Hverjar verða áherslur ráðamanna og stjórnmálafólks í dýrtíðinni framundan?

Eftir nýyf­ir­staðna nefnd­ar­viku hefst fyrsti þing­fundur árs­ins klukkan 15 í dag. Ýmislegt verður á dag­skrá þings­ins og hafa þing­menn og ráð­herrar í nógu að snú­ast á næst­unni. Heim­ildin hafði sam­band við for­sæt­is­ráð­herra og for­ystu­fólk í stjórn­ar­and­stöð­unni til að taka púls­inn á því sem koma skal á næstu mán­uðum á Alþingi Íslend­inga.

Hverjar verða áherslur ráðamanna og stjórnmálafólks í dýrtíðinni framundan?

Hækkandi verð, verð­bólga og vaxta­hækk­anir eru ofar­lega í huga land­ans um þessar mundir og mun fyrsti þing­fundur eftir jóla­frí hefj­ast seinni part­inn í dag. Á dag­skrá er óund­ir­bú­inn fyr­ir­spurna­tími og önnur umræða umdeilds útlend­inga­frum­varps Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra.

En hvað er framundan næstu vikur og mán­uði; hverjar verða áherslur rík­is­stjórn­ar­innar og stjórn­ar­and­stöð­unnar á kom­andi þingi? Hafa stjórn­málin ein­hverjar lausnir í því árferði sem nú er? Heim­ildin kann­aði málið. 

Fjármálaáætlun til næstu fimm ára „vekur alltaf athygli“

Í skrif­legu svari Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra til Heim­ild­ar­innar þegar hún er spurð út í áherslu­mál rík­is­stjórn­ar­innar kemur fram að á þessu þingi séu til með­ferðar nokkur mál sem ekki klár­uð­ust á haust­þingi, þar á meðal end­ur­skoðuð þjóðar­ör­ygg­is­stefna fyrir Ísland sem hún lagði fram í haust. Þá muni for­sæt­is­ráð­herra jafn­framt leggja fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um aðgerðir gegn hat­urs­orð­ræðu.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra.

„Fjár­mála­á­ætlun til næstu fimm ára vekur alltaf athygli en hún verður …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár