Úkraínumenn sökktu sjálfir sínu besta skipi: „Erfitt að ímynda sér erfiðari ákvörðun“

Frei­gát­unni Hetman Sahaidachny sökkt í höfn­inni í Mykolaiv svo hún félli ekki í hendur Pútins

Úkraínumenn sökktu sjálfir sínu besta skipi: „Erfitt að ímynda sér erfiðari ákvörðun“
Hetman Sahaidachny í höfn­inni í Mykolaiv.

Úkra­ínu­menn sökktu í gær stærsta og öfl­ug­asta her­skipi sínu, frei­gát­unni Hetman Sahaidachny. Skipið hafði legið til við­gerða í höfn­inni í borg­inni Mykolaiv sem er við Svarta­haf. Úkra­ínu­menn höfðu lagt allt kapp á að ljúka við­gerðum síð­ustu vik­urnar þegar spennan fór vax­andi við liðs­safnað Rússa á landa­mær­unum og á Svarta­hafi.

Skipið var af svo­nefndri Krivak-gerð (nánar til­tekið Krivak III) en Sov­ét­menn hófu bygg­ingu á þeim á sex­unni og var fyrsta skipið í notkun 1968. Þetta eru 3.500 tonna skip, ætluð til kaf­báta­veiða og til að fylgja öðrum stærri her­skipum.

Smíði hófst 1991 og átti skipið þá að heita Kirov en þegar Sov­ét­ríkin hrundu tók nýstofn­aður floti sjálf­stæðrar Úkraínu við smíð­inni og gaf því nýtt nafn. Hetman Sahaidachny var úkra­ínskur kósakka­for­ingi sem barð­ist gegn bæði Tyrkjum og Rússum í upp­hafi 17. aldar.

Oleksii Reznikov varn­ar­mála­ráð­herra Úkraínutók af skarið um að skip­stjóri frei­gát­unnar hefði fyr­ir­skipað að henni skyldi sökkt.

Skipið var tekið í notkun 1993 og var fyrsta her­skip Úkraínu og mik­ils metið sem slíkt. Það var enn stærsta her­skip hins smáa en stolta úkra­ínska flota — þangað til í gær.

Þegar nágranna­borgin Kherson var að falla í hendur Rússa sáu Úkra­ínu­menn að stór­hætta var á að rúss­neskar her­sveitir næðu einnig Mykolaiv og Hetman Sahaidachny félli í hendur þeirra. Þá var skip­inu sökkt fremur en að það félli í hendur Rússa.

„Rúss­neska her­skip, farðu til fjand­ans“

Alls voru smíð­aðar um 40 frei­gátur af þess­ari gerð og voru þær síð­ustu teknar í notkun 2012, þrjár tals­ins og hafa þær allar bæki­stöðvar á Svarta­hafi. Þær eru því vafa­laust í þeirri flota­deild sem beið fyrir utan Mykolaiv eftir því hvort Hetman Sahaidachny næði að kom­ast út til að berj­ast við ofureflið.

Og kannski voru þær líka í rúss­neska flot­anum sem réð­ist að her­flokki Úkra­ínu­manna á Snáka­eyju á dög­unum en var sagt að „fara til fjand­ans“ eins og frægt varð.

Varn­ar­mála­ráð­herra Úkraínu, Oleksii Reznikov, sagði á Facebook:

„Skip­stjór­inn fyr­ir­skip­aði að botn­lokur skips­ins yrðu opn­aðar svo að Hetman Sahaidachny [...] félli ekki í hendur óvin­ar­ins. Það er erfitt að ímynda sér erf­ið­ari ákvörðun fyrir hug­rakkan stríðs­mann og allan hóp­inn hans. En við erum að byggja nýjan flota. Nýtísku­legan og öfl­ugan. Mik­il­væg­ast nú er að standa í lapp­irnar.“

Hér að neðan má sjá Hetman Sahaidachny á sigl­ingu fyrir nokkru síðan.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • BH
    Bjarki Hilmarsson skrifaði
    "Sovétmenn hófu byggingu á þeim á sexunni" Hvar læra blaðamenn að skrifa texta?
    1
  • Halldor Kvaran skrifaði
    Úr fréttinni: "Þetta eru 3.500 tonna skip, ætluð til kafbátaveiða og ... "
    Eru kafbátar veiddir á línu, botnvörpu, í net eða á annan hátt?
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
4
Innlent

Segir skerð­ingu Loft­brúar byggða á röngum for­sendum

Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir upp­haf­legar fjár­heim­ildir að raun­virði. Ekki séu heldur traustar vís­bend­ingar um að stuðn­ing­ur­inn hafi hækkað flug­far­gjöld. Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra hyggst nú hækka fyr­ir­hug­aða nið­ur­greiðslu eftir hörð við­brögð við breyt­ing­unum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár