„Svartur blettur á orðspori Íslands“

Hvít-rúss­neskur for­seta­fram­bjóð­andi, sem sætti pynt­ingum og margra mán­aða varð­haldi í örygg­is­fang­elsi KGB, segir stuðn­ing Íslands við kjör­ræð­is­mann­inn Mos­hen­sky, stuðn­ing við Lukashenko. Ísland eigi að senda skýr skila­boð og reka kjör­ræð­is­mann­inn.

„Svartur blettur á orðspori Íslands“
Sam­visku­fangi Andrei Sannikov fyrir rétti í Minsk árið 2010. Hann var hand­tek­inn, pynt­aður og geymdur í örygg­is­fang­elsi KGB mán­uðum saman fyrir það eitt að bjóða sig fram gegn Aleksander Lukashenko í kosn­ingum 2010, og sætta sig ekki við hina aug­ljósu ann­marka á fram­kvæmd og taln­ingu í kosn­ing­unum. Mynd: AFP

„Mos­hen­sky er mjög náinn stuðn­ings- og banda­maður Lukashenko, að halda öðru fram er blátt áfram hlægi­legt,“ segir Andrei Sannikov, spurður um þau orð íslenska utan­rík­is­ráð­herr­ans, að það sé orðum aukið að segja íslenska kjör­ræð­is­mann­inn Aleksander Mos­hen­sky náinn banda­mann Aleksander Lukes­henko, ein­ræð­is­herra Hvíta-Rúss­lands.

Andrei Sannikov var aðstoð­arutan­rík­is­ráð­herra í rík­is­stjórn Aleksander Lukashenko um tveggja ára skeið á tíunda ára­tugnum, en sagði af sér í mót­mæla­skyni árið 1996 og hefur síðan verið virkur í and­stöðu við Lukashenko. Hann bauð sig fram til for­seta árið 2010 og fékk næst­flest atkvæði, sam­kvæmt opin­berum tölum. Að kvöldi kjör­dags var Andrei lam­inn og hand­tek­inn ásamt konu sinni. Hann var fluttur í alræmt fang­elsi örygg­is­lög­regl­unnar KGB og haldið þar með leynd í 16 mán­uði. 

Sannikov óvígur eftir örygg­is­lög­regluFriðsöm mót­mæli á Sjálf­stæð­is­torg­inu í Minsk að kvöldi kjör­dags 19. des­em­ber 2010 voru barin niður af fádæma hörku af örygg­is­lög­reglu lands­ins. Þessi mynd af Andrei …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ólígarkinn okkar

Pólverjar æfir vegna ólígarkans okkar
FréttirÓlígarkinn okkar

Pól­verjar æfir vegna ólíg­ar­kans okkar

Áhrifa­miklir pólskir stjórn­mála­menn brugð­ust í vik­unni harka­lega við fréttum af því að ólíg­arki frá Belarús, sem ítrekað hefur verið reynt að beita við­skipta­þving­unum, vegna tengsla hans við ein­ræð­is­stjórn­ina í Minsk, hefði komið sér fyrir í Varsjá. Um er að ræða íslenska kjör­ræð­is­mann­inn í Belarús, sem fer allra sinna ferða í skjóli verndar sem sendi­full­trúi Belarús. Óásætt­an­legt er að hann sé full­trúi Íslands, segir sér­fræð­ingur.
Úkraínskt orkufyrirtæki flutt af nafni ólígarka í skúffufélag í Smáíbúðahverfinu
AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Úkra­ínskt orku­fyr­ir­tæki flutt af nafni ólíg­arka í skúffu­fé­lag í Smá­í­búða­hverf­inu

Íslenskur banka­maður, Karl Kon­ráðs­son, er sagður hafa keypt helm­ings­hlut í úkra­ínsku orku­fyr­ir­tæki nýverið af Aleksander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­manni Íslands og ólíg­arka í Belarús. Áður hafði Karl eign­ast breskt félag Mos­hen­skys fyrir slikk. Þá og nú átti Mos­hen­sky á hættu að sæta við­skipta­þving­unum, vegna tengsla sinna við stjórn­völd í Belarús.
Tugir milljarða í skattaskjól í gegnum Smáíbúðahverfið
RannsóknÓlígarkinn okkar

Tugir millj­arða í skatta­skjól í gegnum Smá­í­búða­hverfið

Kjör­ræð­is­maður Íslands í Belarús hefur á und­an­förnum árum flutt tugi millj­arða króna til dul­ar­fulls aflands­fé­lags á Seychelles-eyjum með aðstoð félags sem stýrt er úr heima­húsi Reykja­vík. Um er að ræða ávinn­ing af fisk­við­skiptum og sér­kenni­legum lán­veit­ingum til fyr­ir­tækja kjör­ræð­is­manns­ins í Austur-Evrópu, sem allt bendir til að séu gerð til að koma hagn­aði undan sköttum.
Gagnrýndi stjórnvöld fyrir hræsni í málefnum Belarús
FréttirÓlígarkinn okkar

Gagn­rýndi stjórn­völd fyrir hræsni í mál­efnum Belarús

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­kona Pírata sak­aði íslensk stjórn­völd og utan­rík­is­ráð­herra um hræsni, í umræðum um bar­áttu lýð­ræð­is­sinna í Belarús á Evr­ópu­ráðs­þing­inu í gær. Íslensk stjórn­völd gætu ekki látið sér nægja að sitja fyrir á myndum og segj­ast styðja stjórn­and­stöðu lands­ins, á sama tíma og þeir hefðu náinn sam­verka­mann ein­ræð­is­stjórn­ar­innar í emb­ætti kjör­ræð­is­manns.
Ólígarkinn okkar fastagestur í einkaþotum einræðisherrans
AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Ólíg­ar­k­inn okkar fasta­gestur í einka­þotum ein­ræð­is­herr­ans

Alex­ander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­maður Íslands í Hvíta-Rúss­landi, hefur flogið hátt í þrjá­tíu sinnum með einka­þotum ein­ræð­is­stjórnar Lukashenko á síð­ast­liðnum ára­tug, sam­kvæmt gögnum sem lekið var nýlega. Eingöngu fjöl­skylda og nán­ustu banda­menn Aleksand­ers Lukashenko nota þot­urnar. Bæði þot­urnar og flestir far­þega hennar hafa verið sett í ferða­bann um Evrópu og Norður-Ameríku.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár