Hamingjan er tímaleysi

Hvað er ham­ingjan fyrir þér?

Valur Freyr Einarsson

leikari

„Fyrir mér er ham­ingjan eins og ástin. Hún visnar og hverfur ef hún er ekki ræktuð. Góðu frétt­irnar eru að það er hægt að rækta ham­ingj­una á hverjum degi á mjög ein­faldan hátt. Bara með því að muna að hún liggur í öllu þessu smáa, góðum kaffi­bolla, morg­un­kossi frá þeim sem maður elskar, brosi frá ókunn­ugum, klappi á bakið, ljósa­skipt­unum, skemmti­legum sam­skiptum við börnin, fimmaura­brand­ara eða faðm­lagi; sem er besta lagið. Það hefur reynt á þetta í Kóvíd. Sjálf­sagðir hlutir verða lúxus og vina­hitt­ingur verður lög­brot. Allt snýst á hvolf og mál­tækið „eng­inn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur“ verður dag­leg áminn­ing. Það er eins með ham­ingj­una, maður verður lítið var við hana fyrr en óham­ingjan bankar á dyr.“


Ingi Bekk

ljósa- og myndbandshönnuður

„Í mörg ár vissi ég ekki hvað ham­ingjan væri. Ég hafði ekki tíma til að finna ham­ingju eða finna út úr því hvernig ég fyndi hana. Ég gat ekki hugsað mér að staldra við því það var svo mikið að gera alls staðar, alltaf. Ég hugs­aði með mér að þegar ég hefði náð mark­mið­unum mínum þá kæmi ham­ingjan og myndi hella sér yfir mig af gríð­ar­legu afli. Þá yrði ég ham­ingju­samur, þá yrði ég sko ham­ingju­samur. Í apríl á þessu ári þurfti ég að rækta ham­ingj­una því í apríl vildi ég ekki vera til. Ég sett­ist niður í ein­breiðan sófa á skrif­stofu hjá manni sem hjálp­aði mér að skilja ham­ingj­una og finna ham­ingj­una. Stundum sökk ég í sófann og greip í áklæðið og stundum þurftum við að stoppa þangað til ég náði að finna brotin af sjálfum mér í ein­breiða sóf­anum og tjasla þeim saman. En síðan fann ég ham­ingj­una. Ham­ingj­una fann ég í þriggja sæta sófa heima hjá okkur fjöl­skyld­unni.

Ég fann hana með kon­unni minni og dætrum mínum meðan við horfðum saman á bíó­mynd og hlógum, vá, hvað við hlógum mikið.“


Guðrún Daníelsdóttir

aðstoðarleikstjóri

„Hamingja fyrir mig er tíma­leysi. Ég hef alltaf verið dug­leg að sækja í aðstæður sem gera mig ham­ingju­sama og oft ákveð ég að verð­launa mig ef ég er í strembnum aðstæðum eða löngum töku­dögum með fram­tíð­ar­tíma­leysi. Hamingja fyrir mig er að gera eitt­hvað og vita ekki hvað klukkan er. Enda vinn ég í streitu­mik­illi vinnu sem bygg­ist öll á að tíma­setn­ingar stand­ist. Ferðalög í hús­bílnum, fjall­göngur með hund­unum, langir slakir morgnar, útkalls­bók á jóla­dag, spila­dagar og spila­kvöld, baksund, vera lengi að elda og allt sem er óplanað og stress­laust. Ég er ham­ingju­söm þegar ég veit ekki hvað klukkan er eða er að bíða eftir að hún verði eitt­hvað.“


Kamilla Einarsdóttir

rithöfundur og bókavörður

„Einu sinni hélt ég að ham­ingj­una væri að finna í nóg af ókeypis bjór, elsk­hugum og svo ein­hverjum óljósum hug­myndum um að kannski yrði ég einn dag­inn eitt­hvað spennó og dul­ar­full svona eins og allar stelp­urnar sem kunna að reykja sígar­ettur og gera á sig svaka­lega dramat­ískan eyeliner. En svo gafst ég upp á að elt­ast við svona lagað. Ég hef svo ódýran bjórsmekk að ég get alveg keypt hann sjálf. Ég nenni varla að veipa svo sígar­ett­ureyk­ingar verða áfram bara að vera eitt­hvað sem ég dáist að í fari ann­arra og hössl er oft­ast bara eitt­hvert rugl. Nú orðið hall­ast ég að því að ham­ingj­una sé að finna í dögum þegar ég get horft á þriðju seríu af Simpsons í friði og ró. Ég er samt opin fyrir því að ég sé ekki komin með end­an­legt svar við þessu.“


Ásdís Ingþórsdóttir

húsameistari

„Ham­ingjan kemur þegar þú hættir að leita að henni, bíða eftir henni og trúa því að hún sé áfanga­staður. Ham­ingjan er hér og nú; ham­ingjan er ferða­lagið sjálft. Ham­ingjan kemur þegar þú leyfir þér að stoppa, taka eftir og njóta. Njóta litlu hlut­anna í líf­inu, litlu augna­blikanna. Ham­ingjan býr í göngu­ferð, sól­ar­geisla í gegnum pálma­tré, sam­veru, rós, hlátri, ferða­lagi, sím­tali, sturtu, mat­ar­boði, góðri lykt, fal­legum skóm, súkkulaði, lif­andi tón­list, dansi, mjúku rúmi, snjó­komu um jól, tesopa, varð­eldi á sum­ar­kvöldi og þögn­inni. Að taka ham­ingj­una þannig með sér í gegnum ferða­lag lífs­ins er ákvörðun. Að gera það ekki er líka ákvörðun. Samkvæmt lyf­seðli: Ein ákvörðun á dag, end­ur­tak­ist eftir þörf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár