100 milljóna tilboði í DV hafnað

Tilboðum um kaup á DV sem Sveinn Andri Sveins­son lög­maður bar fram fyrir hönd fjár­festa hefur verið hafnað í tvígang. Helgi Magn­ús­son, stjórn­ar­for­maður og aðal­eig­andi Torgs, neitar fyrir að til­boðin hafi borist.

100 milljóna tilboði í DV hafnað
Kannast ekki við til­boð Helgi Magn­ús­son segir að fjöl­miðlar Torgs séu ekki til sölu. Það stang­ast á við heim­ildir Stund­ar­innar um að und­an­farið hafi verið leitað að kaup­endum að Frétta­blað­inu, hið minnsta. Mynd: MBL / Ómar Óskarsson

Heim­ildir Stund­ar­innar herma að fjár­festar hafi fyrir skemmstu gert til­boð í DV, í tvígang hið minnsta. Fyrra til­boðið hljóð­aði upp á um 100 millj­ónir króna en því var hafnað. Síðara til­boðið var hærra en Stundin hefur ekki upp­lýs­ingar um hversu hátt það var. Því var einnig hafnað.

Það mun hafa verið lög­mað­ur­inn Sveinn Andri Sveins­son sem bar fram til­boðin fyrir hönd aðila sem Stundin hefur ekki vit­neskju um hverjir eru. Þegar Stundin hafði sam­band við Svein Andra vildi hann hvorki stað­festa að til­boð hefði verið lagt fram né hverjir hefðu staðið að baki því. „No comment,“ var svarið sem Sveinn Andri gaf.

Helgi Magn­ús­son, stjórn­ar­for­maður og aðal­eig­andi Torgs sem á og rekur DV ásamt Frétta­blað­inu, neit­aði því hins vegar í sam­tali við Stundina að nokk­urt til­boð hefði borist í DV. „Við höfum ekki fengið neitt til­boð. Er þetta ekki ein­hver mis­skiln­ingur? Ég hugsa nú að ef að það hefði komið eitt­hvað til­boð myndi ég nú vita af því.“

„Getur ekki verið að hann hafi verið að bjóða í Stundina eða Við­skipta­blaðið, er þetta ekki ein­hver mis­skiln­ingur?“
Helgi Magn­ús­son
Aðal­eig­andi DV

Blaða­maður Stund­ar­innar svar­aði því þá til að heim­ildir fyrir því að til­boð hefði borist væru traustar. „Ég held nú að þú sért á villi­götum,“ sagði Helgi þá. „Getur ekki verið að hann hafi verið að bjóða í Stundina eða Við­skipta­blaðið, er þetta ekki ein­hver mis­skiln­ingur? Í fyrsta lagi er ekk­ert til sölu hjá okkur og í öðru lagi hefur ekk­ert til­boð komið og eng­inn borið sig eftir slíku við mig.“

Þessar full­yrð­ingar Helga stang­ast á við heim­ildir Stund­ar­innar en sam­kvæmt þeim hafa for­svars­menn Torgs að und­an­förnu leitað kaup­enda að Frétta­blað­inu og munu meðal ann­ars hafa boðið Símanum blaðið til kaups. Því boði var hafnað.

Þegar þetta var borið upp á Helga vildi hann ekk­ert við það kann­ast. „Ég hlyti að vita af því, ég er stjórn­ar­for­maður og stærsti hlut­haf­inn og ef að slíkt væri í gangi geri ég alveg ráð fyrir að ég myndi vita af því. Og ég get alveg lofað þér því að það myndi ekk­ert ger­ast án þess að ég kæmi að því. Ég veit ekki til þessa og þetta er bara slúður. Ég er búinn að svara þér og það er engu við þetta að bæta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár