Stríðið gegn miðöldruninni

Hvað er það sem drepur vin­áttu? Svik? Sam­skipta­leysi? Fjar­lægðir? Nei, dren auð­vitað. Allavega er það mat Höllu, aðal­per­sónu bók­ar­innar Til­finn­ingar eru fyrir aum­ingja.

Stríðið gegn miðöldruninni
Bók

Til­finn­ingar eru fyrir aum­ingja

Höfundur Kamilla Einarsdóttir
Veröld
141 blaðsíða
Niðurstaða:

Skrambi fyndin samtímasaga um nærri fertugan eilífðarungling með sama og ekkert sjálfstraust, sem líður þó fyrir að vera dálítið eintóna og tíðindalítil. En manni leiðist samt aldrei.

Gefðu umsögn

„En það var komið að ögur­stundu í vina­hópnum. Bara eitt mat­ar­boð í við­bót þar sem ekki væri rætt um annað en dren og annað fast­eigna­við­hald og eitt­hvert okkar hefði hent sér fram af svöl­unum eða kveikt í sér.“

Það má sjálf­sagt finna ein­hverjar meta­fórur hérna; hvernig allt snýst um að halda vatni og lífi frá sér, um við­hald, um að við­halda ástandi þegar fólk þyrfti frekar að breyta til.

Þetta er vina­hópur snemmið­aldra fólks, þau eiga öll stutt í fer­tugt. Þau kynnt­ust þegar þau voru óform­leg öld­unga­deild Fjöl­brauta­skól­ans í Ármúla, öll mætt til að klára stúd­ent­inn nokkrum árum á eftir áætlun.

En Halla er krónískt ein­hleyp og virð­ist tölu­vert meiri krakki en þau hin, alla­vega í eigin augum – og þetta er allt með hennar augum, hún er sögu­mað­ur­inn. Hún sér ekki mikla róm­an­tík í hjóna­böndum þeirra giftu í vina­hópnum og upp­lifir sig raunar sem hálf­gerðan stuð­púða …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Aldrei lesið bók þar sem kynlíf er eins mikið á dagskrá og í þessari bók en samt er það aldrei nefnt á nafn.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár