Helgi Seljan tilefndur fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins

Helgi Selj­an er til­nefnd­ur til blaða­manna­verð­launa Blaða­manna­fé­lags Ís­lands fyr­ir frétta­skýr­ing­ar um Al­ex­and­er Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­mann Ís­lands í Bela­rús, og ná­in tengsl hans við Al­ex­and­er Lukashen­ko, ein­ræð­is­herra lands­ins. Til­kynnt var um tólf til­nefn­ing­ar í fjór­um flokk­um fyrr í dag. Verð­laun­in verða af­hent eft­ir viku.

Helgi Seljan tilefndur fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins

Helgi Seljan er tilnefndur í flokknum rannsóknarblaðamennska ársins 2022 vegna fréttaskýringa um Alexander Moshensky, kjörræðismann Íslands í Belarús (Hvíta-Rússlandi), og náin tengsl hans við Alexander Lukashenko, einræðisherra landsins. Umfjöllunin birtist í Stundinni sem nú hefur sameinast Kjarnanum í miðlinum Heimildinni þar sem Helgi starfar sem rannsóknarritstjóri.

Í umsögn dómnefndar blaðamannaverðlaunanna segir: „Rannsókn Helga leiddi meðal annars í ljós að íslensk stjórnvöld áttu mikil samskipti við fulltrúa Evrópuríkja eftir að Moshensky leitaði liðsinnis þeirra vegna boðaðra refsiaðgerða gegn honum en Moshensky er umfangsmikill kaupandi íslenskra sjávarafurða. Í kjölfar fréttaskýringanna var mál Moshenskys tekið upp í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis og utanríkisráðherra kallaður fyrir nefndina.“

Helgi hefur þrisvar hlotið blaðamannaverðlaun Íslands og er þetta tíunda tilnefningin hans til þeirra verðlauna.

Fréttaskýringar Helga um Moshensky:

Dómnefnd verðlaunanna hefur nú, viku fyrir afhendingu þeirra, birt tilnefningar sínar í öllum fjórum flokkum verðlaunanna: Viðtal ársins, umfjöllun ársins, rannsóknarblaðamennska ársins og Blaðamannaverðlaun ársins. Tilkynnt verður föstudaginn 10. mars hverjir hljóta verðlaunin.

Tilnefningarnar allar eru sem hér segir: 

Viðtal ársins 2022

  • Lillý Valgerður Pétursdóttir, fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Fyrir viðtal við Arnar Þór Ómarsson og Petru Bergrúnu Axelsdóttur, íbúa á Þórshöfn á Langanesi, um aðdraganda andláts Berglindar Bjargar Arnardóttur, tveggja ára dóttur þeirra, úr Covid-19. Frásögn Arnars og Petru af missinum er átakanleg, en lýsir að auki brotalömum í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Blaðamaðurinn nálgast erfitt viðfangsefni af fágun og sýnir viðmælendum virðingu.
  • Sólveig Klara Ragnarsdóttir, RÚV. Fyrir viðtal við kynsegin ungmennin Dagbjörtu Heiðu Sigþórsdóttur, Iðunni Birnu Þórisdóttur, Alex Bergmann Einarsson og foreldra þeirra, um áreiti, ofbeldi og hvatningu til sjálfsskaða sem þau verða fyrir vegna kynupplifana sinna og útlits. Í viðtalinu lýsa þau áreiti í net- og raunheimum sem mjög hefur færst í aukana síðustu ár og afleiðingum þess fyrir þau.
  • Þórarinn Þórarinsson, Fréttablaðinu. Fyrir viðtal við Hrafn Jökulsson þúsundþjalasmið. Í viðtalinu ræðir Hrafn um bardaga sinn við Surtlu, mein sem fannst í honum mánuði áður en viðtalið var tekið og átti eftir að bera hann ofurliði mánuði síðar, og atburði árin áður en meinið fannst. Texti viðtalsins er kraftmikill og viðmælandinn birtist lesandanum ljóslifandi af lestrinum. 

Umfjöllun ársins 2022

  • Hólmfríður Gísladóttir, Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Samúel Karl Ólason, fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Fyrir Úkraínuvaktina sem var virk nánast alla daga, frá morgni til kvölds, frá 24. febrúar og út júnímánuð. Á þeim tíma miðlaði Vísir stöðugum straumi frétta og fréttaskýringa og var miðillinn í samkeppni við helstu fréttastofur heims um að vera fyrstur að koma upplýsingum á framfæri við lesendur sína. Með skjótu, öru og umfangsmiklu fréttastreymi sýndi Vísir yfirburði netmiðils í fréttaflutningi af yfirstandandi viðburði.
  • Ingólfur Bjarni Sigfússon, RÚV. Fyrir vandaða sjónvarpsumfjöllun um flóttafólk frá Sýrlandi sem settist að á Íslandi í boði stjórnvalda sem svokallaðir „kvótaflóttamenn“. Umfjöllunin hefst í Beirút 2015. Fylgst með tveimur fjölskyldum frá komu þeirra til Íslands, gleðinni yfir að komast í skjól frá stríði til áskorana sem bíða í nýju landi. Umfjöllunin gefur einstaka innsýn í líf flóttafólks og hvernig það tekst á við framandi samfélag eftir mismunandi leiðum og með mismunandi árangri.
  • Þorsteinn J. Vilhjálmsson. Fyrir útvarpsþáttaröð á Rás 1 um kennarann og útvarpsmanninn Skeggja Ásbjarnarson og ofbeldi hans gegn börnum í Laugarnesskóla. Þættirnir voru meðal annars byggðir á áhrifamiklum viðtölum við brotaþola kennarans en einnig við aðra sem báru honum vel söguna. Í sex útvarpsþáttum tókst Þorsteini J. að draga upp ljóslifandi mynd af Skeggja, virðingarstöðu hans í samfélaginu og kynferðisbrotum gegn fjölmörgum drengjum, sem og andlegt ofbeldi gagnvart stúlkum í skólanum. 

Rannsóknarblaðamennska ársins 2022

  • Guðný Halldórsdóttir og Ingvar Haraldsson, Viðskiptablaðinu. Fyrir fréttaskýringar um styrktarsjóð og fjármál Sonju de Zorilla. Í fréttaskýringunum var hulunni svipt af fjármálum styrktarsjóðs Sonju sem sögð var ríkasta kona Íslands um síðustu aldamót en fram að umfjöllun Ingvars og Guðnýjar höfðu takmarkaðar upplýsingar komið fram um fjármál sjóðsins. Fréttaskýringarnar vörpuðu ljósi á skort á eftirliti með góðgerðarsjóðum, bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum, og að ekki hafa allar styrkveitingar sjóðsins verið í samræmi við lög, meðal annars styrkveitingar til aðila sem eru nákomnir sjóðsstjórum styrktarsjóðsins.
  • Helgi Seljan, Stundinni. Fyrir fréttaskýringar um Alexander Moshensky, kjörræðismann Íslands í Belarús (Hvíta-Rússlandi), og náin tengsl hans við Alexander Lukashenko, einræðisherra landsins. Rannsókn Helga leiddi meðal annars í ljós að íslensk stjórnvöld áttu mikil samskipti við fulltrúa Evrópuríkja eftir að Moshensky leitaði liðsinnis þeirra vegna boðaðra refsiaðgerða gegn honum en Moshensky er umfangsmikill kaupandi íslenskra sjávarafurða. Í kjölfar fréttaskýringanna var mál Moshenskys tekið upp í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis og utanríkisráðherra kallaður fyrir nefndina.
  • Tryggvi Aðalbjörnsson, RÚV. Fyrir umfjöllun um öryggismál ferjunnar Baldurs. Ítarleg og upplýsandi umfjöllun um margvíslegar efasemdir sem uppi voru um öryggismál í Breiðafjarðarferjunni Baldri. Farið var í skoðunarferð um skipið með fyrrverandi skipaeftirlitsmanni og rætt bæði við fulltrúa stjórnvalda og fulltrúa rekstraraðila ferjunnar. Viðtölin voru afhjúpandi auk þess sem málið var vel sett fram sjónrænt og sett í stærra samhengi við öryggismál almennt og samgöngumál landsins. 

Blaðamannaverðlaun ársins 2022

  • Bogi Ágústsson, RÚV. Fyrir vandaða og yfirgripsmikla umfjöllun af erlendum vettvangi sem kristallast í Heimsglugganum, fréttaskýringum hans á Morgunvakt Rásar 1. Bogi beinir gjarnan sjónum að Norðurlöndunum og þá ekki síst Grænlandi og Færeyjum. Hann vekur áhuga hlustenda og dýpkar þekkingu þeirra á umfjöllunarefninu með því að segja skemmtilega frá og setja atburði í samhengi.
  • Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, Stöð 2. Fyrir þættina Leitin að upprunanum sem sýndir voru á Stöð 2.Þeir sýndu þá tilfinningaangist sem mansal við ættleiðingar frá Sri Lanka á 9. áratugnum veldur enn. Eftir áralanga leit tókst Sigrúnu með dyggri hjálp Auri Hinriksson og DNA-prófa að leiðrétta og finna rétta líffræðilega móður ungrar konu í leit að rótum sínum.
  • Sunna Valgerðardóttir, RÚV/ fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Fyrir fréttaskýringar á miðlum Sýnar og RÚV. Í Kompási varpaði Sunna nýju ljósi á trúarofbeldi innan sértrúarsöfnuða sem og ýmissa hópa sem fást við andleg málefni, og afleiðingar þess. Þá gaf þáttur hennar um ópíóíðafíkn raunsanna mynd af heimi morfínfíknar. Seinni hluta árs hafði Sunna umsjón með uppbyggingu nýs fréttaskýringaþáttar, Þetta helst, á Rás 1 þar sem efnistök eru fjölþætt og oft nýstárleg.
Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Reykjavík yfir landsmeðaltali í PISA en Reykjanesbær undir á öllum sviðum
4
InnlentNiðurstöður PISA

Reykja­vík yf­ir lands­með­al­tali í PISA en Reykja­nes­bær und­ir á öll­um svið­um

Mennta­mála­ráðu­neyt­ið hef­ur birt nið­ur­brot á nið­ur­stöð­um PISA eft­ir sveit­ar­fé­lög­um. Mun­ur á frammi­stöðu nem­enda í stærstu sveit­ar­fé­lög­um lands­ins minnk­ar þeg­ar tek­ið er til­lit til bak­grunns þeirra. Reykja­vík helst þó yf­ir lands­með­al­tali í vís­ind­um, stærð­fræðilæsi og lesskiln­ingi en Reykja­nes­bær und­ir á öll­um þrem­ur svið­um.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
1
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi
3
Tónlist

Reykja­vík­ur­borg tak­mark­ar að­gengi að tón­list­ar­námi

Þrátt fyr­ir stefnu Reykja­vík­ur­borg­ar um jafn­an rétt til list­sköp­un­ar lýsa skóla­stjórn­end­ur tón­list­ar­skóla þung­um áhyggj­um af þró­un mála. Ald­urstak­mörk hafi orð­ið til þess að vísa þurfti nem­end­um úr námi og aðr­ir kom­ist aldrei að. Sí­fellt sé þrengt að starf­semi tón­list­ar­skóla þar til þeir verði ann­að­hvort að sam­ein­ast eða loka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár