Bygg­inga­verka­menn Algeng leið til pen­inga­þvættis er að borga mönnum svört laun, í reiðufé, til dæmis með pen­ingum sem feng­ist hafa í fíkni­efna­sölu, og auka þannig virði hús­næðis. Þannig verður ávinn­ing­ur­inn með yfir­bragð lög­mætis við sölu á fast­eign­inni. Myndin teng­ist mál­inu ekki beint. Mynd: Shutterstock

Svona er peningaþvætti stundað á Íslandi

„Það er eins og skatt­ur­inn sé ekk­ert að pæla í þessu,“ segir við­mæl­andi Stund­ar­innar, sem hefur stundað pen­inga­þvætti. Áhætta vegna pen­inga­þvættis er helst tengd lög­mönnum, end­ur­skoð­endum, fast­eigna­sölum og bíla­sölum. Sárafáar ábend­ingar ber­ast um grun um pen­inga­þvætti frá þessum stéttum, þrátt fyrir til­kynn­inga­skyldu.

Samkvæmt nýút­gefnu áhættu­mati rík­is­lög­reglu­stjóra á vörnum gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, telst áhætta vegna pen­inga­þvættis mest er varðar skatt­svik sem frum­brot pen­inga­þvættis, flutn­ing reiðu­fjár til og frá land­inu, reiðu­fjár­við­skipti, einka­hluta­fé­lög, pen­inga­send­ingar, söfn­un­ar­kassa og happ­drætt­is­vélar.

Birgir Jónasson, lög­lærður full­trúi hjá grein­ing­ar­deild Rík­is­lög­reglu­stjóra og umsjón­ar­maður með áhættu­mat­inu, segir í sam­tali við Stundina að fyrir honum snú­ist nið­ur­stöð­urnar helst að skattsvikum, reiðufé og mis­notkun á einka­hluta­fé­lögum. Allt er þetta eitt­hvað, sem sam­kvæmt áhættu­mat­inu, teng­ist skipu­lagðri brota­starf­semi.

Frumbrot peningaþvættis

Pen­inga­þvætti felur í sér ólög­mætan ávinn­ing af svoköll­uðu frum­broti, til að mynda brotum á almennum hegn­ing­ar­lögum eða sér­refsi­lögum. Áhættu­matið skiptir frum­brotum pen­inga­þvættis í tvo flokka, skatt­svik og önnur brot.

Birgir segir skatt­svik standa ein og sér í áhættu­mat­inu en þau frum­brot geti þó tengst notkun reiðu­fjár, mis­notkun á einka­hluta­fé­lögum og skipu­lagðri brota­starf­semi en dæmi eru um að aðilar sem teng­ist glæpa­sam­tökum hafi kerf­is­bundið mis­notað virð­is­auka­skatts­kerfið með því að svíkja út virð­is­auka­skatt af rík­inu.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Peningaþvætti á Íslandi

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár