Úrvinnslusjóður útskýrir ekki aðgerðarleysi

Stjórn­endur Úrvinnslu­sjóðs hafa ekki svarað því af hverju ekki var brugð­ist við fyrr vegna þess mikla magns plasts sem hefur legið óhreyft í um fimm ár í Svíþjóð. Stjórn sjóðs­ins hefur haft vit­neskju um málið í meira en ár og hefur það verið til umræðu á fundum hennar.

Úrvinnslusjóður útskýrir ekki aðgerðarleysi
Úr vöru­hús­inu Íslenska plastið var flutt út fyrir um fimm árum síðan og hefur setið lengi í þess­ari vöru­skemmu í Svíþjóð. Meira en ár er síðan Úrvinnslu­sjóður fékk að vita um málið. Mynd: Davíð Þór

Úrvinnslu­sjóður hefur ekki enn svarað því af hverju sjóð­ur­inn brást ekki fyrr við því mikla magni af íslensku plasti sem lá óhreyft í um fimm ár, þrátt fyrir að hafa haft vit­neskju um það. Málið var rætt á stjórn­ar­fundum sjóðs­ins fyrir og eftir umfjöllun Stund­ar­innar í októ­ber 2020, en þá var fyrst greint frá því að íslenskt plast mætti finna í vöru­húsi í Påryd í Suður-Svíþjóð.

Úrvinnslu­sjóður veltir um tveim millj­örðum króna á ári og fengu íslensk end­ur­vinnslu­fyr­ir­tæki allt að 100 millj­ónir króna fyrir að senda plast til sænska end­ur­vinnslu­fyr­ir­tæk­is­ins Swerec. Um 1.500 tonn af íslensku plasti voru send til Swerec árið 2016. 

Þann 14. des­em­ber síð­ast­lið­inn beindi Stundin skrif­legum spurn­ingum til Magnúsar Jóhann­es­sonar, stjórn­ar­for­manns Úrvinnslu­sjóðs, hvers vegna sjóð­ur­inn hafi ekki aðhafst neitt vegna máls­ins þrátt fyrir að hafa haft vit­neskju um íslenska plastið í meira en ár. Ekkert svar hefur borist. 

Eingöngu starfað í nokkrar vikur

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Plastið fundið

Heilbrigðiseftirlitið vissi víst af ólöglegri plasturðun við Skálholt
RannsóknPlastið fundið

Heil­brigð­is­eft­ir­litið vissi víst af ólög­legri plast­urðun við Skálholt

Heil­brigð­is­eft­ir­lit Suð­ur­lands vissi í meira en þrjú ár af lög­brotum end­ur­vinn­nslu­fyr­ir­tæk­is­ins Terra án þess að aðhaf­ast neitt í mál­inu. Fram­kvæmda­stjóri eft­ir­lits­ins fékk sjálf senda ábend­ingu um málið en sagð­ist þremur árum seinna aldrei hafa heyrt af því áður. Hún segir ekki ástæðu til að beita við­ur­lögum gegn fyr­ir­tæk­inu.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár