Ástandið á menningarumfjöllun á Íslandi – mætti hugsa hana upp á nýtt?

Hvaða merk­ingu leggur fólk í menn­ing­ar­blaða­mennsku og hvað finnst þeim sem vel til menn­ingar þekkja um menn­ing­ar­blaða­mennsku eins og hún birt­ist á Íslandi í dag?

Ástandið á menningarumfjöllun á Íslandi  – mætti hugsa hana upp á nýtt?

Eins og hér hefur áður verið nefnt er umfjöllun um listir aðeins hluti af því sem hug­takið menn­ing­ar­blaða­mennska nær utan um. Menn­ing­ar­blaða­mennska er tæki til að rann­saka, afbyggja og greina menn­ingu og list, nokkuð sem getur verið flókið í fámenn­inu. En hún er líka tæki til að rýna í ný hug­tök, atvik, skoð­ana­skipti, hug­myndir, ímyndir, stefnur og strauma. Þannig getur hún leitt til vit­und­ar­vakn­ingar.

Þegar Heim­ildin hóf göngu sína var strax ákveðið að halda úti menn­ing­ar­síðum. En það tekur tíma fyrir slíkar síður að taka á sig mynd og upp­fylla alla þætti til að standa undir nafni.

Eins hefur dag­blað aðeins nokkrar síður til ráð­stöf­unar hverju sinni og er heldur ekki með eins mik­inn mann­skap til þess á rit­stjórn og RÚV sem sinnir menn­ingu af kost­gæfni. En hvaða merk­ingu leggur fólk í menn­ing­ar­blaða­mennsku?

Og hvað finnst þeim sem vel til hennar þekkja um menn­ing­ar­blaða­mennsku eins og hún birt­ist á Íslandi í dag?

Alltaf saknar maður þó Lesbókarinnar

Ásdís Thorodd­sen

Ásdís Thorodd­sen kvik­mynda­leik­stjóri bjó lengi í Þýska­landi þar sem er ríku­legt fram­boð á menn­ing­ar­efni. Það var ekki úr vegi að heyra álit hennar en hún segir að frá barn­æsku og fram á full­orð­insár hafi helsta iðja hennar verið að lesa blöðin. „Og þá sér­stak­lega „krítík“ á alla list­ræna starf­semi; allt var vegið og metið og fólk ræddi um það sem skrifað var,“ útskýrir Ásdís.

„Þessi tíma­þjófur, blaða­lest­ur­inn, efldist úr öllu valdi þegar ég flutti til útlanda og komst á stærra mál­svæði, þar sem þessi grein blaða­mennsku hefur við­hald­ist, en öðru­vísi horfir við hér heima; kannski hefur hér vægi list­ar­innar minnkað og umfjöll­unin þar með líka. En lítum á það sem vel er gert; Heim­ildin sýnir lit og Morg­un­blaðið vill gera það líka – en alltaf saknar maður þó Les­bók­ar­innar; Rík­is­út­varpið-sjón­varp og -hljóð­varp fjalla um menn­ingu af miklum móð og vand­virkni og það er gott.“

Engin stórmennska að hreyta skít í fólk

Silja Aðal­steins­dóttir rit­stýrði lengi menn­ing­ar­síðum DV, auk þess sem hún hefur starfað við rit­stjórn, gagn­rýni og útgáfu, svo eitt­hvað sé nefnt. En hún er þraut­reynd í menn­ing­ar­blaða­mennsku og aðspurð um hverju sé ábóta­vant svarar hún:

Silja Aðal­steins­dóttir

„Það þyrfti að skipu­leggja umfjöllun um menn­ing­ar­mál betur í þeim fjöl­miðlum sem stunda hana – en þeir mættu sann­ar­lega vera fleiri (húrra! fyrir Heim­ild­inni!). Leiklist, bók­menntum og kannski kvik­myndum er þokka­lega vel sinnt en öðrum list­greinum býsna til­vilj­ana­kennt – tón­list, mynd­list, hönnun, bygg­ing­ar­list. Það þarf styrkara og með­vit­aðra utan­um­hald til að neyt­endur fái alhliða fróð­leik um ástand menn­ing­ar­innar í land­inu.“

 Hún end­ur­tekur næstu spurn­ingu: „Hvað gerir menn­ing­ar­blaða­mennsku snúna í smáu sam­fé­lagi? – og svarar síðan: Það er akkúrat smæð sam­fé­lags­ins. Allir þekkja alla og taka nærri sér þegar frændur og vinir fá vonda dóma. Lausnin er ekki að hætta að vega og meta heldur orða nið­ur­stöður sínar kurt­eis­lega. Það er engin stór­mennska að hreyta skít í fólk.“

Var hann með kúkinn í poka?

Arnbjörg MaríaSegir að á svo litlu landi sem Íslandi mætti end­ur­hugsa menn­ing­arrýni, enda engu að tapa.

Arnbjörg María Dani­el­sen er leik­stjóri, fram­leið­andi og list­rænn stjórn­andi sem hefur starfað í Þýska­landi og í Skand­in­avíu þar sem menn­ing­ar­fjöl­miðlun hefur djúpar rætur og spriklar. Hvernig blasir þetta við henni?

„Fyrir stuttu klíndi list­rænn stjórn­andi hjá dans­flokki í stóru, þýsku leik­húsi hunda­skít í gagn­rýn­anda inni í miðju leik­húsi, segir Arnbjörg. „Hann var inni­halds­lega ósáttur við gagn­rýni sem við­kom­andi hafði skrifað um verk hans. Þetta er absúrd sena, en kannski mann­legt. Spurning hvort hann hafi verið með kúk­inn til­bú­inn í poka. Of mörgum spurn­ingum ósvarað í þessu …“

 Hún segir gagn­rýni sum sé ekki vera neitt grín.

„Þó hún mætti stundum vera fyndn­ari,“ heldur hún áfram.

„Þær umfjall­anir á Íslandi sem kom­ast best til skila og hafa oft eitt­hvert skemmt­ana­gildi eru að mínu mati í útvarp­inu – Lestin, Lest­ar­klef­inn, Víðsjá o.s.frv. – og ein­staka fag­tíma­ritum, eins og til dæmis Dunce Magazine – sem eru dýpri og metn­að­ar­full en ef til vill bara lesin af fag­að­ilum og sér­stöku áhuga­fólki um dans og gjörn­inga­list.“

 Að hennar mati er almenn umfjöllun í stærri fjöl­miðlum á Íslandi frekar yfir­borðs­kennd og virkar oft frekar eins og aug­lýs­ingar.

„Það er bara mark­að­skap­ít­al­ism­inn sem stjórnar þessu. Það sem fær lítið pláss og litla pen­inga er augljós­lega ekki nógu sexí. Og þá þarf að berj­ast sér­stak­lega fyrir því og keyra áfram af hug­sjón. Eða bara setja allt á tik tok og sjá hvað ger­ist.

„Það er mjög gaman að lesa vonda gagn­rýni, en það þarf að vera góð vond gagn­rýni.“
Arnbjörg María Dani­el­sen

Eins er gagn­rýni á Íslandi í mjög mörgum til­vikum bara skoð­anapistlar sem er leið­in­legt les­efni og best geymt á sam­fé­lags­miðlum þar sem slíkt lifir góðu lifi og gang­verk með­virknima­sk­ín­unnar getur mallað áfram.

Það er mjög gaman að lesa vonda gagn­rýni, en það þarf að vera góð vond gagn­rýni. Sama gildir um hið góða. Það þarf tals­vert dýpri vinnu til að skrifa almenni­lega gagn­rýni í sviðs­listum og öðl­ast sam­an­burðarreynslu. Fyrir lítið land einsog Ísland mætti end­ur­hugsa menn­ing­ar­gagn­rýni alveg frá grunni, enda engu að tapa svo sem. Menn­ing­ar­um­fjöll­unin er dauð. Lengi lifi menn­ing­ar­um­fjöll­unin.“

Þekking, forvitni og ástríða

Halldór Guð­munds­son rit­höf­undur starf­aði lengi sem útgef­andi og býr yfir marg­þættri inn­sýn í bóka­út­gáfu erlendis þar sem hann hefur verið í for­svari fyrir aðkomu landa á bóka­mess­unni í Frank­furt, en líka skrifað bækur bæði á íslensku og þýsku. Það er áhuga­vert að vita hvað hann hefur um þetta að segja, út frá bók­mennt­unum sem hafa kannski fengið mestan skerf af umfjöllun hér í gegnum tíð­ina.

Halldór Guð­munds­sonFékk rit­dóma í sex blöðum þegar hann gaf út fyrstu bók­ina, auk ann­arrar umfjöll­unar.

„Það er alltaf freist­andi að grípa til heimsósóma­tals þegar rætt er um bók­menntaum­fjöllun í íslenskum fjöl­miðlum, enda er það óspart gert,“ byrjar hann á að segja og bætir við að vissu­lega hafi miklar breyt­ingar orðið á síð­ustu ára­tugum.

„Þegar ég sendi frá mér mína fyrstu bók, fremur sér­hæft bók­mennta­sögu­legt verk, fyrir þrjá­tíu og sex árum, fékk ég alvöru rit­dóma í sex blöðum, auk ann­arrar umfjöll­unar. Nú getur ungur höf­undur gefið út bók án þess að sjá nokkuð um sig á prenti, og það hlýtur að vera erfitt. En margt er þó gert: Það er umtals­verð bók­menntaum­fjöllun hjá RÚV – hvar værum við án Kilj­unnar? Og í Morg­un­blað­inu, í ýmsum tíma­ritum og vef­síðum, þótt úthaldið þar sé mis­mikið, og það er fagn­að­ar­efni hvað Heim­ildin hefur tekið sér mikið tak.

Mig langar því frekar að benda á hvað þurfi til, svo umfjöllun sé góð og gagn­leg, les­endum sem höf­undum. Það er þrennt:

Þekking: Les­and­inn þarf að finna að gagn­rýn­andi viti til dæmis um fyrri verk höf­undar, hafi jafn­vel lesið ein­hver þeirra, og þekki jafn­framt eitt­hvað til bók­mennta­sögu. Þetta er ekki spurn­ing um háskóla­próf, heldur þekk­ingu.

Forvitni: Þau sem fjalla um bók­menntir, nú eða listir almennt, þurfa að vera for­vitin um það sem er á borð borið, nálg­ast það opnum huga. Ekkert er leið­in­legra en þegar gagn­rýn­andi segir manni að hann eða hún hafi séð þetta allt áður – jafn­vel þótt það sé satt.

Ástríða: Rétt eins og þegar höf­undur er ann­ars vegar þarf les­and­inn að finna að gagn­rýn­andi hafi ástríðu fyrir því sem hann skrifar, finn­ist mik­il­vægt að segja okkur það, helst að það horfi verr með ver­öld­ina ef okkur er ekki sagt frá því. Ekkert hrífur les­endur meira en ástríða í skrifum.

Frá mínum bæj­ar­dyrum skiptir ekki öllu að umfjöllun um bók­menntir sé meiri en nú er, svo lengi sem hún hefur þessa þrjá eig­in­leika í heiðri.“

Kallar eftir umfjöllun frá fjölbreyttari hópi fólks

Vigdís Jak­obs­dóttir

Vigdís Jak­obs­dóttir er list­rænn stjórn­andi Lista­há­tíðar og fylgist því með umfjöllun um listir af ólíkum toga, bæði hér og erlendis, en hún hefur starfað víða. Hún botnar þessa umfjöllun á list­rænan hátt:

„Flest þekkjum við gömlu ind­versku dæmisög­una um blindu menn­ina sem hitta fyrir fíl í fyrsta sinn og reyna að lýsa honum hver fyrir öðrum. Sá fyrsti grípur um ran­ann og segir að fíll­inn sé eins og stór slanga, næsti grípur um fót­legg­inn og lýsir fílnum sem stórum hrjúfum trjá­drumbi á meðan sá þriðji grípur um tönn fíls­ins og lýsir honum sem hörðum og renni­sléttum. Þótt lýs­ingar mann­anna séu gjör­ó­líkar hefur eng­inn þeirra rangt fyrir sér. Fíllinn er allt þetta og meira til. En heild­ar­myndin getur ekki komið í ljós fyrr en fleiri sjón­ar­mið koma saman,“ segir hún og kjarnar þannig mynd­ina.

„Þegar tón­leikar, mynd­list­ar­sýn­ing, bók eða leik­sýn­ing fær ein­hliða umfjöllun í fjöl­miðlum, svo ekki sé talað um gagn­rýni, er sama lög­mál í gangi. Ég kalla eftir umfjöllun frá fjöl­breytt­ari hópi fólks um menn­ingu og listir á Íslandi. Þjóðin er alls konar og menn­ing­ar­um­fjöllun á þess vegna að koma frá alls konar fólki. Aðeins þannig eigum við séns á því að fá ein­hverja yfir­sýn og til­finn­ingu fyrir raun­veru­legu gildi þess sem er að ger­ast í íslensku menn­ing­ar­lífi.“

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár