Vilja færa vald yfir umfangi Airbnb-íbúða til sveitarfélaga

Inn­við­a­ráð­herra segir að verið sé að skoða það að færa þær heim­ildir til að tak­marka þá daga sem leigja má út íbúð í gegnum Airbnb, og þá upp­hæð sem má taka inn í slíka leigu, til sveit­ar­fé­laga. Til­gang­ur­inn er að fjölga íbúðum á mark­aði.

Vilja færa vald yfir umfangi Airbnb-íbúða til sveitarfélaga
Viðræður Sigurður Ingi Jóhanns­son vill fjölga íbúðum á mark­aði. Ein leið að því mark­miði er að færa ákvörðun yfir því hversu margar íbúðir megi leigja út í gegnum Airbnb yfir til sveit­ar­fé­laga. Þau gætu þá alfarið bannað slíka útleigu. Mynd: Heiða Helgadóttir

Viðræður hafa átt sér stað milli inn­við­a­ráðu­neyt­is­ins ann­ars vegar og menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neyt­is­ins, sem fer með mál­efni ferða­mála, hins vegar, um að gefa sveit­ar­fé­lögum auknar heim­ildir til að tak­marka útleigu á hús­næði í gegnum Airbnb. Þetta stað­festir Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra í sam­tali við Heim­ild­ina. 

Hann segir að hug­myndin sé að setja tak­mark­anir á það hvað megi leigja margar íbúðir út og hve lengi til ferða­manna í gegnum Airbnb, og aðra sam­bæri­lega vett­vanga, í hendur sveit­ar­fé­lag­anna sjálfra. „Staðan er mis­mun­andi eftir sveit­ar­fé­lögum. Það er víðar en bara á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem Airbnb er áskorun fyrir sveit­ar­fé­lög. En svo eru til sveit­ar­fé­lög þar sem er til nóg af íbúðum og eru fyrst og fremst að leita eftir meiri ferða­manna­straumi. Með þessu gætu menn gert þetta svo­lítið sjálfir, heima hjá sér, og fengið þessi völd og áhrif sem menn vilja oft fá og notað þau.“

Hámarkið nú 90 dagar …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Hefur Innviðaráðherra nokkuð dottið í hug að það sé mun brýnna að koma böndum á leigumarkaðinn?
    OG ÞAÐ STRAX!!!!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár