724. spurningaþraut: Bítlarnir, Steve Jobs, ónefndur kóngur, ónefnd drottning

724. spurningaþraut: Bítlarnir, Steve Jobs, ónefndur kóngur, ónefnd drottning

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað er lang­lík­leg­ast að þau séu að dansa?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað hét rúss­neska beiti­skipið sem sökk á dög­unum — að því er virð­ist eftir eld­flauga­árás Úkra­ínu­manna?

2.  „White Russian“ heitir kokk­teill einn og er þar blandað saman vodka, kaffi­líkjör og hverju?

3.  Fyrir réttum 40 árum kom út platan Thriller og varð ein sú vin­sælasta í heimi í sam­an­lagðri popp­sög­unni. Hver gaf út þessa plötu?

4.  Hvar í nágrenni Reykja­víkur hafa svifflug­menn aðsetur?

5.  Á hvaða skaga er borgin Seva­stopol?

6.  Hvað eiga Bítl­arnir og Steve Jobs sam­eig­in­legt? — svona fyrir utan hið aug­ljósa eins og að vera menn, etc.

7.  Í þrjá ára­tugi, eða frá 1618 til 1648, geis­aði grimmi­legt stríð í Mið-Evrópu, ekki síst í Þýska­landi, og staf­aði bæði af trú­ar­deilum og land­vinn­inga­sókn bæði sumra og ann­arra. Hvað er þetta stríð kallað?

8.  Í þessu stríði tefldi frægur kóngur í fremur fámennu ríki fram her sínum í mik­illi orr­ustu þar sem heitir Lützen í Þýska­landi. Her kóngs­ins sigr­aði and­stæð­inga sína en hann sjálfur féll hins vegar í bar­dag­anum. Þar með dró mjög úr fram­gangi þessa ríkis í stríð­inu. Hvaða ríki var það sem vann orr­ust­una en missti kóng­inn sinn?

9.  Og meðal ann­arra orða — hvað hét kóng­ur­inn?

10.  Kornung dóttir hins fallna kóngs sett­ist í hásætið að föður sínum látnum, en eftir 20 ár á valda­stóli sagði hún af sér drottn­ing­ar­dómi og sett­ist að suður í Róm. Hvað hét þessi drottn­ing?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Við hvað vinnur þessi karl?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Moskva.

2.  Rjómi.

3.  Michael Jackson.

4.  Á Sand­skeiði.

5.  Á Krím­skaga.

6.  Báðir stofn­uðu fyr­ir­tæki að nafni Apple.

7.  Þrjátíu ára stríðið.

8.  Svíþjóð.

9.  Gústav Adólf.

10.  Kristín.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er fólkið að dansa tangó; það á víst ekki að fara milli mála.

Á neðri mynd­inni er fjár­mála­ráð­herra Breta, Sunak.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár