723. spurningaþraut: „Sól slær silfri á voga / yfir Hraundranga“ — er þetta ekki svona?

723. spurningaþraut: „Sól slær silfri á voga / yfir Hraundranga“ — er þetta ekki svona?

Fyrri auka­spurn­ing:

Á hvaða kvik­mynd minnir kjóll­inn eða pilsið hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  „Sól slær silfri á voga, / sjáið jökul­inn loga. / Allt er bjart fyrir okkur tveim, / því ...“ hvað?

2.  Kvæðið hér að ofan er stundum rang­lega kallað Ferðalok en til er raunar annað íslenskt kvæði sem heitir Ferðalok og var ort á 19. öld. Eftir hvern er það?

3.  Í upp­hafi Ferða­loka segir: „Ást­ar­stjörnu / yfir Hraun­dranga ...“ og hvað kemur svo?

4.  Hversu margir af núver­andi þing­mönnum á Alþingi hafa gegnt emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra?

5.  Árið 1958 kom 17 ára brasil­ískur fót­bolta­snill­ingur fram á sjón­ar­sviðið á heims­meist­ara­móti, heill­aði alla með leikni sinni og átti mik­inn þátt í að Brasilía varð heims­meist­ari í fyrsta sinn. Hvaða piltur var þetta?

6.  En í hvaða Evr­ópu­landi var það heims­meist­ara­mót haldið?

7.  Í hvaða landi er borgin Canberra?

8.  Hver var trommu­leik­ari Bítlanna lengst af?

9.  Abdulrazak Gurnah fékk afar eft­ir­sótt verð­laun síð­ast­liðið haust, sem reyndar kom ýmsum á óvart. Hvaða verð­laun fékk hann?

10.  Til er orð sem mun vera myndað af japönskum fram­burði á fornu kín­versku orði, sem er aftur á móti umritun á enn öðru orði úr san­krít. Þar merkir það hug­leiðsla eða hug­arró eða eft­ir­sókn eftir hinu sanna. Orðið er nú orðið alþjóð­legt en reyndar ekki mikið notað á Íslandi. Hvaða orð er þetta?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er mað­ur­inn?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  „... ég er kom­inn heim.“

2.  Jónas Hall­gríms­son.

3.  „... skýla næt­ur­ský.“

4.  Fjórir — Sig­mundur Davíð, Sigurður Ingi, Bjarni Bene­dikts­son og Katrín Jak­obs­dóttir.

5.  Pelé.

6.  Svíþjóð.

7.  Ástralíu.

8.  Ringo Starr.

9.  Bók­mennta­verð­laun Nóbels.

10.  Zen.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Kjóllinn á fyrri mynd er einn af kjól­unum í mynd­inni Sound of Music sem barn­fóstran söng­glaða saum­aði úr gard­ínu­efni.

Á neðri mynd­inni mátti sjá Gunnar Smára Egilsson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Magnus Aðalsteinsson skrifaði
    Lagið heitir, Að ferðalokum, ekki ferðalok.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár