Leggja á ráðin um að kæra Jóhannes til að koma í veg fyrir vitnisburð

Samherji leggur á ráðin um að kæra Jóhannes Stef­áns­son upp­ljóst­ara í Namíbu og saka hann um þjófnað. Eini til­gang­ur­inn virð­ist vera að hræða hann frá því að bera vitni gegn Sam­herja og starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins vegna mútu­greiðslna til stjórn­mála­manna í Namib­íu.

Leggja á ráðin um að kæra Jóhannes til að koma í veg fyrir vitnisburð
Upp­ljóstr­ar­inn Jóhannes Stef­áns­son er lyk­il­vitni í rann­sókn yfir­valda á Sam­herj­a­mál­inu, bæði í Namibíu og á Íslandi. Mynd: Davíð Þór

Jóhannes Stef­áns­son er lyk­il­vitni í dóms­máli sem namibísk stjórn­völd hafa höfðað á hendur fyrr­ver­andi ráða­mönnum þar í landi fyrir mútu­þægni og skipu­lagða glæp­a­starf­semi. Sak­sókn­ari þar í landi hefur reynt að ákæra þrjá íslenska núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn Samherja vegna máls­ins, sem snýst um mútu­greiðslur frá félögum tengdum Samherja til ráð­herra og emb­ætt­is­manna í Namibíu. Ljóst er að Samherji ætlar að leita allra leiða til að koma í veg fyrir að Jóhannes beri vitni fyrir dóm­stólum í málum fyr­ir­tæk­is­ins. 

„Var að tala við þmb og þið eigið núna að kæra Jóhannes fyrir þjófn­að­inn úr fisk­búð­unum.“

Í sam­skiptum á milli starfs­manna Samherja kemur fram að Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri og áður aðal­eig­andi Sam­herj­a­sam­steypunnar, vilji láta kæra Jóhannes fyrir mein­tan þjófnað frá fisk­búðum sem reknar voru í Namibíu. „Var að tala við þmb og þið eigið núna að kæra Jóhannes fyrir þjófn­að­inn úr fisk­búð­unum,“ segir meðal ann­ars í þessum sam­skiptum, sem og: „Ef …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár