Starfshópar Svandísar leggja til að auðlindaákvæði verði lögfest í stjórnarskrá

Hóparnir sem mat­væla­ráð­herra skip­aði til að end­ur­skoða sjáv­ar­út­vegs­kerfið hafa skilað bráða­birgða­nið­ur­stöðum. Þeir ætla að skila end­an­legum nið­ur­stöðum í maí. Á meðal þeirra breyt­inga sem þeir leggja til er að skrá öll við­skipti með kvóta í opinn gagna­grunn, að hækka eða breyta inn­heimtu auð­linda­gjalda og ráð­ast í breyt­ingar á skil­grein­ingum á tengdum aðilum.

Starfshópar Svandísar leggja til að auðlindaákvæði verði lögfest í stjórnarskrá
Ráðherra Svandís Svav­ars­dóttir sést hér halda erindi á mál­þingi Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi um stöðu íslenskra útgerð­ar­fé­laga í lok októ­ber. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Starfs­hópar sem Svandís Svav­ars­dóttir skip­aði til að end­ur­skoða sjáv­ar­út­vegs­kerfið leggja til, í bráða­birgða­nið­ur­stöðum sínum sem birtar voru í dag, að það verði lög­fest í stjórn­ar­skrá Íslands að fisk­veiði­auð­lindin sé í sam­eign íslensku þjóð­ar­innar. Þannig verði óvissu um inn­tak 1. greinar um stjórn fisk­veiða, þar sem segir að nytja­stofnar á Íslands­miðum séu sam­eign íslensku þjóð­ar­innar, eytt. 

Þessir starfs­hópar eru ný hálfn­aðir með vinnu sína og birtu af því til­efni bráða­birgða­nið­ur­stöður úr vinn­unni hingað til. Þær eru birtar á alls 219 glærum. Þar kemur meðal ann­ars fram að starfs­hóp­arnir muni skila loka­nið­ur­stöðum í maí 2023. 

Á meðal ann­arra til­lagna sem kynntar eru til leiks er til­laga um að öll við­skipti með afla­heim­ildir verði háð skrán­ingu í opinn gagna­grunn, að hvatar verði skap­aðir fyrir útgerðir til að skrá sig á markað og að inn­heimtu auð­linda­gjalds verði breytt og það hækkað.

Þá leggja starfs­hóp­arnir til ýmsar leiðir til að auka gagn­sæi í rekstri sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja, meðal ann­ars breyt­ingar á skil­grein­ingu á tengdum aðilum og kvóta­þaki og að gerð verði fræði­leg úttekt á því hvaða áhrif eigna­tengsl innan sjáv­ar­út­vegs og milli óskyldra greina geta haft á sam­keppni og aðra almanna­hags­muni.

Svan­dís skip­aði stóra sam­ráðs­nefnd um sjáv­ar­út­vegs­stefnu í maí í fyrra. Undir henni starfa svo fjórir starfs­hóp­ar auk þess sem sér­stök verk­efna­stjórn er að störf­um. Þessi hóp­ur, sem telur um 50 manns, á að  starfa út árið 2024 og skila meðal ann­­ars af sér nýjum heild­­ar­lögum um stjórn fisk­veiða eða nýjum lögum um auð­lindir hafs­ins, verk­efnum á sviði orku­­skipta, nýsköp­un­­ar, haf­rann­­sókna og gagn­­sæi og kort­lagn­ingu eigna­­tengsla í sjá­v­­­ar­út­­­veg­i. Einn starfs­hóp­ur­inn á að fjalla um ágrein­ing um stjórn fisk­veiða og mög­u­­leika til sam­­fé­lags­­legrar sátt­­ar, sam­­þjöppun veið­i­­heim­ilda, veið­i­­­gjöld og skatt­­spor. 

Bráða­birgða­nið­ur­stöð­unum er skipt niður í þrjú skref. Umdeild­ustu til­lög­urnar eru í skrefi 3, sem ber yfir­skrift­ina „Sann­gjörn dreif­ing“. Þar er meðal ann­ars fjallað um gjald­töku fyrir nýt­ingu fisk­veiði­auð­lind­ar­innar, gagn­sæi í eign­ar­haldi og stjórn­un­ar­tengslum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja og að sam­þjöppun innan grein­ar­innar, sem hefur verið mikil á und­an­förnum árum.

Hærri veiðigjöld eða fyrning

Í umfjöllun um auð­linda­gjald er ekki tekin afstaða til einnar leiðar umfram aðra heldur velt upp tveimur til­lögum. Sú fyrri snýst um að hækka veiði­gjaldið sem leggst á útgerðir og ein­falda útreikn­ing þess með það fyrir augum að „leiða til meiri sáttar um sjáv­ar­út­veg“. Samhliða þurfi þó að gæta að sam­keppn­is­hæfni útgerða á alþjóð­legum mörk­uðum og sér­stak­lega er tekið fram að starfs­hópar hafi ekki lokið skoðun sinni á auð­lind­arentu og auð­linda­gjaldi. 

Hin snýst um að taka upp svo­kall­aða fyrn­ing­ar­leið. Í henni felst að allur kvóti fyrn­ist um fastan hund­raðs­hluta á ári og fyrndur kvóti verði svo seldur á mark­aði eða upp­boði. Þeir fjár­munir sem fást fyrir þá sölu rati svo í rík­is­sjóð. Drög að frum­varpi um slíka leið voru unnin fyrir nokkrum árum. Sigurður Ingi Jóhanns­son, þáver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, kynnti þau drög árið 2014. Í þeim fólst að gera átti nýt­ing­ar­samn­inga til 23 ára við þáver­andi hand­hafa afla­heim­ilda. Á end­anum var frum­varpið aldrei lagt fram vegna and­stöðu innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem þá sat í rík­is­stjórn með Fram­sókn­ar­flokknum, við það að ríkið myndi á end­anum eign­ast veiði­heim­ild­irnar. 

Í til­lögum starfs­hópanna sem kynntar voru í dag er ekk­ert sagt um það á hversu löngum tíma afla­heim­ildir ættu að fyrn­ast né um hversu hátt hlut­fall þær ættu að fyrn­ast á hverju ári.  

Í bráða­birgða­nið­ur­stöð­unum er líka að finna til­lögu um svo­kall­aðan auð­linda­sjóð og að binda eigi það í lög að fjár­munum sem í hann safn­ast, vegna inn­heimtu auð­linda­gjalds, verði dreift til sveit­ar­fé­laga með lög­bundnum hætti. Á manna­máli þýðir það að ákveðið hlut­fall þess auð­linda­gjalds sem safn­ast, óháð því hvort farin verði veiði­gjalda- eða fyrn­ing­ar­leið, renni alltaf til sveit­ar­fé­laga í land­inu en ekki óskipt í rík­is­sjóð líkt og nú er. 

Skortur á gagnsæi til staðar

Starfs­hóp­arnir hafa kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að gagn­sæi þeirra sem nýta fisk­veiði­auð­lind­ina sé ábóta­vant, til dæmis varð­andi eign­ar­hald. Í til­lög­unum segir að stjórn­völd verði „að hafa yfir­sýn yfir eig­endur útgerða og eigna - og stjórn­un­ar­tengsl milli þeirra sem er for­senda þess að reglur um kvóta­þak nái mark­miðum sínum.“ Það sé nauð­syn­legt svo traust skap­ist um nýt­ingu auð­lind­ar­innar. 

Á meðal þess sem nefnt er sem ábóta­vant eins og nú sé málum hátta er að eft­ir­lits­að­il­inn, Fiski­stofu, skorti raun­tíma­upp­lýs­ingar um eign­ar­hald útgerða og eigna­tengsl þeirra á milli. 

Lagt er til að tekið verði upp bætt miðlun raun­tíma­upp­lýs­inga til stjórn­valda um eign­ar­hald útgerða, og eigna- og stjórn­un­ar­tengsl þeirra á milli. Þá er lagt til að þær upp­lýs­ingar verði færðar í raf­rænan gagna­grunn stjórn­valda. 

Önnur til­laga sem lögð er til undir þeim for­merkjum að auka gagn­sæi snýst um að láta útgerð­ar­fyr­ir­tæki sund­ur­liða tekjur og fram­legð eftir teg­undum, að öll við­skipti með afla­heim­ildir verði háð skrán­ingu í opinn gagna­grunn og að hvatar verði skap­aðir fyrir útgerðir til að skrá sig á markað. 

Í bráða­birgða­nið­ur­stöð­unum er að finna til­lögu um úttekt á áhrifum eigna- og stjórn­ar­tengsla innan sjáv­ar­út­vegs og óskyldum greinum. Þar er meðal ann­ars lagt til að Fiski­stofa leggi mat á eigna- og stjórn­un­ar­tengsl útgerða með reglu­bundnum og mark­vissum hætti og fái til þess nauð­syn­leg verk­færi. Auk þess ætti að gera fræði­lega úttekt á því hvaða áhrif eigna­tengsl „innan sjáv­ar­út­vegs og milli óskyldra greina geta haft á sam­keppni og aðra almanna­hags­muni“.

Þar er verið að bregð­ast við gagn­rýni á það að eig­endur stærstu útgerð­ar­fyr­ir­tækja lands­ins hafa nýtt það fjár­magn sem þeir hafa tekið út úr sjáv­ar­út­vegi á und­an­förnum ára­tugum til að kaupa sig inn í aðra geira á Íslandi. Þar á meðal eru smá­sala, banka­starf­semi, trygg­inga­starf­semi, fast­eigna­fé­lög og fjöl­miðlar svo fátt eitt sé nefnt. 

Vilja breytingu á skilgreiningu á tengdum aðilum

Samkvæmt gild­andi lögum má eng­inn einn aðili, eða aðilar tengdir honum, halda sam­an­lagt á meira en tólf pró­sent af úthlut­uðum kvóta. Þakið er reiknað út frá þorskígildum. Reglur um  tengda aðila eru þó mun rýmri í sjáv­ar­út­vegi en í mörgum öðrum geirum. 

Í bráða­birgða­til­lögum starfs­hópanna er til­laga um að breyta útreikn­ingum á þak­inu þannig að fallið yrði frá þorskígild­is­við­miðum og tekin upp við­mið um hámarks­afla­hlut­deild í hverri teg­und fyrir sig.

Þá er lagt til að skil­grein­ing á tengdum aðilum vegna kvóta­þaks verði sam­ræmd við það sem gildir á öðrum sviðum þannig að það nái betur utan um ólíkar gerðir eigna- og stjórn­un­ar­tengsla. Til útskýr­ingar þá þarf sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki að eiga 50 pró­sent í öðru til að þau telj­ist tengdir aðilar, á meðan að það hlut­fall er til að mynda 25 pró­sent á fjár­mála­mark­aði. Þá telj­ast hjón, börn þeirra eða sam­búð­ar­fólk ekki tengdir aðilar í sjáv­ar­út­vegi sam­kvæmt lögum. Það telj­ast systk­ini ekki heldur. 

Í til­lög­unni um nýja skil­grein­ingu á tengdum aðilum er lagt til að stuðst verði við „skil­grein­ingu á tengdum aðilum í öðrum lögum sam­hliða rík­ari kröfum um upp­lýs­inga­skyldu af hálfu ein­stak­linga og lög­að­ila sem njóta nýt­ing­ar­réttar skv. lögum um stjórn fisk­veiða“.

Hagnaður sjávarútvegs jókst um 36 milljarða króna

Frá árinu 2009 og út árið 2021 högn­uð­ust sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins um 533 millj­arða króna, sam­kvæmt gagna­grunni sem Deloitte heldur úti um geir­ann. Mestur var hagn­að­ur­inn í krónum talið á tíma­bil­inu á síð­ast­nefnda árinu, þegar geir­inn hagn­að­ist um 65 millj­arða króna. Hann jókst um 124 pró­sent á milli ára og var 36 millj­örðum krónum meiri þá en árið 2020.

Á sama tíma­bili, frá 2009 og út árið 2021, hefur sjáv­ar­út­veg­ur­inn greitt 219,3 millj­arða króna í opin­ber gjöld, þar af 85,9 millj­arða króna í veiði­gjöld. Auk þess er um að ræða tekju­skatt og trygg­inga­gjald. Sú tala dregst frá áður en hagn­aður sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækja er reikn­að­ur auk þess sem búið er að taka til­lit til fjár­fest­ingar í geir­an­um, sem býr til eign. 

Opin­beru gjöldin voru 22,3 millj­arðar króna árið 2021, sem var 28 pró­sent meira en árið 2020. Á sama tíma og hagn­að­ur­inn sem sat eftir hjá sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­unum jókst um 36 millj­arða króna milli ára juk­ust opin­beru gjöldin um 4,9 millj­arða króna.

Hagn­aður geirans áður en hann greiddi veiði­gjöld, tekju­skatt og trygg­inga­gjald í rík­is­sjóð var sam­tals 752,3 millj­arðar króna frá 2009 og út árið 2021. Af þessum hagn­aði sat tæp­lega 71 pró­sent eftir hjá útgerðum lands­ins en rétt um 29 pró­sent fór í opin­ber gjöld.

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kári Jónsson skrifaði
    Í þessum tilllögum er ekki stakt orð um óslitna-virðiskeðju, sem tryggir að ríkistyrkta-einokunar-útgerðin kemst upp með að borga 30-50% lægra fiskverð til sjómanna sinna eða hvað er til ráða. Ekki er stakt orð um frjálst-framsal aflaheimilda sem er augljóst eign þjóðarinnar samkvæmt gildandi lögum um stjórn fiskveiða, sagan í 30ár með frjálsu-framsali hefur sýnt og sannað RÚSTUN sjávarbyggða um allt land með tilheyrandi afleiðingum fyrir íbúa og annan fyrirtækja-rekstur í þessum eyðilögðu byggðum.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Tillögur Auðlindarinnar okkar

Byggðakvóti fari þangað „sem veiðar og vinnsla eiga framtíð fyrir sér“
FréttirTillögur Auðlindarinnar okkar

Byggða­kvóti fari þangað „sem veiðar og vinnsla eiga fram­tíð fyrir sér“

Í til­lögum starfs­hópa Auð­lind­ar­innar okkar er gert ráð fyrir að almennur byggða­kvóti verði aflagður. Honum verði í þess stað bætt við strand­veiðar og sér­tækan byggða­kvóta. Sértækum byggða­kvóta verði ráð­stafað á færri staði en nú og Byggða­stofnun leggi mat á hvaða svæði eigi fram­tíð fyrir sér í veiðum og vinnslu.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár