Selur hlut sinn í Sýn og hættir sem forstjóri

Heiðar Guð­jóns­son hefur sagt skilið við Sýn, fyr­ir­tækið sem rekur meðal ann­ars Vodafone og fjöl­miðl­ana Vísi, Stöð 2 og Bylgjuna.

Selur hlut sinn í Sýn og hættir sem forstjóri
Heiðar Guð­jóns­son Heiðar var for­stjóri Sýnar frá 2019 og stjórn­ar­for­maður þar á undan. Mynd: Sýn

Heiðar Guð­jóns­son hefur selt öll bréf sín í Sýn og hættir sem for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins. Þetta kemur fram í flöggun Seðla­bank­ans til Kaup­hallar í morgun.

Félag Heiðars, Ursus ehf., átti 12,72 pró­senta hlut í Sýn en á ekk­ert í félag­inu eftir við­skiptin. Var hann stærsti einka­fjár­festir­inn í fyr­ir­tæk­inu sem að stórum hluta er í eigu líf­eyr­is­sjóða. Söluverð hlut­ar­ins hefur ekki komið fram. Aðeins eru tæpir tveir mán­uðir síðan Heiðar jók við hlut sinn í félag­inu og keypti bréf fyr­ir 115 millj­ón­ir.

Heiðar hefur verið for­stjóri Sýnar frá 2019 og var áður for­maður stjórnar félags­ins. Sýn hf. rekur meðal ann­ars Vodafone og fjöl­miðl­ana Vísi, Stöð 2, Bylgjuna og fleiri tengda miðla. Laun Heiðars fyrir störf sín sem for­stjóri hækk­uðu í fyrra um 50 pró­sent, úr 3,5 millj­ónum króna á mán­uði í 5,3 millj­ónir.

Mbl.is greinir frá því að Heiðar hafi sent sam­starfs­fólki sínu til­kynn­ingu í morg­un og greint frá því að hann hafi orðið fyr­ir heilsu­bresti fyrr á þessu ári og að í kjöl­farið hafi hon­um verið ráð­lagt að minnka við sig vinnu.

Auk starfa sinna hjá Sýn hefur verið greint frá öðrum verk­efnum Heiðars í fjöl­miðlum, meðal ann­ars þátt­töku hans í und­ir­bún­ingi Svart­ár­virkj­unar, en félag hans á 42,9 pró­sent í félag­inu Svart­ár­virkjun ehf. sem staðið hefur að und­ir­bún­ingu verk­efn­is­ins. Var hann einnig fyrir tíma sinn sem for­stjóri Sýnar einn af helstu for­sprökkum olíu­leitar á Dreka­svæð­inu við Íslands­strendur á vegum félags­ins Eykon.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár