­ungur þeirra íbúða sem ein­stak­lingar eru skráðir fyrir eru í eigu slíkra sem eiga tvær eða fleiri íbúðir.

Alls 1.291 íbúð í eigu einstaklinga sem eiga fimm íbúðir eða fleiri
Fyr­ir­spyrj­andi Hanna Katrín Frið­riks­son spurði inn­við­a­ráð­herra um íbúð­ar­hús­næði í eigu ein­stak­linga og lög­að­ila. Mynd: Bára Huld Beck

Alls eru 33.479 íbúðir á Íslandi í eigu ein­stak­linga sem eiga fleiri en eina íbúð. Það eru 26,5 pró­sent allra íbúa ein­stak­linga í land­inu, en þær eru 126.338 tals­ins. Þetta kemur fram í svari Sigurðar Inga Jóhanns­sonar inn­við­a­ráð­herra við fyr­ir­spurn Hönnu Katrínar Frið­riks­son, þing­manns Við­reisnar, um málið sem birt var á vef Alþingis í dag.

Lang­flestir þeirra sem eiga íbúð umfram þá sem þeir búa í eiga tvær íbúðir, en 22.769 íbúðir eru í eigu þeirra sem þannig háttar um. Alls 7.291 íbúðir eru í eigu ein­stak­linga sem eiga þrjár íbúðir, 2.128 íbúðir í eigu þeirra sem eiga fjórar og 1.291 íbúð í eigu þeirra sem eiga fimm eða fleiri. Séu eig­endur fleiri en einn er íbúðin flokkuð eftir þeim eig­anda sem á flestar íbúðir á land­inu í svar­inu, með þeim fyr­ir­vara að ef íbúð er bæði í eigu ein­stak­lings og lög­að­ila telst hún eign lög­að­ila.

Hanna Katrín spurði Sigurð Inga einnig að því hversu margar íbúðir væru alls í eigu lög­að­ila, og þar með ekki í eigu ein­stak­linga líka og hefð­bundið er með heim­ili. Í svari hans kom fram að alls 26.074 íbúðir eru í slíkri eigu, eða 20,6 pró­sent allra íbúða á land­inu.

Allar líkur standa til þess að þorri þeirra íbúða sem eru í eigu ein­stak­linga eða lög­að­ila séu í ein­hvers­konar útleigu, og myndi þar með tekjur fyrir við­kom­andi eig­anda. Þær eru því fjár­fest­ing­ar­eign, ekki heim­ili. Leigan getur til að mynda verið til lengri tíma til íbúa hér­lendis eða skamm­tíma­leiga til ferða­manna sem dvelja hér í nokkra daga eða vikur. Þá fer leigan oftar en ekki fram í gegnum Airbnb eða sam­bæri­lega vett­vanga.

2.618 íbúðir í eigu þeirra sem eiga þrjár eða fleiri

Í annarri fyr­ir­spurn sem einnig barst svar við í dag spurði Hanna Katrín sama ráð­herra um íbúð­ar­hús­næði í Reykja­vík. Í svari Sigurðar Inga kom fram að 45.704 full­búnar íbúðir í eigu ein­stak­linga eru í höf­uð­borg­inni. Þar af eru 9.060 í eigu slíkra sem eiga fleiri en eina íbúð, eða fimmta hver eign. Af þeim eru 2.618 íbúðir í eigu ein­stak­linga sem eiga fleiri þrjár eða fleiri íbúðir. 

Auk þess eru 11.498 íbúðir í eigu lög­að­ila. Lang­flestar þeirra, eða 9.966 íbúðir, eru í eigu slíkra aðila sem eiga að minnsta kosti þrjár íbúðir. Það þýðir að 87 pró­sent allra íbúða sem eru í eigu lög­að­ila í Reykja­vík til­heyra slíkum sem eiga að minnsta kosti þrjár íbúðir. 

101 stendur upp úr

Svar Sigurðar Inga um íbúðir í Reykja­vík er skipt niður á póst­númer. Þar kemur í ljós að langal­geng­ast er að ein­stak­lingar eigi þrjár eða fleiri íbúðir í póst­núm­eri 101. Þar eru 743 íbúðir í eigu ein­stak­linga sem þannig háttar um, eða 28,8 pró­sent allra íbúða eigu ein­stak­linga sem eiga þrjár eða fleiri eignir. Til að setja það hlut­fall í sam­hengi þá eru íbúðir í eigu ein­stak­linga í þessu póst­núm­eri, í mið­bænum, alls 13,4 pró­sent allra íbúða sem eru í slíkri eigu í höf­uð­borg­inni. Alls eru 12,2 pró­sent allra íbúða í þannig eign­ar­haldi í póst­núm­eri 101 í eigu ein­stak­linga sem eiga þrjár eða fleiri íbúðir.

Þegar kemur að íbúð­ar­eignum lög­að­ila sem eiga þrjár eða fleiri eignir þá eru þær flestar í póst­núm­eri 105, eða 1.548 tals­ins. Póst­númer 101 kemur þó fast á hæla þess með 1.330 eignir í slíku eign­ar­haldi.

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Siggi Rey skrifaði
    Ímynduð ykkur svo hve margar af þessum íbúðum eru leigðar svart!
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár