Segja vinnubrögð lögreglu hafa einkennst af vanþekkingu og vanvirðingu

Stjórn Blaða­manna­fé­lags Íslands for­dæmir fram­göngu lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra, sem hefur veitt enn einum blaða­mann­inum, Inga Frey Vil­hjálms­syni, stöðu sak­born­ings í tengslum við Sam­herj­a­málið.

Segja vinnubrögð lögreglu hafa einkennst af vanþekkingu og vanvirðingu
Fordæma fram­göng­una Stjórn Blaða­manna­fé­lags­ins for­dæmir fram­göngu lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra í Sam­herj­a­mál­inu. Páley Borg­þórs­dóttir er lög­reglu­stjóri á Norð­ur­landi eystra. Mynd: RÚV

Stjórn Blaða­manna­fé­lags­ins for­dæmir að enn einn blaða­mað­ur­inn, Ingi Freyr Vil­hjálms­son, hafi hlotið stöðu sak­born­ings í Sam­herj­a­mál­inu fyrir það eitt að sinna störfum sínum. Samkvæmt upp­lýs­ingum sem Ingi Freyr fékk frá lög­reglu er sak­ar­efni hans það eitt að hafa mót­tekið tölvu­póst.

Þetta kemur fram í ályktun sem stjórn sam­þykkti á fundi sínum. Þar segir enn fremur að stjórnin lýsti miklum áhyggjum af þeirri veg­ferð sem lög­regla virð­ist vera á þegar talið sé mögu­lega sak­næmt athæfi að taka á móti tölvu­póstum, þegar til­fellið sé að slíkt sé kjarni í vinnu hvers blaða­manns, það er að taka á móti upp­lýs­ingum, meta trú­verð­ug­leika þeirra og frétta­gildi fyrir almenn­ing.

Í álykt­un­inni er ákvörðun Lög­reglu­stjór­ans á Akureyri, um að veita blaða­mönnum stöðu sak­born­inga í mál­inu, sögð fárán­leg, enda liggi ekki fyrir að þeir hafi gerst sekir um nokkuð sak­næmt. „Enn­fremur vill Blaða­manna­fé­lagið und­ir­strika að störf og tján­ing­ar­frelsi blaða­manna njóta ríkrar verndar vegna þess sér­staka hlut­verks sem fjöl­miðlar gegna með til­liti til opin­berrar umræðu í lýð­ræð­is­ríki. Því ber að gjalda var­hug við íhlutan lög­reglu sem kann að vera túlkuð sem afskipti af störfum blaða­manna við öflun og miðlun frétta um mik­il­væg mál­efni.“

„Að mati félags­ins er rann­sóknin í heild til­efn­is­laus með öllu“
Stjórn Blaða­manna­fé­lags Íslands

Eins og Heim­ildin greindi frá upp­lýsti lög­regla Inga Frey um að hann hefði haft rétt­ar­stöðu sak­born­ings í um hálft annað ár án þess að hann væri upp­lýstur um það. Ástæðan hafi verið sú að lög­regla taldi Inga Frey vera búsettan erlendis. Í ályktun stjórnar Blaða­manna­fé­lags­ins er þetta sagt lýsandi fyrir vinnu­brögð lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra í mál­inu.

„Þau hafa ein­kennst af van­þekk­ingu en ekki síður van­virð­ingu gagn­vart grund­vall­ar­störfum blaða­manna og hlut­verki þeirra, sem og þeirri auknu vernd sem þeir hljóta sam­kvæmt lögum starfa sinna vegna. Að mati félags­ins er rann­sóknin í heild til­efn­is­laus með öllu. Hún er þó til þess gerð að skapa óvissu um laga­legan rétt blaða­manna og ótta innan stétt­ar­innar um að hver sem er geti hvenær sem er verið kall­aður til yfir­heyrslu og hlotið rétt­ar­stöðu sak­born­ings fyrir það eitt að fá sendan tölvu­póst.“

Í ofaná­lag telur Blaða­manna­fé­lagið óeðli­legt hversu langan tíma rann­sóknin hafi tekið og bendir á að rík­is­sak­sókn­ari hafi sent lög­reglu­stjór­anum á Norð­ur­landi eystra erindi þar sem óskað er eftir skýr­ingum þar á. „Það er íþyngj­andi fyrir alla að hafa rétt­ar­stöðu sak­born­ings, en fyrir blaða­menn er það sömu­leiðis mikið inn­grip inn í tján­ing­ar­frelsi þeirra og störf. Þeim mun mik­il­væg­ari almanna­hags­muni þarf þar af leið­andi til að rétt­læta slíkt inn­grip. Stjórn Blaða­manna­fé­lags­ins krefst þess að lög­reglan ljúki rann­sókn sinni án frek­ari tafa.“

Fyr­ir­vari um hags­muni: Í frétt­inni er fjallað um atburði sem tengj­ast Heim­ild­inni og starfs­mönnum fjöl­mið­ils­ins beint.

Kjósa
53
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÓHV
    Óskar H. Valtýsson skrifaði
    Héldu að blaðamaðurinn væri ekki á landinu? Einfalt mál að kanna það. Af einhverri ástæðu koma þeir ágætu félagar Geiri og Grani upp í hugann.
    4
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Tugir ef ekki hundruðir brota vegna kynferðisáreitis, eineltis osf. liggja í bið en málarmyndargerningur um hugsanlega fræðilegt brot til að valda þeim blaðamönnum sem vekja athygli á spillingu og slíku er tekið framfyrir og keyrt hart fram og eina sem blaðamannafélagið hefur að segja er smá mjálm. Ekki mikið gagn í þeim félagsskap sýnist mér.

    Ef lögreglan og yfirvöld væru ekki spillt þá væri til innra eftirlit sem væri núna í harðri vinnslu við að taka á ólögmætri vernd vopnasölu og haressment tengdra aðila stórbokka og vel settra möppudýra... óháð því hvort þeir eru vinir eða vandamenn viðkomandi yfirvalda.

    OG fimmmenningarnir ættu að hafa í huga ef þeir kunna due diligence að þeir hefðu átt að sjá fyrir að fuzzy lagasetning um verndun þeirra við vinnu sína væri auðvitað þykjustulög.
    1
  • Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Verður ekki að láta reyna á þetta fyrir dómstólum? Er lögreglan á norðurlandi að fara út fyrir starfssvið sitt í pólitískum tilgangi?
    6
    • Siggi Rey skrifaði
      Það kemur að því fyrr en síðar, vittu til! Það er ekki bara þessi D tildurdrós heldur eru tveir kvenlögreglustjórar á höfuðborgarsvæðinu sem báðar hafa gert upp à bak! Enda öllum troðið í stöðurnar af sjálfstæðisflokknum. Spillingin tær á þeim bæjunum!
      5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár