Covid-19 talið vera ógn varðandi peningaþvætti

Samkvæmt nýju áhættu­mati rík­is­lög­reglu­stjóra á vörnum gegn pen­inga­þvætti, eru þær breyttu efna­hags­legu aðstæður sem mynd­ast hafa vegna Covid-19, taldar geta ógnað vörnum gegn pen­inga­þvætti.

Covid-19 talið vera ógn varðandi peningaþvætti

Í nýju áhættu­mati Rík­is­lög­reglu­stjóra á vörnum gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, sem gefið var út á föstu­dag, kemur fram að með þeim breyttu efna­hags­legu og þjóð­fé­lags­legu aðstæðum sem hafa mynd­ast í kjöl­far Covid-19, fylgi ýmsar áskor­anir í tengslum við aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. 

Úrræði stjórnvalda í hættu á misnotkun

Í áhættu­mat­inu segir að þær ráð­staf­anir sem stjórn­völd hafa gripið til hér á landi, með því mark­miði að koma í veg fyrir útbreiðslu kór­óna­veirunnar, hafi áhrif á fjár­hags­legt umhverfi afbrota­manna sem geti leitt til breyttra aðferða við öflun ólög­mæts fjár. FATF, aðgerð­ar­hópur gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka sem Ísland á aðild að, hefur bent á nýjar ógnir og veik­leika hvað þennan mála­flokk varðar.

Hætta er talin á að fjár­hags­legur stuðn­ingur stjórn­valda til fyr­ir­tækja og ein­stak­linga sem og alþjóð­leg fjár­hags­að­stoð verði mis­notuð. Heild­ar­fjár­hæð ráð­staf­ana á vegum stjórn­valda hér á landi vegna Covid-19 far­ald­urs­ins nam tæp­lega 60 millj­örðum króna á tíma­bil­inu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Peningaþvætti á Íslandi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár