Fasteignaviðskiptin hringdu engum viðvörunarbjöllum

Dæmi eru um að fast­eigna­salar til­kynni kaup­endur eða selj­endur fast­eigna til lög­reglu vegna tengsla við fíkni­efna­sölu. Fast­eigna­við­skipti Antons Kristins Þórð­ar­sonar, sem hefur verið til opin­berrar umræðu vegna tengsla við brota­starf­semi, hringdu hins vegar engum við­vör­un­ar­bjöllum hjá fast­eigna­söl­unni Miklu­borg.

Fasteignaviðskiptin hringdu engum viðvörunarbjöllum

Óskar Harð­ar­son, fram­kvæmda­stjóri Miklu­borgar fast­eigna­sölu, segir ekk­ert athuga­vert við kaup Antons Kristins Þór­ar­ins­sonar á Hauka­nesi 24 í Garðabæ og þar að auki hafi engar við­vör­un­ar­bjöllur kviknað við við­skiptin varð­andi pen­inga­þvætti. Engu að síður voru við­skiptin áhættu­söm sam­kvæmt áhættu­mati Félags fast­eigna­sala og því hefði átt að skoða þau nánar, sem ekki var gert. Lög­reglu­full­trúi í fjár­muna­brota­deild lög­regl­unnar segir stöð­una á fast­eigna­mark­aði minnka hvata fast­eigna­sala til að til­kynna við­skipti með til­liti til mögu­legs pen­inga­þvættis.

Eins og Stundin hefur áður fjallað um seldi Anton athafna­mann­inum Magnúsi Ármanni og eig­in­konu hans eign sína, Frjóakur 9 í Garðabæ, en fast­eigna­mat þeirrar eignar hljóðar upp á rúmar 250 millj­ónir. Óljóst er hvað Magnús greiddi fyrir eign­ina en ljóst er þó að Anton lán­aði Magnúsi við afsal 120 millj­ónir sem hann átti að greiða rúmum mán­uði síðar. Fullyrt er í …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Peningaþvætti á Íslandi

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár