Lestur Fréttablaðsins hrundi í janúarmánuði

Í kjöl­far breyt­inga á dreif­ingu Frétta­blaðs­ins, sem fólu í sér að hætt var að dreifa blað­inu heim til fólks á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á Ak­ur­eyri í upp­hafi árs, hrundi lest­ur þess sam­kvæmt sam­ræmd­um lestr­ar­mæl­ing­um Gallup. Morg­un­blað­ið mæl­ist nú með meiri lest­ur hjá öll­um hóp­um les­enda.

Lestur Fréttablaðsins hrundi í janúarmánuði
Forstjórinn Jón Þórisson er forstjóri Torgs, útgáfufélags Fréttablaðsins, DV og Hringbrautar. Mynd: Fréttablaðið / Anton Brink

Lestur prentútgáfu Fréttablaðsins hrundi í janúarmánuði, í kjölfar þess að sú ákvörðun var tekin að hætta að dreifa blaðinu í hús á höfuðborgarsvæðinu og gera það í staðinn aðgengilegt á fjölförnum stöðum á borð við matvöruverslanir, sundlaugar og líkamsræktarstöðvar.

Þetta má lesa úr nýbirtum tölum Gallup um lestur prentmiðla í janúarmánuði, en Fréttablaðið, sem var lesið af 28,2 prósentum landsmanna í desembe, var lesið af 15,7 prósentum landsmanna í janúarmánuði samkvæmt nýjustu mælingum.

Ef einungis er horft til höfuðborgarsvæðisins rúmlega helmingaðist lestur Fréttablaðsins í janúarmánuði og fór úr 34,6 prósenta meðallestri niður í 17,2 prósenta meðallestur á hvert tölublað. 

HrunLestur Fréttablaðsins mælist minni en lestur Morgunblaðsins í janúarmælingum Gallup.

Ef horft er til aldurshópsins 18-49 ára á landinu öllu fór lestur blaðsins úr 17,4 prósentum niður í 8,1 prósent á milli mánaða og ef horft er til þessa aldurshóps á höfuðborgarsvæðinu fór lestur blaðsins úr 23,4 prósentum niður í 9,1 prósent.

Mogginn meira lesinn í öllum hópum

Þetta hrun í lestri Fréttablaðsins þýðir að blaðið getur í fyrsta sinn í langan tíma ekki státað sig af því að vera mest lesna dagblað landsins. Morgunblaðið er með meiri meðallestur á tölublað í öllum hópum sem Gallup tekur til skoðunar í lestrarmælingum sínum.

Þegar horft er yfir landið allt og alla aldurshópa er meðallestur Morgunblaðsins 18,9 prósent, á höfuðborgarsvæðinu 19,9 prósent, en þegar horft er til aldurshópsins 18-49 ára er meðallesturinn 8,8 prósent á landinu öllu og 9,8 prósent í þeim aldurshópi á höfuðborgarsvæðinu.

Forstjórinn sagðist ekki búast við neinum breytingum á lestri

Í frétt sem birtist í Fréttablaðinu í upphafi ársins var tilkynnt um breytta dreifingu og þar var þess sérstaklega getið að ekki væri búist við því að lestur blaðsins kæmi til með að dragast saman.

„Þetta er ein­stök staða á heims­vísu,“ sagði Jón Þórisson forstjóri Torgs um 28 prósenta lestur blaðsins á landsvísu og 35 prósenta lestur blaðsins á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt könnunum Gallup.

„Lesturinn hefur vaxið undan­farna mánuði í kjöl­far þess að við hófum að dreifa blaðinu á fjöl­förnum stöðum. Það er engin á­stæða til að ætla annað en lesturinn gæti orðið að minnsta kosti sam­bæri­legur eftir þessa breytingu. Þessi breytta dreifing tryggir snerti­flöt við yfir 85 prósent lands­manna,“ var haft eftir Jóni í blaðinu.

Gallup mælir einnig meðallestur Viðskiptablaðsins, sem kemur út vikulega til áskrifanda, en lestur blaðsins mældist 5 prósent á landsvísu og 5,8 prósent á höfuðborgarsvæðinu.

Fyrirtækið mælir einnig lestur prentmiðla sem koma sjaldnar út og mældist lestur prentútgáfu Heimildarinnar, sem kemur út á tveggja vikna fresti, 8,5 prósent á landinu öllu og 9,9 prósent á höfuðborgarsvæðinu. 

Ekki liggja fyrir lestrartölur fyrir Bændablaðið í janúar, en lestur blaðsins, sem kemur út hálfsmánaðarlega, mældist 26 prósent á landinu öllu í desember og 19,5 prósent á höfuðborgarsvæðinu.

Í Prentmiðlakönnun Gallup er lestur dagblaða mældur með samfelldum hætti allt árið, en um 30 svörum er safnað á hverjum degi sem þýðir að svörin eru um 2.500 talsins á hverjum ársfjórðungi. Í úrtakinu eru Íslendingar á aldrinum 12-80 ára af landinu öllu.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Söfnuðu hundruðum milljóna frá nafnlausum aðilum fyrir menningarmiðstöð gyðinga á Íslandi
3
Innlent

Söfn­uðu hundruð­um millj­óna frá nafn­laus­um að­il­um fyr­ir menn­ing­ar­mið­stöð gyð­inga á Ís­landi

Rabbíni gyð­inga á Ís­landi virð­ist hafa safn­að 436 millj­ón­um króna frá nafn­laus­um styrkj­end­um til að kaupa og reka menn­ing­ar­mið­stöð gyð­inga við Hverf­is­götu í Reykja­vík. Fjár­fest­ir sem er á svört­um lista í Bretlandi vegna tengsla við Rúss­land klippti á borð­ann. Hann hef­ur styrkt upp­kaup á heim­il­um Palestínu­manna til að stækka byggð­ir gyð­inga.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
1
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.
„Ég elska þig á íslensku“ – endurreisnarmaður íslenskunnar
4
Menning

„Ég elska þig á ís­lensku“ – end­ur­reisn­ar­mað­ur ís­lensk­unn­ar

„Fá­ir ef nokkr­ir lista­menn hafi haft jafn mik­il áhrif á ís­lenska tungu í sam­tím­an­um og Bubbi Mort­hens,” seg­ir lærð­ur við­mæl­andi í grein þess­ari af til­efni sjö­tugsaf­mæl­is hans. Ann­ar seg­ir hann vera mik­il­væg­an end­ur­reisn­ar­mann ís­lensk­unn­ar. Þenn­an lista­mann þjóð­arsál­ar­inn­ar sem ýms­ir smætt­uðu þó í upp­hafi sök­um meintr­ar skrif­blindu.

Mest lesið í mánuðinum

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
2
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.
Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
4
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.
Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
5
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár