Mörg hundruð milljarða afskriftir hjá nýju hluthöfum Íslandsbanka

Þegar kaup­enda­listi Íslands­banka var loks­ins gerður opin­ber komu fram mörg nöfn sem urðu vel þekkt fyrir og eftir íslenska banka­hrunið árið 2008. Meðal kaup­enda að hluta­bréfum rík­is­ins í bank­anum voru fjöl­margir aðilar sem fengu afskrif­aðar háar fjár­hæðir í kjöl­far hruns­ins. Athygli vakti hversu margir í hlut­hafa­hópnum höfðu áður verið meðal stórra hlut­hafa og lán­tak­enda í Glitni, sem síðar varð Íslands­banki.

Mörg hundruð milljarða afskriftir hjá nýju hluthöfum Íslandsbanka
Gömul and­lit úr Glitni dúkka upp Margir af helstu og þekkt­ustu eig­endum og skuld­urum Glitnis banka fyrir hrunið dúkka upp á nýjum hluta­haf­alista Íslands­banka. Meðal ann­ars er um að ræða félög sem tengj­ast og eða lúta stjórn Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar, Karl Wernerssonar, Bene­dikts Sveins­sonar, Pálma Har­alds­sonar auk Gunnar Þor­láks­sonar og Gylfa Ómars Héð­ins­sonar.

Listinn yfir kaup­endur hluta­bréfa íslenska rík­is­ins í Íslands­banka opin­ber­aði að þar á meðal voru nokkrir af þekkt­ari fjár­festum Íslands á árunum fyrir hrun. Meðal ann­ars var um að ræða eign­ar­halds­fé­lög og fyr­ir­tæki sem eru í eigu, tengj­ast eða lúta stjórn aðila sem voru stórir hlut­hafar í Glitni. Sam­an­lagt hafa verið afskrif­aðir mörg hund­ruð millj­arðar króna af skuldum hjá ein­ungis nokkrum af þeim helstu og þekkt­ustu aðilum sem koma fyrir á list­anum yfir kaup­endur hluta­bréf­anna. 

Meðal ann­ars var um að ræða félög sem eru í eigu og eða tengj­ast eða lúta stjórn Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar, Karls Wernerssonar, Pálma Har­alds­sonar, Bene­dikts Sveins­sonar, föður Bjarna og eig­enda verk­taka­fyr­ir­tæk­is­ins BYGG, Gunnars Þor­láks­sonar og Gylfa Ómars Héð­ins­sonar. Allir þessir aðilar voru stórir skuld­arar í Glitni banka, nú Íslands­banka, fyrir hrunið 2008 og allir komu þeir að því að stjórna bank­anum eða stórum hlut­höfum í honum fyrir hrun. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Bjarni Ben. virðist hræðast íslenska fjölmiðla.

    Væri ekki snjallt að vekja áhuga erlendra fjölmiðla á nýjasta íslenska bankaráninu ?

    Þar gæfist Bjarna gott tækifæri til þess að útskýra málið !!
    0
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    ALLIR ættu að lesa bókina "Hinir ósnertanlegu" !!!!

    http://herdubreid.is/hinir-osnertanlegu/

    "130 milljarðar voru afskrifaðir hjá fjölskyldufyrirtækjum Bjarna Benediktssonar"

    "Benedikt Sveinsson tók yfir á annað hundrað milljónir af einkaskuldum sonar síns, meðal annars vegna veðmála"

    "Í miðju Hruni var Bjarni ennþá að færa stórfé úr landi til að borga fyrir fasteignabrask á Flórida"

    Síðar var Bjarni Ben gerður að fjármálaráðherra í þrígang !!!
    3
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Að hagnast á hlutabréfum þegar gengið fer upp og fá svo afskrifað þegar það fer niður er leiðin til að verða ofurríkur á stuttum tíma.
    Krónan skapar kjöraðstæður fyrir slíkt athæfi enda sveiflur á gengi hennar margfalt meiri en stærri gjaldmiðla. Þess vegna má Sjálfstæðisflokkurinn ekki heyra á það minnst að Ísland gangi i ESB og taki upp evru. Þá væri hætt við að svo skjótfenginn gróði heyrði sögunni til.
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár