Vaxtakostnaður ríkissjóðs Íslands einn sá hæsti í Evrópu

Íslenska ríkið hefur safnað umtals­verðum skuldum á síð­ustu árum, enda verið rekið í mörg hund­ruð millj­arða króna halla. Í ár er reiknað með að vaxta­gjöld verði næstum 95 millj­arðar króna. Ísland er á pari við Ítalíu, sem er ekki þekkt fyrir burðug opin­ber fjár­mál, þegar kemur að vaxta­kostn­aði sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu.

Vaxtakostnaður ríkissjóðs Íslands einn sá hæsti í Evrópu
Fjármála- og efna­hags­ráð­herra Bjarni Bene­dikts­son hefur eytt þorra síð­asta ára­tugar í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu þar sem hann stýrir fjár­málum rík­is­sjóðs. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Í skýrslu sem Alþjóða­bank­inn gaf út í síð­asta mán­uði kom fram að hag­vöxtur á heims­vísu muni hægja veru­lega á sér á þessu ári. Raunar verði hann sá þriðji minnsti í næstum þrjá ára­tugi. Einu árin sem komi verr út séu 2009, í kjöl­far alþjóð­legu fjár­málakrepp­unnar, og 2020, þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á heim­inum í upp­hafi árs. 

Þennan sam­drátt má rekja til meira aðhalds í rík­is­rekstri, hárrar verð­bólgu, versn­andi fjár­mögn­un­ar­skil­yrða á heims­vísu og áfram­hald­andi trufl­unum á heims­bú­skap­inn vegna áhrifa af inn­rás Rússa í Úkraínu. Þá er varað við að frek­ari áföll á árinu 2023 geti ýkt sam­drátt­inn enn frekar. 

Í skýrsl­unni segir að lítil ríki séu sér­stak­lega við­kvæm fyrir slíkum áföllum vegna þess að þau treysta á utan­rík­is­við­skipti og aðgengi að skap­lega verð­lagðri alþjóð­legri fjár­mögnun, hvíla á fáum efna­hags­legum stoðum og með frekar eins­leitt atvinnu­líf, skuldir þeirra hafa verið að aukast og þau eru afar næm fyrir áhrifum af nátt­úru­ham­förum. 

Eitt slíkt lítið land er Ísland. 

Mörg hundruð milljarða króna halli

Íslenska ríkið hefur verið rekið í miklum halla á und­an­förnum árum. Alls var afkoma rík­is­sjóðs nei­kvæð um 274 millj­arða króna á árunum 2020 og 2021, þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn geis­aði með til­heyr­andi áhrifum á efna­hags­kerfi lands­ins. Þegar frum­varp til fjár­auka­laga var lagt fram í nóv­em­ber í fyrra kom fram að það stefndi í að hall­inn vegna árs­ins 2022 yrði 126 millj­arðar króna. Í afgreiddu fjár­laga­frum­varpi yfir­stand­andi árs kemur fram að hann sé 120 millj­arðar króna á árinu 2023. Til við­bótar reikna fjár­lög með því að hlutur íslenska rík­is­ins í Íslands­banka verði seldur fyrir 76 millj­arða króna í ár, sem er alls ekki fyr­ir­liggj­andi að ger­ist. Verði ekki af þeirri sölu þarf að fjár­magna skuld­bind­ingar upp á þá upp­hæð með nýrri lán­töku. 

Þessi mikli halli hefur eðli­lega mikil og nei­kvæð áhrif á skulda­stöðu íslenska rík­is­ins. Hluti af þeirri stöðu var mætt með því að taka 190 millj­arða króna lán úr hinum umdeilda ÍL-sjóði á árunum 2020 og 2021, en fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið fer með stjórn sjóðs­ins. Þau lán bera verð­tryggða vexti sem bíta fast í hárri verð­bólgu líkt og nú er, en verð­bólga mælist 9,9 pró­sent um þessar mundir. Rík­is­sjóður þarf að byrja end­ur­greiðslu þeirra lána á árinu 2026. Þótt ÍL-sjóður sé með rík­is­á­byrgð, og rík­is­sjóður sé helsti skuld­ari hans, eru skuldir hans ekki taldar með þegar skulda­hlut­fall rík­is­sjóðs er reiknað út. Fyrir vikið lítur það betur út en ella. 

Um 155 milljarða króna lánsþörf á árinu 2023

Í lok síð­asta árs birti fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið stefnu í lána­málum og fjár­mögnun rík­is­sjóðs á árinu 2023. Þar kom fram að láns­þörf í ár er 155 millj­arðar króna. Samkvæmt skulda­reglu mega heild­ar­skuldir rík­is­sjóðs, að frá­töldum líf­eyr­is­skuld­bind­ingum og við­skipta­skuldum og að frá­dregnum sjóðum og banka­inn­stæð­um, ekki fara yfir 30 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu. Þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á var sú skulda­regla, sem sett er fram í lögum um opin­ber fjár­mál, tekin úr sam­bandi og skuldir rík­is­sjóðs hafa verið yfir því marki síðan 2019. Þegar með eru taldar skuldir A-hluta sveit­ar­fé­laga þá eru skuldir hins opin­bera á Íslandi yfir með­al­lagi í sam­an­burði við önnur Evr­ópu­ríki.

 Í sam­an­tekt fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, sem kynnt var fyrir fjár­laga­nefnd snemma árs, kom fram að 16 ríki innan Evr­ópu­sam­bands­ins væru með lægra skulda­hlut­fall en Ísland, en tíu með hærra. 

Stærsta vanda­málið sem rík­is­sjóður stendur frammi fyrir er þó ekki vax­andi skuldir, heldur stór­auk­inn vaxta­kostn­aður. Ávöxt­un­ar­krafa rík­is­bréfa hefur hækkað hratt und­an­farin tvö ár, sem hefur leitt af sér miklar hækk­anir á vaxta­gjöldum. Þannig er ávöxt­un­ar­krafa óverð­tryggðra rík­is­bréfa nú rúm­lega tvö­falt hærri en hún var lengst af árið 2020. Fyrir vikið er mun dýr­ara að taka lán.

Einungis Ítalía borgar hærri vaxtagjöld

Ofan á það er hlutur verð­tryggðra lána að jafn­aði 20 til 30 pró­sent af lána­safni rík­is­sjóðs. Í næstum tíu pró­sent verð­bólgu stór­eykst hlutur verð­bóta. Fyrir vikið eru vaxta­gjöld rík­is­sjóðs Íslands í erlendum sam­an­burði veru­lega há. Í glæru sem birt var í áður­nefndri kynn­ingu kom fram að í sam­an­burði við Evr­ópu­sam­bands­ríkin séu vaxta­gjöld Íslands þau næst­hæstu. Einungis Ítalía greiði hærri vaxta­gjöld sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu á ári. Ísland greiðir meira en Grikk­land, sem er ekki þekkt fyrir góða stöðu þegar kemur að opin­berum fjár­málum. Vaxta­byrði Norð­ur­landa er til að mynda brot af því sem hún er á Íslandi. 

Til að setja þessa þróun í sam­hengi þá má benda á að þegar fjár­auka­lög síð­asta árs voru sam­þykkt lá fyrir að auka þurfti útgjöld rík­is­sjóðs vegna vaxta­kostn­aðar um 37 millj­arða króna frá því sem áætlað hafði verið í fjár­lögum sama árs. Heild­ar­talan fór úr 51,7 í 88,7 millj­arða króna. 

Samkvæmt fjár­lögum árs­ins 2023 eru vaxta­gjöld rík­is­sjóðs áætluð 94,7 millj­arðar króna í ár. Þau hækk­uðu um 13,6 millj­arða króna frá því að fjár­laga­frum­varpið var lagt fram í sept­em­ber 2022 og þar til loka­af­urðin var sam­þykkt í des­em­ber sama ár.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurveig Eysteins skrifaði
    Ríkið er að troða á næstu kynslóð algjörlega ókleift að búa á Íslandi til framtíðar.... ef ekkert breytist þá verður algjörlega vonlaust að búa á Íslandi nema þú viljir vera þræl ríkisins.. hvernig væri að þjóð vaknaði og hætti þessari meðvirkni ... við lifum ekki á fegurð landsins... 150 milljarðar i lán.... hver á að borga það... ? VAKNIÐ...🫣😳🥴
    0
  • Sigurveig Eysteins skrifaði
    Já Bjarni Ben er búin að gera þessa þjóð gjaldþrota...
    hvernig væri að við tækjum landhelgina aftur og skattleggjum þá ríku....er eðlilegt að fyrirtæki sem lifa á þjóðareign séu að borga sér milljarða í arð ....takið eftir ekki milljónir ... heldur MILLJARÐA... til skammar ... af hverju fórum við í þrjú þorskastríð... ?
    Já af hverju ...?
    0
  • Baldur Gudmundsson skrifaði
    Góð eins og venjulega hjá Þórði
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár