722. spurningaþraut: Hér má vinna sérstakt Bítlastig, kennt við Gunnar Salvarsson!

722. spurningaþraut: Hér má vinna sérstakt Bítlastig, kennt við Gunnar Salvarsson!

Fyrri aukaspurning:

Myndin hér að ofan sýnir albúmið á Bítlaplötunni Abbey Road. Ég huldi einn bílanna á götunni og nú er spurningin: Hvernig er sá bíll á litinn og af hvaða tegund er hann? Þið fáið stig ef þið náið annaðhvort tegundinni eða litnum, en þeir sem hafa hvorttveggja fá sérstakt Gsal-bítlastig, kennt við Gunnar Salvarsson!

***

Aðalspurningar:

1.  Hver á að velta sér um koll í lagi Chuck Berrys?

2.  Árið 1927 flaug bandarískur flugmaður í fyrsta sinn einn yfir Atlantshafið og þótti það mikilsháttar afrek. Hvað hét flugmaðurinn?

3.  Milli hvaða tveggja stórborga flaug hann?

4.  Seinna átti flugmaðurinn eftir að koma við sögu í glæpamáli sem vakti gríðarlega athygli og endaði hryggilega. Út á hvað gekk það mál?

5.  Hverjir stjórnuðu á eyjunni Makau við Kínastrendur þangað til árið 1999?

6.  Árið 1990 var stofnuð í Manchester á Englandi ein af hinum svonefndu „drengjahljómsveitum“ og naut hún gríðarlegra vinsælda síðasta áratug síðustu aldar. Hún er víst enn starfandi þótt „drengirnir“ séu komnir um fimmtugt. Hvaða hljómsveit er þetta?

7.  Hvaða tungumál er opinbert mál í fjallaríkinu Andorra?

8.  Árið 1988 fóru í fyrsta sinn fram forsetakosningar á Íslandi þar sem sitjandi forseti fékk mótframboð. Hver vann þessar kosningar? 

9.  Í hvaða landi er borgin Örebro?

10.  Í grískum bókmenntum segir frá Jasoni sem var mikill kappi og sótti meðal annars „gullna reifið“ svokallaða. Hann naut aðstoðar göldróttar konungsdóttur og gengu þau síðan í hjónaband. Hjónabandið endaði með ósköpum en konungsdóttir varð börnum þeirra Jasons að bana eftir að hann gerðist henni ótrúr. Hvað hét konungsdóttir?

***

Seinni aukaspurning:

Hvaða sjarmör er að stíga dans á myndinni hér að neðan?

***

Svör við aðalspurningum:

1.  Beethoven. (Hér er lagið flutt af Bítlunum.)

2. Lindbergh.

3.  New York og Parísar.

4.  Barni hans var rænt og það myrt.

5.  Portúgalir.

6.  Take That.

7.  Katalónska. „Spænska“ er vitaskuld ekki rétt svar.

8.  Vigdís Finnbogadóttir.

9.  Svíþjóð.

10.  Medea.

***

Svör við aukaspurningum:

Á Bítlaalbúminu var um að ræða hvíta Fólksvagen.

Á neðri myndinni er Vólódómír Zelensky núverandi forseti Úkraínu að keppa í danskeppni í heimalandi sínu fyrir nokkrum árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Samúð dugar ekki til andspænis grimmdinni
6
ViðtalÁrásir á Gaza

Sam­úð dug­ar ekki til and­spæn­is grimmd­inni

Dr. Youn­is Al-Khatib er for­seti Rauða hálf­mán­ans í Palestínu. Hann lýs­ir að­stæð­um á vett­vangi um leið og hann kall­ar eft­ir því að al­þjóða­sam­fé­lag­ið stígi inn. Mann­úð­ar­sam­tök geti ekki leyst póli­tísk átök og sam­úð dugi skammt þeg­ar fólk þjá­ist. „Al­þjóða­sam­fé­lag­ið þarf að skilja að nú er mæl­ir­inn full­ur; það verð­ur að finna lausn og hún get­ur að­eins ver­ið póli­tísk.“

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Fulltrúi Íslands sat áfram meðan tugir gengu úr salnum undir ræðu Netanyahu
5
Stjórnmál

Full­trúi Ís­lands sat áfram með­an tug­ir gengu úr saln­um und­ir ræðu Net­anya­hu

Tug­ir full­trúa gengu úr saln­um þeg­ar Benja­mín Net­anya­hu, for­sæt­is­ráð­herra Ísra­els, hóf ræðu sína á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna. Full­trúi Ís­lands sat áfram í sæti lands­ins. Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráð­herra var á sama tíma á fundi til stuðn­ings Palestínuflótta­manna­hjálp SÞ.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
2
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár