Útgerð og sjómenn fái meira í sinn hlut til að draga úr brottkasti

Hvatar til þess að landa afla sem tal­inn er „óæski­legur“ eru ófull­nægj­andi og valda brott­kasti á fiski. Eftirlit sýnir að brott­kast á sér stað í tölu­verðu mæli á Íslands­miðum þvert á það sem for­svars­menn útgerð­ar­innar höfðu áður haldið fram.

Útgerð og sjómenn fái meira í sinn hlut til að draga úr brottkasti
Brott­kast Lagðar eru til leiðir til að takast á við brott­kast í bráða­birgða­til­lögum starfs­hópa Auð­lind­ar­innar okkar. Mynd: Landhelgisgæslan

Við­ur­kennt er í bráða­birgða­nið­ur­stöðum starfs­hópa Auð­lind­ar­innar okkar að brott­kast á fiski eigi sér stað í íslenskri land­helgi. Umfang þess sé hins vegar óljóst. Hvatar til að koma með þann afla sem er tal­inn „óæski­legur“, og er í ein­hverju mæli fleygt aftur í sjó­inn, eru ófull­nægj­andi og við því verður að bregð­ast. Búa þarf til hvata sem tryggja að allur afli komi að landi en á sama tíma má ekki hvetja til þess að skip veiði umfram afla­heim­ildir.

Fiski­stofa hóf eft­ir­lit, með drónum, með brott­kasti í byrjun árs 2021. Í svari Svan­dísar Svav­ars­dóttur mat­væla­ráð­herra við fyr­ir­spurn þar um, í apríl á síð­asta ári, kom fram að brott­kasts hefði orðið vart hjá um 40 pró­sentum allra þeirra báta sem Fiski­stofa hefði flogið yfir síðan dróna­eft­ir­litið hófst. Hlut­fallið væri óháð teg­und veið­ar­færa, en til­greint var að aðeins lít­ill hluti dróna­eft­ir­lits­ins hefði farið fram yfir stærri skipum, fjarri landi.

„Brott­kast því metið óveru­legt“
Fiski­stofa
í svari sínu um mat á brott­kasti áður en dróna­eft­ir­lit hófst

Í svari ráð­herra er vísað til upp­lýs­inga frá Fiski­stofu. Kemur þar fram að fyrir þann tíma að dróna­eft­ir­litið hófst hafi brott­kasts­mál verið fá, alla jafna innan við tíu á ári. Samkvæmt Fiski­stofu var „brott­kast því metið óveru­legt“. Árið 2021, eftir að dróna­eft­ir­lit hófst, voru brott­kasts­mál hins vegar um 140 tals­ins. Upp­götv­uð­ust þau því sem næst öll við dróna­eft­ir­lit.

All­veru­legt brott­kastLjóst er, eftir að eft­ir­lit með drónum hófst, að brott­kast fisks á Íslands­miðum er veru­legt.

Fiski­stofa metur það því svo nú að umfang ólög­legs brott­kasts á mið­unum sé all­nokk­urt, og mun meira en áður hafði verið talið. Ekki eru til töl­fræði­grein­ingar að svo komnu máli til að meta magn þess, þó unnið sé að að því að finna leiðir til þess, en til­greint er að brott­kast hafi mælst allt upp í 27 pró­sent af heild­ar­afla eins báts í stakri veiði­ferð.

Hvað er óverulegt brottkast?

Í ljósi þess hvernig svarið er orðað, að Fiski­stofa hafi metið brott­kast óveru­legt áður en dróna­eft­ir­lit hófst, þá hlýtur að þurfa að velta fyrir sér hvað telj­ist óveru­legt. Haf­rann­sókn­ar­stofnun rann­sakar brott­kast og í rann­sókn stofn­un­ar­innar fyrir árið 2015 var brott­kast á ýsu og þorski talið hafa numið 3.200 tonnum, hið mesta í ára­tug. Brott­kast tog­ara­flot­ans ein­vörð­ungu hafi það ár, aðeins á þorski, numið um 1.400 tonnum. Það þýðir að árið 2015 var milljón þorskum hent fyrir borð eftir að hafa komið upp á dekk á tog­urum Íslend­inga. Hvort það geti talist óveru­legt er mats­at­riði.

„Það hefur aldrei verið hægt að fara á sjó og fiska bara eina teg­und af fiski“
Þór­hallur Ottesen
fyrr­ver­andi eft­ir­lits­maður og deild­ar­stjóri hjá Fiski­stofu

Í umfjöllun frétta­skýr­inga­þátt­ar­ins Kveiks árið 2017 var birt myndefni af brott­kasti um borð í tog­ar­anum Kleifa­bergi, sem tekið var á árunum 2008 til 2011. Á því sást hvernig þorski undir ákveð­inni stærð og með­a­fla á karfa­veiðum var hent, rétt eins og mörgum tonnum af mak­ríl.

Myndefnið var aðeins stað­fest­ing á því sem allir máttu vita, að brott­kast hafi tíðkast árum saman. „Það hefur aldrei verið hægt að fara á sjó og fiska bara eina teg­und af fiski,“ sagði Þór­hallur Ottesen, sem starf­aði sem eft­ir­lits­maður og síðar deild­ar­stjóri land­eft­ir­lits Fiski­stofu í rúm 20 ár í við­tali við Kveik. Þar nefndi Þór­hallur dæmi, meðal ann­ars um grá­sleppu­báta sem aldrei hefðu landað öðru en grá­sleppu, aldrei gert grein fyrir með­a­fla. Allt þar til eft­ir­lits­menn hefðu farið út með bát­unum. Eitt dæmi var um bát sem fékk sjö tonn af þorski í einni veiði­ferð en hafði aldrei áður landað þorski. Annað dæmi var um bát þar sem í net­inu voru, þegar það var dregið um borð, sautján selir og fjöldi fugla, þar á meðal alfriðuð teg­und. Þegar sjó­mað­ur­inn var spurður hvers vegna hann hefði aldrei áður gert grein fyrir með­a­fla sagði hann að um væri að ræða hreina til­viljun.

„Af þess­um sök­um eru eng­ir hvat­ar leng­ur til staðar til að ástunda brott­kast“
Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir
Fram­kvæmda­stjóri SFS, árið 2017

Í yfir­lýs­ingu frá Heiðrúnu Lind Mart­eins­dóttur, fram­kvæmda­stjóra Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS), var harmað að ekki hefði verið leitað til SFS eða ann­arra hags­muna­sam­taka við umfjöllun Kveiks og þeirra sjón­ar­miða leitað. Heiðrún rakti þá sögu­skýr­ingu SFS að með upp­töku kvóta­kerf­is­ins hefði umgengni um sjáv­ar­auð­lindir orðið mun betri en áður var, og með sam­hæfðum hvötum og mark­miðum, þar sem grund­vall­ar­þáttur hafi verið fram­sal afla­heim­ilda, hefði tek­ist að snúa við blað­inu. Með því að hægt væri að sækja afla­heim­ildir á mark­aði, færa milli teg­unda eða nýta VS-afla, væru málin leyst. „Af þess­um sök­um eru eng­ir hvat­ar leng­ur til staðar til að ástunda brott­kast,“ sagði í yfir­lýs­ing­unni.

Litlar áhyggjurHeiðrún Lind taldi óþarfa að hafa miklar áhyggjur af brott­kasti árið 2017.

Þá væri, að sögn Heiðrúnar Lindar, stað­fest í skýrslum Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar að vel hefði tek­ist til að draga úr brott­kasti. Að öllu því virtu sem hér hef­ur verið farið yfir þá ligg­ur fyr­ir að áhyggj­ur ein­stakra aðila, sem sett­ar voru fram í frétta­skýr­ing­arþætt­in­um Kveik, eru að mestu óþarfar.“

Hærra hlutfall renni til útgerðar og sjómanna

Samkvæmt lögum um umgengni nytja­stofna sjávar er meg­in­reglan sú að hirða skuli og landa öllum afla sem kemur í veið­ar­færi. Þó eru á þessu und­an­tekn­ingar, settar með reglu­gerðum, sem snúa að því að sleppa megi líf­væn­legum fiski af ákveðnum teg­undum, lúðu, hlýra, grá­sleppu og háfi, hámeri og bein­há­karli. Þá er einnig heim­ilt að varpa frá borði fisk­teg­undum sem ekki eru taldar hafa verð­gildi.

Í núgild­andi fisk­veiði­kerfi eru ákveðin úrræði til staðar til að draga úr brott­kasti. Þannig er heim­ilt að landa lágu hlut­falli afla án þess að hann drag­ist frá afla­marki skipa, svoköll­uðum VS-afla. Bjóða skal afl­ann upp og selja á fisk­mark­aði. Útgerðin fær í sinn hlut 20 pró­sent af and­virðið afl­ans sem skipt­ist milli útgerðar og áhafnar en rík­is­sjóður fær í sinn hlut 80 pró­sent, að frá­dregnum kostn­aði.

Í til­lögum starfs­hópa Auð­lind­ar­innar okkar kemur fram að hvatar séu til staðar fyrir brott­kast, þar sem kostn­aður við að koma með afl­ann að landi geti verið svo hár að það borgi sig ekki. Aflinn sé mögu­lega verð­lít­ill, útheimti vinnu og kostn­aður vegna hafn­ar­gjalda eða jafn­vel förg­unar geti komið til, meðal ann­ars.

Lagt er til að reglur um VS-afla verði rýmkaðar og að hærra hlut­fall af and­virði afl­ans renni til útgerðar og sjó­manna. Þá verði yfir­völd að tryggja að VS-afli skapi útgerðum ekki kostnað umfram tekjur. Að sama skapi verði útgerðum gert skylt að sýna fram á, með full­nægj­andi hætti, að öllum afla hafi sann­an­lega verið landað. Til sé tækni sem geti tryggt full­komið eft­ir­lit í skipum, við löndun og vinnslu.

Samræma þurfi vigtun, loksins

Þá er einnig fjallað um vigtun afla sem berst að landi í til­lög­unum. Þar er lagt til að fram­kvæmd við vigtun verði sam­ræmd, en svo ótrú­legt sem það má virð­ast er því ekki að heilsa í dag.

Í við­tali við Kveik árið 2017 benti Val­mundur Val­munds­son, for­maður Sjó­manna­sam­bands Íslands, á að slík ákvæði, um sam­ræmda vigtun vant­aði ein­fald­lega í íslensk lög. „Það er engin ein aðferð sem er gúdd­eruð af stjórn­völdum eða Fiski­stofu, heldur mega menn svona nán­ast ráða því hvaða aðferð er notuð til að vigta afl­ann,“ sagði Val­mundur.

„Það er, já, nán­ast von­laust“
Eyþór Björns­son
þáver­andi Fiski­stofu­stjóri, árið 2017, um mögu­leik­ana á að sanna að svindlað væri á vigt

Þór­hallur Ottesen sagði í sömu umfjöllun að vigtun eins og hún væri fram­kvæmd hér á landi þekkt­ist hvergi ann­ars staðar. Hann nefndi að eft­ir­lits­menn hefðu fylgst með löndun úr upp­sjáv­ar­skipi. Í eft­ir­lits­skýrslu vor bornar saman tvær land­anir úr sama skipi, þar sem afla­magn átti í báðum til­vikum að vera um 1.700 tonn en reynd­ist mun meira í það sinn sem eft­ir­lits­maður var við­staddur löndun, um 300 tonnum meira.

Eyþór Björns­son, þáver­andi Fiski­stofu­stjóri, sagði þá að algeng­ast væri að afli væri vigtaður þegar búið væri að eiga við hann. „Það er, já, nán­ast von­laust. Já,“ sagði Eyþór þegar hann var spurður hvort von­laust væri fyrir Fiski­stofu að sanna hvort verið væri að svindla við vigtun.

 

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Tillögur Auðlindarinnar okkar

Starfshópar Svandísar leggja til að auðlindaákvæði verði lögfest í stjórnarskrá
ÚttektTillögur Auðlindarinnar okkar

Starfs­hópar Svan­dísar leggja til að auð­linda­á­kvæði verði lög­fest í stjórn­ar­skrá

Hóparnir sem mat­væla­ráð­herra skip­aði til að end­ur­skoða sjáv­ar­út­vegs­kerfið hafa skilað bráða­birgða­nið­ur­stöðum. Þeir ætla að skila end­an­legum nið­ur­stöðum í maí. Á meðal þeirra breyt­inga sem þeir leggja til er að skrá öll við­skipti með kvóta í opinn gagna­grunn, að hækka eða breyta inn­heimtu auð­linda­gjalda og ráð­ast í breyt­ingar á skil­grein­ingum á tengdum aðilum.
Byggðakvóti fari þangað „sem veiðar og vinnsla eiga framtíð fyrir sér“
FréttirTillögur Auðlindarinnar okkar

Byggða­kvóti fari þangað „sem veiðar og vinnsla eiga fram­tíð fyrir sér“

Í til­lögum starfs­hópa Auð­lind­ar­innar okkar er gert ráð fyrir að almennur byggða­kvóti verði aflagður. Honum verði í þess stað bætt við strand­veiðar og sér­tækan byggða­kvóta. Sértækum byggða­kvóta verði ráð­stafað á færri staði en nú og Byggða­stofnun leggi mat á hvaða svæði eigi fram­tíð fyrir sér í veiðum og vinnslu.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
6
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár