888. spurningaþraut: Skoskt leikrit, skoskar borgir

888. spurningaþraut: Skoskt leikrit, skoskar borgir

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver mál­aði mál­verkið hér fyrir ofan? Svo er sér­stakt Kjar­vals­stig fyrir að muna hvað verkið heitir.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Matthías og Lovísa heita hjón nokkur sem eiga eina dóttur. Fjöl­skyldan býr ásamt fleira fólk í kast­ala, eða rétt­ara sagt í hálfum kast­ala. Hvað heitir dóttir þeirra Matth­í­asar og Lovísu?

2.  Hvaða harm­leikur William Shakespe­ares er stundum kall­aður „skoska leik­ritið“?

3.  Hvað heitir næst­fjöl­menn­asta borg Skotlands, á eftir Glasgow?

4.  En hvaða skoska borg er í þriðja sæti?

5.  Hvað heitir frúin rauð­mag­ans?

6.  Hvað heitir rann­sókn­ar­blaða­mennsku­þáttur Rík­is­út­varps­ins, það er að segja í sjón­varp­inu?

7.  Hvaða grínisti hefur gjarnan troðið upp um ára­mótin með svo­nefnt Ára­móta­skop?

8.  Í júní 1542 hafði spænski land­könn­uð­ur­inn Francisco de Orellana siglt á skipi sínu upp fljót nokk­urt sem áður hafði verið nær alveg ókannað af Evr­ópu­mönnum. Á leið­inni niður eftir ánni aftur lentu Orellana og menn hans í bar­daga við fólk af Tapuyas-ætt­bálki og vakti athygli Spán­verja að konur Tapuyasa tóku þátt í bar­dög­unum ekki síður en karl­menn. Sú stað­reynd hafði afleið­ingar, sem voru þær að ... að hvað?  ´

9.  Mozart tróð í æsku upp sem ein­leik­ari á ... hvaða hljóoð­færi?

10.  Hvað hét eig­in­kona Mozarts að skírn­ar­nafni?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er karl þessi?

***

Aðal­spurn­ingar, hér eru svörin:

1.  Ronja.

2.  Makbeð.

3.  Edinborg.

4.  Aberdeen.

5.  Grá­sleppa.

6.  Kveikur.

7.  Ari Eldjárn.

8.  Áin var skírð Amazon eftir þeim kven­her­mönnum sem þjóð­sögur Forn-Grikkja greindu frá og köll­uð­ust Amasónur.

9.  Píanó.

10.  Constanza.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Mál­verkið er eftir Jón Stef­áns­son og heitir Sum­arnótt. Raunar mun fullt nafn verks­ins vera Sum­arnótt, lómar við Þjórsá, en Sum­arnótt dugar fyrir Kjar­vals­stigi.

Á neðri ynd­inni er Jseff Bezos stofn­andi og eig­andi Amazon.com.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár