889. spurningaþraut: Hvar starfaði herfylking kafteins Kohls?

889. spurningaþraut: Hvar starfaði herfylking kafteins Kohls?

Fyrri auka­spurn­ing:

Konan sem sést á mynd­inni hér að ofan ásamt kærasta sínum, hún fædd­ist 1. októ­ber 1910 og hefði því orðið 122 ára í dag ef hún hefði ekki dáið 23 ára gömul. Hvað hét hún? — og skírn­ar­nafnið dugar.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað nefnd­ist fyr­ir­tækið sem var mið­punkt­ur­inn í við­skipta­veldi Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar þegar völlur hans var sem mestur?

2.  Tiltekin ætt í dýra­rík­inu nefn­ist Macrouridae á lat­ínu en lang­halar á íslensku. Hvernig dýr eru lang­halar?

3.  Veröld er það kallað, hús eitt á Melunum í Reykja­vík, nálægt bæði Hótel Sögu og Háskól­anum. En Veröld nefn­ist líka Hús ... ja, hús hvers eða hverrar?

4.  Á hvaða landi lendir maður ef farið er beint í norður frá Grímsey?

5.  Frá hvaða landi er Formula 1 kappakst­urs­hetjan Michael Schumacher?

6.  Hversu margir Formula 1 kappakstrar eru haldnir á þessu ári, 2022? Hér má muna fjórum til eða frá.

7.  Ökumenn frá hvaða Norð­ur­landi hafa verið tíð­ari gestir á verð­launa­palli í Formula 1 kappakstri en íbúar allra hinna þjóð­anna sam­an­lagt?

8.  Árið 1994 fengu þrír karlar frið­ar­verð­laun Nóbels. Það voru Ísra­els­menn­irnir Shimon Peres og Yitzak Rabin og svo ... hver? 

9.  Í hvaða styrj­öld var barist mán­uðum saman — og með miklu mann­falli — um heldur hrjóstrugan skaga sem nefn­ist nú eins og þá Gallipoli á Tyrk­landi?

10.  Undir for­ystu Andreas Augusts von Kohl, sem oft var nefndur kafteinn Kohl, var starf­rækt eins konar her­fylk­ing á til­teknum stað á Íslandi 1856-1869. Her­fylk­ingin varð kröftug í félags­starfi fólks á staðnum og hátíðir hennar urðu afdrifa­ríkar og má með vissum hætti segja að þær séu enn við lýði. Hvar starf­aði kafteinn Kohl?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Rétt eins og konan á efri mynd­inni, þá á karl­inn á mynd­inni hér að neðan afmæli í dag. Ólíkt henni er hann enn á lífi og heldur upp á 98 ára afmælið sitt. Hann var um tíma valda­maður mik­ill. Hvað heitir hann?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Baugur.

2.  Fiskar. 

3.  Vigdísar (Finn­boga­dóttur).

4.  Græn­landi.

5.  Þýska­landi.

6.  Keppn­irnir í ár eru 22 svo rétt er allt frá 18 til 26.

7.  Finn­lands.

8.  Yasser Arafat.

9.  Fyrri heims­styrj­öld­inni.

10.  Í Vest­manna­eyjum.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er bófa­stúlkan Bonnie Parker ásamt kærasta sínum Clyde Barrow.

Á neðri mynd­inni er Jimmy Carter fyrrum Banda­ríkja­for­seti ásamt konu sinni Rosalynn.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • U
    Utanríkisráðuneytið skrifaði
    Eftir því sem næst verður komið var Rosalyn Carter enn a lífi fyrir nokkrum dögum siðan
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár